Bæjarblaðið Jökull - 16.04.2020, Blaðsíða 3
Leikmenn í meistaraflokki
Víkings bjuggu á dögunum til
mynd band með heimaæfingum
sem hægt er að stunda í samkomu
og æfingabanninu. Með þessu
vildu þeir aðstoða iðkendur í
yngri flokkum félagsins við að
halda áfram að æfa.
Allt eru þetta æfingar sem hægt
er að framkvæma innandyra án
þess að eiga á hættu að geta
brotið lampa, skrautmuni eða
aðra hluti inni á heimilinu.
Engar æfingar hafa verið hjá
yngri flokkum hér á Íslandi síðan
um miðjan mars og ljóst er að
æfingar geta ekki hafist að nýju
fyrr en í fyrsta lagi einhverntímann
í maí. Það er því um að gera fyrir
unga knattspyrnuunnendur á
Snæfellsnesi að kíkja á þessar
æfingar.
Meðfylgjandi þessari frétt
er QR kóði. Ef þú tekur mynd
af kóðanum með símanum á
mynda vélinni þinni opnast linkur
á myndbandið sem sýnir heima
æfingarnar. Myndin með fréttinni
er tekin á æfingu liðsins í fyrra.
Leikmenn gera
æfingamyndband
Starfsmenn þjónustu mið stöð
var Stykkishólms hafa ný verið
lokið við uppsetningu á girð ingu
við Aðalgötu.
Girðingin var sett upp til að
auka öryggi gangandi og hjól
andi vegfarenda en nokkur fall
hætta var á svæðinu. Athuga
semdir um málið bárust eftir
um hverfis göngu bæjarstjóra
síðast liðið sumar.
Starfsmennirnir hafa þó ekki
sagt skilið við girðingasmíði því
nú er unnið að því að setja upp
girðingu umhverfis blokkina á
Skúlagötu.
Öryggi aukið með
girðingu
Í byrjun síðustu viku gerði
mikla snjókomu og safnaðist
tals verður snjór á Snæfellsnesi
sem varð m.a. til þess að
ófært var á milli Ólafsvíkur og
Grundarfjarðar. Þröstur Alberts
son snjóruðningsmaður tók þesa
mynd að morgni 6. apríl þegar
hann var að stinga í gegnum
skafl ana svo að umferð kæmist
á veginn að nýju.
Snjóinn tók þó fljótt upp og
undan farna daga hefur þurft
að fara til fjalla til að komast í
almennilegan snjó.
Grundarfjarðarbær mun halda
ljósmyndakeppni bæjarins í ell
efta sinn í ár. Þemað að þessu
sinni er vetur í Grundarfirði.
Reglur keppninnar kveða á um
að myndirnar sem eru sendar inn
séu teknar frá 1. desember 2019
til 1. nóvember 2020 og að þær
séu teknar innan sveitafélagsins.
Hver má að hámarki senda inn 5
myndir og eru allir hvattir til að
taka þátt.
Verðlaun verða veitt fyrir þrjú
efstu sætin. 1. sætið fær 50.000
kr, 2. sætið fær 30.000 kr og 3.
sætið fær 20.000 kr.
Myndum þarf að skila fyrir
1. nóvember og sendast þær á
grundarfjordur@grundarfjordur.
is.
Meðfylgjandi má sjá sigur
myndina frá því í fyrra en það var
Oliver Degener sem tók myndina.
Síðasti snjórinn?
Ljósmyndakeppni
haldin í 11. sinn