SÍBS blaðið - 01.10.2022, Blaðsíða 18
SÍBS-blaðið
Breytingar í brisi og lifur eiga sér líka stað og þar með
á fjölmörgum efnaskiptum sem þessum líffærum tengjast.
Einstaklingar með sykursýki 2 fá oft mikla bót sjúkdómsins
og jafnvel langt sjúkdómshlé eftir aðgerð en ekki er talað um
að aðgerðirnar lækni sykursýki. Einnig má oft sjá viðsnúning
á einkennum fitulifrar eftir aðgerðirnar. Hætta á gallsteinum
eykst þegar einstaklingur léttist hratt og vera þarf vakandi
fyrir slíkum einkennum eftir efnaskiptaðgerðir.
Vitað er að breyting verður á samsetningu þarmaflórunnar
við aðgerðir og að flóran verður fjölbreyttari en fyrir aðgerðir.
Enn er langt í land með að við vitum nákvæmlega fræðin á
bak við áhrif þarmaflórunnar á heilsu okkar. Margt er óljóst
um hvaða bakteríur eiga þar best heima, hverjar ekki, hvert
er hlutverk þeirra og hvernig samspil þeirra er við hin ýmsu
líffærakerfi. Þó er vitað að það er kostur að bakteríuflóran
okkar sé fjölbreytt.
Varnarviðbrögð líkamans
Líkaminn bregst þannig við þessu stóra inngripi sem efna-
skiptaaðgerð er með margvíslegum hætti. Líkaminn leitar
að jafnvægi og ef hann skynjar að varnarviðbragða sé þörf
setur hann í gang heilmörg ferli til að vega upp á móti þessum
breytingum sem aðgerðin hefur í för með sér. Hann veit jú
ekki að aðgerðin var gerð að yfirlögðu ráði en honum er
eiginlegt að bregðast við eins og um slys sé að ræða. Svelti
og næringarskortur eru ógnir sem hann sér sig knúinn til að
bregðast við og því mikilvægt að vinna bug á þeirri mýtu að
því minna sem einstaklingar borði því meira léttist þeir.
Það er ekki óeðlilegt að þyngjast aftur þegar árin líða eftir
aðgerðir og efnaskiptabreytingar þær sem komu fram eftir
aðgerð byrja að ganga til baka. Mikilvægt er að bregðast við
með viðeigandi hætti, skilja hvaða breytingar eru að eiga sér
stað og hvort inngrip þurfi til að styðja við þyngdarstjórnunar-
kerfi líkamans.
Lokaorð
Það er okkur eðlilegt að safna orkuforða í formi fituvefs og
líkamsstarfsemi okkar getur verið algerlega heilbrigð þótt
líkamsþyngdin aukist. Orkustjórnun líkamans er flókin og
þyngdarstjórnunarkerfin sem líkaminn virkjar eru margþætt.
Starfsemi þyngdarstjórnunarkerfanna og fituvefjarins getur
raskast eins og önnur starfsemi líkamans og sjúkdómurinn
offita verður þannig til.
Offita er í raun samheiti yfir margs konar raskanir sem
geta orðið á þessari starfsemi. Að gefnu tilefni er vert að taka
fram að það er ekki hinn svokallaði líkamsþyngdarstuðull sem
segir til um hvort sjúkdómurinn offita sé til staðar eða ekki.
Þegar sjúkdómurinn offita er tilkominn er um að ræða alvar-
legan, langvarandi sjúkdóm sem nær til margra líffærakerfa
og mikilvægt er að greina og meðhöndla með viðeigandi hætti.
Efnaskiptaaðgerðir eru mikilvæg meðferð við alvarlegri
offitu en eiga ekki við sem meðferð við vægum sjúkdómi eða
sem fyrirbyggjandi meðferð. Slíkar aðgerðir þarf að undirbúa
vel, ráðleggja rétta aðgerð fyrir réttan einstakling á réttum
tíma og reglulegt eftirlit er nauðsynlegt við þessum langvinna
sjúkdómi alla ævi. Það eru eðlileg viðbrögð líkamans að vilja
auka orkuforða sinn í formi fituvefs aftur eftir að efnaskipta-
Magaermi
áhrif aðgerðanna minnka. Þess vegna skiptir meðferð eftir
aðgerð miklu máli og getur skipt sköpum um hvort árangur
aðgerðanna er skammvinnur eða langvarandi.
Einstaklingar sem fara í efnaskiptaaðgerð þurfa að fylgja
leiðbeiningum alla ævi. Mikilvægt er að þeir kynni sér þessar
leiðbeiningar vel, séu tilbúnir að fylgja þeim og leiti sér
aðstoðar ef eitthvað bregður út af. #
Gagnlegar greinar og vefslóðir til frekari fróðleiks:
Gastrointestinal changes after bariatriv surgery. https://www.ncbi.nlm.nih.
gov/pmc/articles/PMC439l395/
Practical Recommendations of the Obesity Management Task Force of the
European Association for the Study of Obesity for the Post-Bariatric Sur-
gery Medical Management https://www.karger.com/Article/PDF/48l825
https://throunarmidstod.is/svid-thih/naeringarsvid/eftir-efnaskiptaadgerd/
https://www.landspitali.is/library/Sameiginlegar-skrar/Gagnasafn/Sjuklingar-
-og-adstandendur/Sjuklingafraedsla—Upplysingarit/Skurdlaekningasvid/
efnaskiptaadgerd_202l.pdf
https://www.landspitali.is/library/Sameiginlegar-skrar/Gagnasafn/Sjuklingar-
-og-adstandendur/Sjuklingafraedsla—Upplysingarit/Naering/mataraedL
eftir_efnaskiptaadgerd_202l.pdf
KJARNAFÆÐI
Norðienska
Samtök fyrirtækja
í sjávarútvegi
SAMEYKI
18