Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 31.01.2019, Síða 6

Bæjarblaðið Jökull - 31.01.2019, Síða 6
Miðvikudaginn 6. febrúar býður Grunnskóli Snæfellsbæjar til Skólaþings. Skólinn varðar okkur öll, sérstaklega nemendur, foreldra og starfsfólk. Það er dýrmætt að þessir hópar komi saman af og til og ræði um skólastarfið og hvernig hægt er að gera enn betur. Á þinginu munum við heyra sjónarmið nemenda og ræða í hópum, hvaða eiginleikum og hæfni við viljum að nemendur sem útskrifast úr GSnb búi yfir. Við fáum okkur pizzur, hlustum á barnakórinn og höfum gagn og gaman af. Nú eru liðin 7 ár frá síðasta Skólaþingi. Út úr því kom meðal annars sú áhersla á átthagafræði, sem hefur skapað skólanum sérstöðu. Viljum við breyta áherslum? Ættum við að endurskoða einkunnarorðin, sem í dag eru „vellíðan, gleði og einstaklingsþroski“? Og hvað verður svo gert með afrakstur þingsins? Það sem fram kemur á skólaþinginu, bæði það sem fólk hefur metnað fyrir og áhyggjur af, verður notað sem efniviður við breytingar á Skólanámskrá og Starfsáætlun GSnb. Allt verður tekið til skoðunar og vegið, metið og mátað. ILDI, sem hefur umsjón með skólaþinginu, mun vinna samantekt um þingið sjálft, en úrvinnsla inn í Skólanámskrá og Starfsáætlun GSnb verður í höndum Skólaráðs. Jafnframt verður óskað eftir að einn fulltrúi frá bæjarstjórn taki þátt í vinnunni. Þessi hópur tekur endanlega ákvörðun um hvað ratar inn í Skólanámskrá og Starfsáætlun GSnb. Samantektin frá þinginu, og nýjar útgáfur af Skólanámskrá og Starfsáætlun, verður birt á vef skólans og send í tölvupósti til þeirra sem það vilja. Einnig verða birtar fréttatilkynningar í Jökli. Vonast er til að sem flestir geti gefið sér þessa kvöldstund í samtal um skólann, sérstaklega nemendur og foreldar hvaðanæva að úr Snæfellsbæ. Ræðum saman um það mikilvæga verkefni að undirbúa börnin okkar og unglingana fyrir framtíðina. Skráning þátttöku er á slóðinni: https://goo.gl/forms/ liC0hDhSAKCIErp73 Hilmar Már Arason, skólastjóri Grunnskóla Snæfellsbæjar Skólaþing í Snæfellsbæ Blaðamaður/Fréttaritari óskast Bæjarblaðið Jökull óskar eftir áhugasömum aðila til að sjá um fréttaöflun úr Grundarfirði fyrir blaðið. Nánari upplýsingar veitir Jóhannes í síma 893 5443 og netfang steinprent@simnet.is Hljómsveitin Valdimar er mörgum kunnug enda hefur sveitin verið ein sú allra vinsælasta hér á landi síðustu árin. Með silkibarkann Valdimar Guðmundsson í fararbroddi leikur sveitin lög af nýjustu plötu sinni í bland við eldra efni í Frystiklefanum á Rifi, föstudagskvöldið 1. febrúar. Frábær upphitun fyrir þorrablótin á laugardaginn! Miðaverð: 3.900 á tix.is og 4.500 við hurð. Valdimar í Frystiklefanum Kirkjukór Ingjaldshólskirkju býður fólki að koma á opna æfingu miðvikudaginn 6. febrúar. Eru ekki einhverjir sem vilja leggja kirkjunni okkar lið með því að syngja, við höfum frábæran söngstjóra sem er Elena Makeeva og við æfum hvern miðvikudag kl. 20.00 í safnaðarheimilinu. Framundan eru fermingar, páskar og sjómannadagsmessa. Ávallt eru skemmtileg tækifæri ef fólk vill taka þátt, en okkur bráðvantar söngfólk í allar raddir. Spurningin er, viljum við hafa kór í kirkjunni okkar? Áhugasamir eru hvattir til að mæta, og taka lagið í góðra vina hópi. Upplýsingar hjá Elenu í síma 865­0144 og Þorbjörgu í síma 893­6652. Kát nú við syngjum saman

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.