Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 31.01.2019, Síða 1

Bæjarblaðið Jökull - 31.01.2019, Síða 1
Vignir Snær Stefánsson knatt­ spyrnumaður frá Víking Ólafsvík, var kjörin íþróttamaður HSH 2018 í Stykkishólmi, 25. janúar auk þess að vera valinn knattspyrnumaður HSH. Aðrir íþróttamenn voru einnig heiðraðir fyrir góðan árangur í sinni íþróttagrein auk þess sem veitt var viðurkenning fyrir vinnu­ þjark ársins. Eftirtaldir hlutu viður kenn­ ingar: Blakmaður HSH 2018 – Lydía Rós Unnsteinsdóttir , Umf. Grundarfjarðar Hestaíþróttamaður HSH 2018 ­ Siguroddur Pétursson, Snæfelling Knattspyrnumaður HSH 2018 – Vignir Snær Stefánsson, Umf. Víking Kylfingur HSH 2018 ­ Rögnvaldur Ólafsson, Golfklúbbnum Jökul Körfuknattleiksmaður HSH 2018 – Berglind Gunnarsdóttir, Umf. Snæfell Skotíþróttamaður HSH 2018 – Jón Pétur Pétursson, Skotfélag Snæfellsness Vinnuþjarkur HSH 2018 – Skotgrund Skotfélag Snæfellsness Við þetta sama tækifæri var tekinn í notkun nýr hátíðarfáni Héraðssambands Snæfellsness og Hnappadalssýslu. Kemur nýi fáninn í stað eldri fána sem fylgt hefur sambandinu í áraraðir. Það var Silkiprent sem gerði nýja fánan en eftirfarandi fyrirtæki styrktu HSH um kaup á fánanum Guðmundur Runólfsson hf., Sæferðir ehf., Valafell ehf., Ragnar og Ásgeir ehf., Soffanías Cecilsson hf og Fiskmarkaður Íslands hf. Vill HSH koma á framfæri þakklæti til þessara fyrirtækja. Myndina tók Sumarliði Ásgeirsson. þa 862. tbl - 19. árg. 31. janúar 2019 Íþróttamaður HSH 2018 - Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.