Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Blaðsíða 4
Í morgunhúmi í janúar staulast
röð af börnum í gulum vestum með
kennurunum sínum í gegnum
skaflanna á leið frá leikskólanum
og upp í Nýrækt, eða í skóginn
eins og þau orða það. Sum ganga á
hlið eða afturábak, „ með rassinn
út í vindinn”, til að skýla andlitinu
fyrir skafrenningnum, en þó eru
öll glöð og brosandi. Maður lætur
ekki veðrið á sig fá þegar maður
er á leiðinni í ævintýri.
Það er sama hvað maður kemur
oft í þennan skóg, hann er aldrei
eins. Stundum er svo dimmt
undir trjánum að ómögulegt er
að ímynda sér hvaða rökkurvættir
leynist á milli þúfna, róta og
mosavaxinna steina. Stundum
hvíslar vindurinn að trjánum,
en stundum orgar hann og
allur skógurinn virðist vera á
iði, þó það sé alltaf skjól niðri á
skógarbotninum. Í leysingunum
myndast heilt kerfi af stöðuvötnum
á skógarbotninum. Stundum er
skógurinn hvítur, stundum grár,
og stundum er hann fullur af
grængylltu ljósi.
Allur matur bragðast betur ef
maður borðar hann úti. Heitur
matur bragðast sérstaklega mikið
betur og þeim mun meira eftir
því sem kaldara er. Í skóginum
fáum við sendan mat beint úr
eldhúsinu í stórum hitapotti og
unum glöð við þá vissu að okkur
bragðast hann betur en þeim sem
inni eru. Eina vandamálið er að
ákveða hvort maður vill reyna að
borða í vettlingum, sem getur
verið kúnst, eða láta sig hafa það
að vera kalt á puttunum.
Í skóginum eru börnin um kringd
lífi. Því miður er skyn veru leiki
margra barna í dag í aukn um mæli
manngerður eða staf rænn. En í
skóginum eru börnin um lukin
lifandi veruleika sem hefur til vist
og líf óháð þeim sjálf um. Trén
eru lifandi verur sem við lærum
að bera virðingu fyrir og þekkja.
Sum þeirra hafa jafnvel nöfn eins
og Regnhlífartréð og Klifur tréð.
Um vorið áður en nokkur blóm
eru sprottin safnast svo margar
býflugur í sama tréð að það virðist
suða og maður heyrir í því löngu
áður en maður sér það. Það er
auðvitað kallað Suðtréð.
Inni í verkfæraskúr, á milli
hjól bara, tækja og tóla, þar sem
sagir hanga í loftinu, er lítið
hús bíla klósett. Þar er líka kassi
með klósett pappír, sjúkrakassa,
og auka fötum, og málmdós
með kakói í af því að músin
nagaði plast dósina og kúkaði í
kakóið (líklega kunni hún ekki á
klósettið). Það er svolítið kalt að
setjast á þetta klósett en það er svo
margt spennandi að skoða inni í
skúr að kuldinn gleymist yfirleitt.
Einkum er það markmið barnanna
að finna músaholuna.
Yfir veturinn halda til í
skóginum nokkrar rjúpur og í
hvert skipti sem við heyrum rop
læðast börnin af stað til að njósna
um þær. Stundum spígsporar
stelkurinn á undan okkur í
röðinni og sandlóan kemur alltaf
á sama stað og reynir að lokka
okkur í burt frá hreiðrinu sínu.
Eftir matinn kemur oftar en ekki
skógarþröstur eða maríuerla að
leita sér að brauðmola sem fallið
hefur á jörðina. En þar sem er líf
er líka dauði. Það kemur fyrir að
jarða þurfi látinn fugl eða mús
en það er hluti af hringrás sem
börnin læra að skilja og virða.
Þegar líður á vorið má í hverri
viku sjá nýtt blóm eða ein hverja
jurt stingast upp úr holtinu,
vegar kantinum, eða skógar botn
inum. Jafnvel ofan í skurð unum
eru skrúðgarðar þegar hóf sól
eyjarnar blómstra. Í hverri viku
læra börnin nýtt orð, jurtanafn,
dýra nafn, örnefni eða veðurorð.
Í hverri viku má líka sjá hvernig
skynjaður veruleiki barnanna vex
því börnin taka eftir því sem þau
eiga orð til að lýsa og nefna.
Það eru glöð börn sem ganga
aftur í leikskólann eftir rúmlega
fjögra tíma dvöl í skóginum. Í
frjálsum leik í krefjandi landslagi
hafa börnin sett sér hvert ögrandi
verkefnið á fætur öðru. Þau hafa
séð sig til neydd til að hjálpast að
og standa saman og eru þéttari
hópur fyrir vikið. Í skóginum
hafa þau meira frelsi og bera
meiri ábyrgð sem er grundvölluð
í trausti milli barns og kennara.
Slík gildi, samstaða og traust, eru
fræ að betra samfélagi sem eru
byrjuð að festa rætur hjá þessum
börnum sem klæða sig úr gulu
vestunum á leikskólalóðinni og
fara inn að fá sér kaffitíma.
Höf. Hjalti Hrafn Hafþórsson
Svipmyndir úr útikennslu