SÍBS blaðið - 01.10.2022, Side 12

SÍBS blaðið - 01.10.2022, Side 12
Viðtal SÍBS-blaðið Ljósm. Aðalgeir Gestur Vignisson Úr Mekka meltingarlækninga Viðtal: Páll Kristinn Pálsson Ásgeir Theodórs er fæddur 14. júlí 1945 í Reykjavík. Hann stundaði sérnám í lyflæknisfræði, meltingarlækningum, speglunum á meltingarvegi og síðan greiningu og meðferð illkynja sjúkdóma við Cleveland Clinic Foundation í Cleveland, Ohio og Memorial Sloan Kettering Cancer Center, Cornell University, New York í Bandaríkjunum frá 1975-1981. Að námi loknu starfaði Ásgeir sem yfirlæknir meltingardeildar, einnig framkvæmdastjóri lækninga og að lokum yfirlæknir St. Jósefspítala í Hafnarfirði 1982 -2011. Hann var jafnframt umsjónarlæknir speglanadeilda Borgarspítala, síðar Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala háskólasjúkrahúss til ársloka 2017. Á árunum 1993 og 1994 starfaði hann á meltingarsjúkdómadeild Cleveland Clinic Foundation. Ásgeir lauk meistaranámi í lýðheilsu og heilbrigðisstjórnun við Háskólann í Reykjavík árið 2010. Hann hefur ritað fjölda greina, haldið fyrirlestra hér á landi og erlendis um ristilkrabbamein og skimun eftir sjúkdómnum. Ásgeir er heiðursfélagi í CCU samtökunum (2014) og heiðursfélagi í Krabbameinsfélagi Höfuðborgarsvæðisins (2019). 12

x

SÍBS blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SÍBS blaðið
https://timarit.is/publication/1222

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.