Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Síða 10

Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Síða 10
Tökur á kvikmyndinni Woman at sea sem nú fer senn að ljúka í Snæfellsbæ hafa lífgað upp á bæinn nú í júní og varla farið framhjá neinum. Myndin sem gerð er eftir margverðlaunaðri franskri bók sem fjallar um franska ævintýrakonu sem tekur þá ákvörðun að hefja nýtt líf sem sjómaður í karllægum heimi á norðurhjara veraldar. Stór hluti myndarinnar er því tekinn á sjó og í höfninni í Ólafsvík. Báturinn sem konan ræður sig á heitir Rebel og gætu glöggir heimamenn hafa tekið eftir því að einn af bátunum í höfninni breytti um nafn í vor en það er Egill SH sem breytti um nafn vegna myndarinnar. Hefur áhöfn Egils SH því staðið í ströngu við veiðar og kvikmyndaleik og verður gaman að sjá hvernig það birtist í myndinni. þa Egill SH verður kvikmyndastjarna Ragnar Már Ragnarsson hefur verið ráðinn í starf byggingar- fulltrúa Snæfellsbæjar en hann tekur við stöðunni af Davíð Viðarssyni. Ragnar hefur þegar hafið störf og nýtti hann fyrstu dagana til þess að kynnast aðstæðum í Snæfellsbæ og kynna sér hvað muni taka við eftir að hann kemur úr sumarfríi. Hann mun hefja störf að fullu í lok júlí. Ragnar var áður að vinna hjá Þjóðskrá Íslands við fasteigna mat auk þannig sem hann starfaði sjálfstætt við ýmis verkefni á sviði fast- eigna, til dæmis hönnun, hlut- verk byggingarfulltrúa fyrir sveitarfélög, við eftirlit og sem byggingaverktaki. Ragnar Már hefur lokið BSc í byggingafræði frá Vitrus Bering í Horsens og mastersprófi í MPM í verk efna- stjórnun frá Háskóla Íslands. Hann sótti auk þess löggildingu til að leggja fram aðaluppdrætti árið 2009 og hann lærði skipu- lags fræði tímabundið árið 2012. Ragnar er uppalinn á Akra- nesi en hefur síðan þá búið á höfuðborgarsvæðinu og í Horsens í Danmörku. Síðustu ár hefur hann verið bú sett ur í Stykkishólmi með eigin konu sinni, Þórnýju Öldu Baldurs- dóttur og börnum. Hann er því alls ekki ókunnur Snæ fells- nesinu. sj Nýr byggingarfulltrúi Snæfellsbæjar Mánudagskvöldið 21. júní síðast liðið afhenti HSH stjórn Golf klúbbsins Jökuls viður kenn- inguna Vinnuþjarkur HSH 2020. Vinnuþjarkurinn 2020 er viður- kenn ing á óeigingjörnu starfi sjálf boðaliða innan raða aðildar- félaga HSH þar sem framtakssemi, nýsköpun, ást og umhyggja er höfð að leiðarljósi. Viðurkenningin var afhent Golfklúbbnum í kvöld- verðarspjalli sem UMFÍ bauð stjórn og framkvæmdastjóra HSH uppá á Sker. Þá var notað tæki- færið og afhenti stjórn HSH stjórn Golfklúbbsins Jökuls stór glæsi- legan bikar sem UMFÍ gaf sam- bandinu. Á meðfylgjandi mynd er Hjörleifur K. Hjörleifsson, for- maður HSH að afhenda stjórn Golf klúbbsins Jökuls bikarinn. Það voru Jón Bjarki, Ríkharður, Hjörtur Guð munds son og Hjörtur Ragnars son sem tóku við honum. sj Vinnuþjarkur HSH 2020 Jökull Bæjarblað steinprent@simnet.is 436 1617

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.