Bæjarblaðið Jökull - 18.12.2014, Page 8
Brimið bar
grjót á land
Eftir hvassa suðaustanátt
lægði mikið þegar líða tók
á miðvikudaginn og gerði
algjört logn á meðan vindurinn
snéri sér í vestan átt. Gerði þá
mikinn sjó á Breiðafirði og var
stórkostlegt að fylgjast með
öldunum þegar þær brotnuðu
á klettunum. Þegar flóðið var
að ná hámarki um níuleitið var
brimið svo mikið að það gekk vel
á land alveg frá Drimbum vestur
að þar sem gamla frystihúsið
var á Hellissandi. Íbúar í húsinu
númer 13 við Keflavíkurgötuna
á Hellissandi urðu þó mest
varir við brimið en öldurnar
skullu á húsinu og báru með
sér stóra grjóthnullunga eins
og sjá má á myndinni. Voru
öldurnar svo stórar að þær
gengu fram fyrir húsið og þykir
mikil mildi að rúður brotnuðu
ekki í svalahurðinni. Ekki eru
mörg ár síðan grjótgarður var
gerður í fjörunni vegna þess að
á árum áður gekk sjór oft á land
á þessum slóðum. þa
Gleðilega hátíð
Þökkum viðskiptin
Föstudagur 19. des. 09 - 20
Laugardagur 20. des. 13 - 18
Sunnudagur 21. des. 13 - 18
Mánudagur 22. des. 09 - 18
Þorláksmessa 23. des. 09 - 22
Aðfangadagur 24. des. 10 - 13
Jóladagur 25. des. LOKAÐ
Annar í jólum 26. des. LOKAÐ
Laugardagur 27. des. 13 - 17
Sunnudagur 28. des. 13 - 17
Mánudagur 29. des. 09 - 18
Þriðjudagur 30. des. 09 - 19
Gamlársdagur 31. des. 10 - 13
Fimmtudagur 1. jan. LOKAÐ
Föstudagur 2. jan. 09 - 20
Breyting á afgreiðslutíma:
Höldum áfram með músastiga og stjörnurnar
mmtudaginn 18. des. kl. 16-18.
Unglingabækur í úrvali. Lesið bækur og gerist
kvikmyndagerðarfólk í huganum.
Hentugir bókasafnspokar kosta 700 kr.
Gömlu stóru bómullarpokarnir eru enn til.
Opið um jólahátíðina sem hér segir:
Mánudag 15. des. – mmtudags 18. des. kl. 14-18
Mánudaginn 22. des. og Þorláksmessu kl. 14-18 -
og til kl. 21 - til kl. níu.
29. - 30. des. kl. 14-18
Mánudaginn 5. janúar og eftirleiðis kl. 14-18.
Ósóttir vinningar í happdrætti
Kvenfélagsins Gleym mér ei:
15-60-123-174-228
247-445-474.
Óvissujólabókapakkar
Það er gamall siður á Íslandi að gefa bók á jólunum.
Oft eru jólin eini tíminn sem fólk gefur sér til að lesa
í ró og næði. Bókasafnið vill koma til móts við
heimilin og bjóða upp á bókapakka handa ölskyl-
dunni. Þeir sem koma á bókasafnið fyrir jól geta
valið sér bækur í poka eða fengið lokaðan poka
með 3-4 bókum um ýmis málefni. Til að hafa
gaman af uppátækinu má skreyta pokann eða
pakka í jólapappír og setja undir jólatréð með
hinum gjöfunum.
Við óskum viðskiptavinum bókasafnsins, gestum
Sögumiðstöðvar og Grundfirðingum öllum
gleðilegra jóla og velfarnaðar á nýju ári
og þökkum fyrir góð samskipti.
Sunna og Alda Hlín