Bæjarblaðið Jökull - 31.01.2019, Qupperneq 6
Miðvikudaginn 6. febrúar
býður Grunnskóli Snæfellsbæjar
til Skólaþings. Skólinn varðar
okkur öll, sérstaklega nemendur,
foreldra og starfsfólk. Það er
dýrmætt að þessir hópar komi
saman af og til og ræði um
skólastarfið og hvernig hægt er
að gera enn betur.
Á þinginu munum við heyra
sjónarmið nemenda og ræða í
hópum, hvaða eiginleikum og
hæfni við viljum að nemendur
sem útskrifast úr GSnb búi yfir.
Við fáum okkur pizzur, hlustum
á barnakórinn og höfum gagn
og gaman af.
Nú eru liðin 7 ár frá síðasta
Skólaþingi. Út úr því kom
meðal annars sú áhersla á
átthagafræði, sem hefur skapað
skólanum sérstöðu. Viljum við
breyta áherslum? Ættum við að
endurskoða einkunnarorðin,
sem í dag eru „vellíðan, gleði og
einstaklingsþroski“?
Og hvað verður svo
gert með afrakstur
þingsins?
Það sem fram kemur á
skólaþinginu, bæði það sem fólk
hefur metnað fyrir og áhyggjur
af, verður notað sem efniviður
við breytingar á Skólanámskrá
og Starfsáætlun GSnb. Allt verður
tekið til skoðunar og vegið,
metið og mátað.
ILDI, sem hefur umsjón
með skólaþinginu, mun vinna
samantekt um þingið sjálft, en
úrvinnsla inn í Skólanámskrá
og Starfsáætlun GSnb verður í
höndum Skólaráðs. Jafnframt
verður óskað eftir að einn
fulltrúi frá bæjarstjórn taki þátt
í vinnunni. Þessi hópur tekur
endanlega ákvörðun um hvað
ratar inn í Skólanámskrá og
Starfsáætlun GSnb.
Samantektin frá þinginu, og
nýjar útgáfur af Skólanámskrá
og Starfsáætlun, verður birt á vef
skólans og send í tölvupósti til
þeirra sem það vilja. Einnig verða
birtar fréttatilkynningar í Jökli.
Vonast er til að sem flestir
geti gefið sér þessa kvöldstund í
samtal um skólann, sérstaklega
nemendur og foreldar hvaðanæva
að úr Snæfellsbæ. Ræðum saman
um það mikilvæga verkefni að
undirbúa börnin okkar og
unglingana fyrir framtíðina.
Skráning þátttöku er á
slóðinni: https://goo.gl/forms/
liC0hDhSAKCIErp73
Hilmar Már Arason, skólastjóri
Grunnskóla Snæfellsbæjar
Skólaþing í
Snæfellsbæ
Blaðamaður/Fréttaritari
óskast
Bæjarblaðið Jökull óskar eftir
áhugasömum aðila til að sjá um
fréttaöflun úr Grundarfirði
fyrir blaðið.
Nánari upplýsingar veitir Jóhannes
í síma 893 5443 og netfang steinprent@simnet.is
Hljómsveitin Valdimar er
mörgum kunnug enda hefur
sveitin verið ein sú allra
vinsælasta hér á landi síðustu
árin. Með silkibarkann Valdimar
Guðmundsson í fararbroddi
leikur sveitin lög af nýjustu
plötu sinni í bland við eldra
efni í Frystiklefanum á Rifi,
föstudagskvöldið 1. febrúar.
Frábær upphitun fyrir þorrablótin
á laugardaginn! Miðaverð: 3.900
á tix.is og 4.500 við hurð.
Valdimar í
Frystiklefanum
Kirkjukór Ingjaldshólskirkju
býður fólki að koma á opna
æfingu miðvikudaginn 6.
febrúar. Eru ekki einhverjir
sem vilja leggja kirkjunni
okkar lið með því að syngja,
við höfum frábæran söngstjóra
sem er Elena Makeeva og við
æfum hvern miðvikudag kl.
20.00 í safnaðarheimilinu.
Framundan eru fermingar,
páskar og sjómannadagsmessa.
Ávallt eru skemmtileg tækifæri
ef fólk vill taka þátt, en okkur
bráðvantar söngfólk í allar raddir.
Spurningin er, viljum við
hafa kór í kirkjunni okkar?
Áhugasamir eru hvattir til að
mæta, og taka lagið í góðra vina
hópi.
Upplýsingar hjá Elenu í síma
8650144 og Þorbjörgu í síma
8936652.
Kát nú við
syngjum saman