Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Blaðsíða 3

Bæjarblaðið Jökull - 18.06.2020, Blaðsíða 3
Það var líflegt í höfninni í Grundar firði á dögunum þegar skipið Norma Mary, sem er í eigu Sam herja, landaði miklum afla. Um er að ræða togara sem hafði verið við veiðar við Grændland í nokkra daga og kom til baka með yfir 200 tonn af þorski. Alls landaði skipið rúmlega 220 tonn­ um Skipstjóri á togaranum Norma Mary er Grundfirðingurinn Sig­ urð ur Ólafur Þorvarðarson Með yfir 200 tonn af þorski Bæjarstjórn Snæfellsbæjar sam­ þykkti samhljóða á bæjar stjórnar­ fundi þann 4. júní að gefinn verði tíma bund inn 90% af sláttur af gatna gerðar gjöldum af ákveðn­ um íbúðar húsalóðum í þétt býli Snæ fells bæjar. Afslátturinn tekur til allra íbúðar húsalóða sem þegar eru til búnar til úthlutunar að undan­ skild um lóðum við Fossabrekku 5 ­ 15 í Ólafsvík og lóðum við Háa rif A­H í Rifi. Afslátturinn gildir frá 1. júní 2020 til 1. maí 2021. Lækkun gatnagerðargjalda felur í sér mikinn sparnað fyrir hús byggj endur og standa vonir til að veitt ur af slátt ur styðji við upp­ bygg ingu á nýjum íbúðarhúsum og hvetji til bygg ingar fram­ kvæmda í þétt býlis kjörn unum þremur. Samkvæmt heimildum Jökuls hefur þetta nú þegar skilað þeim árangri að búið er að sækja um a.m.k. 3 lóðir. Meðfylgjandi mynd sýnir hluta lóðanna sem eru í boði í Ólafsvík en flestar lóðirnar sem búið er að sækja um eru við Fossa­ brekku. 90% afsláttur af gatnagerðargjöldum Um Tröll, Gyðjur og Menn Laugardaginn 20. júní kl.14:00 opnar listsýning í Porti við Salthús gamla Hraðfrystihúss Hellissands, Hellisbraut 1a., Hellissandi. Gerhard König og Lárus Sigurðsson sýna högglistaverk úr íslensku basalti og rekavið. Tónlist: Monika Abendroth. Sýningin verður opinn út júlí kl.14:00 - 17:00 alla daga. Nánar á: mávur.is - Bílaviðgerðir - Skipaþjónusta - Almenn suðuvinna - Smurþjónusta - Smábátaþjónusta - Dekkjaverkstæði vegr@vegr.is vegr.is S: 849-7276 Remek og 898-5463 Þórður

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.