Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Síða 2

Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Síða 2
Líkt og fram kom í síðasta tölublaði Jökuls fagnaði Þjóðgarðurinn Snæfellsjökull 20 ára afmæli um helgina sem var að líða og hélt upp á það með stórglæsilegri dagskrá alla síðastliðna viku. A f m æ l i s f ö g n u ð i n u m v a r slitið á sunnudaginn með hátíðardagskrá á Malarrifi. Margrét Björk var veislustýra og karlakórinn Heiðbjört opnaði hátíðina með fallegum söng. Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfis- og auðlindaráðherra og Sigríður Auður Arnardóttir, ráðuneytisstjóri mættu á svæðið og undirrituðu reglugerð um stækkun þjóðgarðsins. Þjóðgarðurinn mun þá stækka um 9% og bætist við hann svæði sem liggur norðan við jökulhettu Snæfellsjökuls og austan við núverandi þjóðgarðsmörk, frá jöklinum að Búrfelli og norður fyrir Dýjadalsvatn. Að því loknu var boðið upp á fjölbreytta dagskrá um allt Malarrif, teymt var undir krökkum, Ragnhildur Sigurðardóttir sagði sögur við Salthúsið, Kristinn Jónasson, bæjarstjóri Snæfellsbæjar leiddi göngu frá Svalþúfu að Malarrifi, opið hús í Malarrifsvita, leikir fyrir börn og veitingar voru á boðstólnum í boði Þjóðgarðsins. Nóg var því um að vera, vel var mætt á viðburðinn og afmæli Þjóðgarðsins fagnað með pompi og prakt. sj Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og dreift á hvert heimili í Snæfellsbæ og Grundarfirði, Blaðið kemur út vikulega. Upplag: 1.100 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími: 436 1617 20 ára afmæli Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls HAPPY HOUR frá kl 16:00-18:00 Bjóðum uppá Rib eye steikur og grillaðan lax á frábæru verði. Okkar margrómuðu pizzur alltaf á boðstólnum. Borðapantanir í síma 663 3373 Trúbadora stemming í Arnarbæ um helgina föstudags og laugardagskvöld frá kl 21:00. Ingvar Valgeirsson tónlistarmaður hefur leikið um land allt til ölda ára. Hann hefur geð út tónlist bæði undir eigin nafni og með hljómsveitinni Swizz. Landsliðsþjálfari U16 kvenna hefur valið hópinn sem mun taka þátt í Norðurlandamóti U16 kvenna fyrir hönd Íslands. Mótið mun fara fram í Kolding í Danmörku 4. til 13. júlí næstkomandi. Í hópnum sem varð fyrir valinu eru 20 leikmenn frá 11 félögum en á meðal þeirra er Eyrún Embla Hjartardóttir. Eyrún Embla er ung og efnileg knattspyrnukona sem ólst upp með Víking en spilar nú með Stjörnunni. sj Eyrún Embla á Norðurlandamót U16 Ráðherra og ráðuneytisstjóri ásamt fulltrúum þjóðgarðsins, Umhverfisstof- nunnar og sveitarfélagsins Snæfellsbæjar og markaðsstofu Vesturlands.

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.