Úrval - 01.10.1971, Qupperneq 100
98
ÚRVAL
innar upp öllum hurður. Neyðar-
rennur voru blásnar upp og þeim
dreift á rétta útgöngustaði. Og inn-
an 90 sekúndna voru allir farþeg-
arnir komnir út úr flugvélinni.
Gueeye reis á fætur frammi í
stj órnklefanum, leit á úrið og beið
þangað til á síðasta augnabliki. Þá
fyrst sneri hann sér að flugstjóran-
um og öðrum flugstjóra og sagði:
„Jæja, þá, farið þið. Gangi ykkur
vel!“
Mennirnir æddu að neyðarút-
göngudyrunum og köstuðu sér nið-
ur rennurnar. En samt voru þeir
Priddy flugstjóri og Gueeye enn
undir væng risaþotunnar, þegar
fyrsta sprengingin splundraði stjórn-
klefanum.
„Ég fann loftþrýstingsöldurnar
skella aftan á hálsinn,“ sagði Prid-
dy síðar. „Og um leið heyrði ég
riffilskot kveða við allt í kringum
okkur. Ég vissi ekki, hvernig mér
bæri að skilja það. Við stukkum
upp í flugvallarfarþegavagn og
köstuðum okkur á gólfið. Gueeye
var svo handtekinn af tveim egypzk-
um hermönnum."
Augusta Schneider hljóp með
öðrum hóp í hina áttina, þ. e. í átt-
ina frá flugstöðvarbyggingunni.
Skyndilega kom ég auga á Diop,
þar sem hann stóð uppi á sandhól,"
segir hún. „Hann hélt á skjalatösk-
unni í hendinni og starði á flug-
vélina og sprengingarnar. Logarn-
ir lýstu hana upp. Ég tók eftir því,
að hann brosti. Hann var hamingju-
samur. Seinna hjálpaði hann okkur
að hjúkra argentínskri konu, sem
hafði fótbrotnað, og hann gaf ein-
hverjum, sem hafði meiðzt á höfði,
vasaklútinn sinn. Hann var ekki
lengur hættulegur. Hann hafði lok-
ið ætlunarverki sínu.“
Síðar sama dag, þ. 7. september,
sótti önnur flugvél frá Pan Ameri-
canflugfélaginu alla farþegana og
áhöfnina og flaug með þau til New
York.
GESTRISNI í EYÐIMÖRKINNI
Um 35 mílum fyrir norðaustan
Amman er Gaa-Khanna, slétt sand-
svæði, sem líkist einna helzt upp-
þornuðum stöðuvatnsbotni. Þegar
vetrarregnið kemur, verður fínn
sandurinn þarna eins háll og sápa.
En hinn hluta ársins er svæði þetta
flatt og hart eins og straubretti.
Þangað liggja ekki neinir vegir, að-
eins eyðimerkurslóðir. Þetta var
Byltingarflugbrautin.
Fyrsta rænda flugvélin, sem lenti
á Byltingarflugbrautinni, var Bo-
eing 707-þotan frá TWA, sem hafði
lagt af stað frá Frankfurt í Þýzka-
landi síðdegis þennan dag. Henni
var flogið af 51 árs gömlum Banda-
ríkjamanni, Carroll Woods að nafni.
Einn af flugvélarræningjunum,
snyrtileg og aðlaðandi ung stúlka,
sem sat fyrir aftan Woods með
handsprengju í hendinni, hafði að
vísu flugkort af svæðinu í fórum
sínum. En samt var ekki svo auð-
velt að koma auga á flugbrautina
í fyrstu. Svo gekk sólin skyndilega
til viðar, og þegar Woods flaug
aftur yfir svæði þetta, sá hann tvær
samsíða ljósaraðir. Þar var um að
ræða tvær raðir af dósum með eldi
í, sem komið hafði verið fyrir með-
fram flugbrautinni flugmönnum til
leiðbeiningar.