Bæjarblaðið Jökull - 18.12.2014, Blaðsíða 1
Fyrstu jólasveinarnir eru
komnir til byggða og farnir að
skemmta börnum og jafnvel
lauma einhverju skemmtilegu
í skóinn hjá þægu börnunum.
Stekkjastaur kom fyrstur en
hann lét sjá sig í Pakkhúsinu
föstu daginn 12. desember,
næst ur kom Giljagaur, svo
Stúfur, Þvörusleikir, Pottasleikir
og í gær miðvikudag kom Aska
sleikir. Áður en yfir líkur munu
þrettán sveinar hafa komið við
í Pakkhúsinu á leið sinni af fjöll
um og allir gefa þeir sér tíma til
að spjalla svolítið við börnin.
Á meðan beðið er eftir jóla
sveinum hafa konur úr Lions
klúbbnum Rán lesið fyrir börnin
og svo er sungið, jóla sveinarnir
eru flestir ekki mjög tón vissir
og því eins gott að börnin taki
hraustlega undir.
Meðfylgjandi myndir voru
teknar í Pakkhúsinu á mánudag
þegar Þvörusleikir kíkti við.
Fram að jólum verður dagskrá
á hverjum degi í Pakkhúsinu og
þann 21. verður tilkynnt um val
á jólahúsi Snæfellsbæjar, það
er tilvalið að kíkja við og fá sér
heitt súkkulaði og vöfflu, skoða
varning og jafnvel kaupa eina
eða tvær jólagjafir sem unnar
eru af heimamönnum.
jó
Ólafsbraut 21, Snæfellsbæ
Sími: 410 4190
Netfang: 0190@landsbankinn.is
Snæfellsnesi
www.landsbankinn.is
Jólasveinar tínast til byggða
677. tbl - 14. árg. 18. desember 2014
OPIÐ JÓLA-HESTHÚS
Á BRIMILSVÖLLUM
sunnudaginn 21. desember 2014 frá kl. 14:00 til 17:00
Hesthúsið á Brimilsvöllum er kominn í jólabúning, við fögnum því
að folöldin, tamningar- og kynbótahross eru kominn í hús.
Komið og kíkið á hestanna fyrir jólin !
Það verður rjúkandi heitt kaffi og kökur í boði,
börn (og líka fullorðnir) verða teymd á hestbaki. Í hlöðinni verður lítill
jólamarkaður með kræsingum, handverk, lukkuskeifum og fleira til sölu.
(Ath. enginn posi á staðnum)
Hittumst í jólaskap í sveitinni - ALLIR VELKOMNIR!
Fjölskyldan á Brimilsvöllum
Góðir Snæfellingar
Nú nálgast jólin og við óskum ykkur öllum hamingju og friðar á aðventu og um hátíðirnar.
Við viljum minna á að það er okkar allra hagur að njóta og versla í heimabyggð. Á Snæfellsnesi er fjölbreytt úrval
af vörum og þjónustu; t.d. upplifun, handverki og mat. Megi gleði og friður fylgja okkur öllum á nýju ári.
Samstarfskveðja
Alda Hlín Karlsdóttir, menningar- og markaðsfulltrúi Grundarfjarðarbæjar
Bjarney Inga Sigurðardóttir, upplýsinga- og markaðsfulltrúi Stykkishólmsbæjar
Dagbjört Agnarsdóttir, verkefnastjóri Átthagastofu Snæfellsbjæjar
Margrét Björk Björnsdóttir, verkefnisstjóri Sveitaverkefni; Hítará- Hellnar
Ragnhildur Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Svæðisgarðsins Snæfellsnes