SÍBS blaðið - 01.10.2022, Side 22
SÍBS-blaðið
höndluð þannig að allt glúten er fjarlægt úr þeim. Sjá í töflu
I upplýsingar um vörur sem innihalda glúten og í töflu 2 sem
innihalda ekki glúten. Hægt er að kaupa glútenlaust pasta,
morgunkorn, kex, kökur og brauðmeti ýmiss konar sem og
mjölblöndur til að baka eigið brauð, kex og kökur.
Matvæli án glútens
Matvæli sem eru án glútens frá náttúrunnar hendi eru kjöt,
fiskur og egg, mjólk, mjólkurafurðir (s.s. ostur, smjör), ávextir,
ávaxtasafi, grænmeti, kartöflur, hrísgrjón, kínóa, hirsi, hnetur,
möndlur, möndlumjöl, maísmjöl, polenta, kartöflumjöl, fræ,
kókos, smjör, matarolía, smjörlíki. Hafrar og bókhveiti sem er
ræktað, meðhöndlað og pakkað í hreinu umhverfi.
Eins og áður segir þarf ávallt að lesa innihaldslýsingar
til að tryggja að engu sem inniheldur glúten hafi verið bætt í
matvælin, og þetta þarf að skoða reglubundið því stundum er
vörum breytt. Dæmi um slíkt gæti verið jógúrt með múslí, sem
gæti innihaldið glúten.
Oft tengjast glútenóþol og mjólkursykursóþol (laktósa
óþol) og lýsir það sér þannig að einstaklingurinn fær maga-
verki og jafnvel niðurgang við að neyta mjólkur. Er það vegna
skorts eða vanvirkni laktasa ensímsins sem brýtur niður
mjólkursykur en hann er „að störfum“ í þörmunum. Þetta
óþol fyrir mjólkursykri er eðlilegt ástand sem líður hjá þegar
þarmatoturnar hafa jafnað sig.
í dag er mikið úrval af mjólkurvörum án mjólkursykurs og
margar sýrðar mjólkurvörur innihalda lítið af mjólkursykri.
Smjör, brauðostar og flestir smurostar innihalda engan mjólk-
ursykur og því er hægt að nota þessar vörur á því tímabili sem
þarmarnir eru viðkvæmir.
Mikilvægt er að einstaklingar með glútenóþol fari reglulega
til næringarfræðings eða næringarráðgjafa til að fá faglegan
stuðning til að viðhalda glútenfríu fæði og til að fylgjast með
því að viðkomandi þjáist ekki af næringarskorti af neinu tagi.
Æskilegt er að taka blóðprufu reglubundið og fylgjast helst
með járni og B-vítamínum, sér í lagi BI2-vítamín og fólasíni.
Trefjar geta verið af skornum skammti og sést það helst á
tilfellum hægðatregðu. Trefjarnar má auðveldlega bæta upp
með því að borða ávexti helst með hýðinu á og ríkulega af
grænmeti. Einnig innihalda hafrar, fræ og hnetur trefjar.
Nokkuð algengt er að fólk með glútenóþol fái beinþynn-
ingu og þjáist af járnskorti. Alvarlegri afleiðingar glútenóþols
og þess að forðast það ekki eru krabbamein í meltingarvegi
og á meðgöngu þar sem barnið getur fæðst of létt.
Aukcfni
Sum aukefni geta innihaldið sterkju sem búin er til úr korn-
tegund sem inniheldur glúten. Samkvæmt gildandi reglum um
merkingar matvæla skulu framleiðendur merkja sérstaklega
ef notaðar eru korntegundir sem innihalda glúten og hveiti í
matvæli, líka aukefni. Magn aukefna er ávallt lítið í matvælum
en oft er nauðsynlegt að skoða vel hvort aukefnin innihalda
glúten og/eða hveiti (fyrir þá sem eru með hveitiofnæmi) og
gæti þurft að hafa samband við framleiðanda vörunnar til að
ganga úr skugga um það.
Fyrir neðangreind aukefni (sterkja notuð sem þykkingar-
efni í ýmsa matvælaflokka) er betra að fullvissa sig um að þau
innihaldi ekki sterkju frá korntegundum sem innihalda glúten.
Algengast er að notuð sé kartöflu- eða maíssterkja í þessa
tegund aukefna og þá þarf ekki að hafa áhyggjur af glúteni.
E 1404 Sterkja, oxuð E 1410 Mónósterkjufosfat
E 1412 Dísterkjufosfat E 1413 Fosfaterað dísterkjufosfat
E 1414 Asetýlerað dísterkjufosfat E 1420 Sterkjuasetat
E 1422 Asetýlerað dísterkjuadipat
E 1440 Hýdroxyprópýlsterkja
E 1442 Hýdroxyprópýldísterkjufosfat
E 1450 Sterkjunatríumoktenýlsuccinat
E 1451 Asetýleruð sterkja, oxuð
Tilbúnir réttir og matvæli
Ýmsir tilbúnir réttir, samsett matvæli og kryddi innihalda
glúten og því er mikilvægt að lesa innihaldslýsingu vel til
að fullvissa sig um að varan innihaldi ekki glúten. Lesa þarf
reglulega á umbúðir þar sem framleiðendur geta breytt upp-
skrift á sömu vöru eða breytt úr einu hráefni í annað.
Glúten er eða getur verið í:
• Mörgum morgunkornstegundum
• Kjötvörum s.s. kjötfarsi, paté, pylsum, bollum, áleggi og
tilbúnum réttum
• Fiskvörum s.s. fiskibollum og fiskbúðingi
• Hvítum jafningi, pakkasósum og súputeningum
• Sinnepi, tómatsósu, majónesi, remúlaði, karrí og öðrum
kryddblöndum
• Fylltu súkkulaði, lakkrís, lakkrískonfekti, hlaupi og kara-
mellum
• Frosnum frönskum kartöflum, kartöfluflögum, snakki,
ristuðum lauk
• Malti og jólaöli
Fæðubótarefni geta innihaldið glúten t.d. ef þau innihalda
fylliefni svo sem sterkju eða dextrín. Glúten getur einnig verið
í húðunarefni fæðubótarefna. Best er að spyrjast fyrir hjá
framleiðanda/heildsala til að fá upplýsingar um hvort glúten
sé í viðkomandi vöru.
Til að tryggja að einstaklingur með glútenóþol fái öll
næringarefnin sem hann þarfnast þá er mælt með fjölvítamíni
(vítamín og steinefni í ráðlögðum dagskammti fyrir viðkom-
andi aldur) en velja skal vöru sem er glútenfrí. #
Heimildir:
Coliaki og mad uden gluten. Ved celiaki er man nedt til at undgá hvede og
andre
kornprodukter, som indeholder gluten. Pjecen fortæller, hvordan man gor det.
Udgiver: Fedevarestyrelsen, Danmarks Fodevareforskning, Sundhedsstyrel-
sen, Dansk Coliaki
Forening og Astma-Allergi Forbundet (2005).
https://www.nhs.uk/conditions/coeliac-disease/
Vísindavefurinn
Jóhanna Eyrún Torfadóttir, rádgjafi um skólamötuneyti leik- og grunnskóla
Hringdu
22