Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Page 11

Bæjarblaðið Jökull - 01.07.2021, Page 11
Uppbygging gömlu réttarinnar í Ólafsvík. Nú líður að lokaátaki verkefnisins. Áhugahópur um uppbyggingu gömlu réttarinnar þakkar fyrirtækjum, félagasamtökum og einstaklingum stuðninginn, enn á ný leitum við til ykkar. Margt smátt gerir eitt stórt. Byggðalagið allt mun njóta uppbyggingarinnar. Tenging við skógræktina mun gera svæðið skemmtilegra til gönguferða og útivistar auk þess sem ferðaþjónustan mun eignast áhugaverðan áningastað. Í sumar höldum við áfram verkefninu. Frjáls framlög má leggja inn á reikning í Landsbanka Íslands í Ólafsvík 190-15-380065 á kennitölu Átthagastofu Snæfellsbæjar 671108-1670. Marinó Mortensen hjá Deloitte er vörslumaður reikningsins. Vonumst til að sjá sem esta í hleðsluvinnu, verkið hefst 9. ágúst og er reiknað með að því ljúki 13. ágúst. Allar frekari upplýsingar má fá hjá Guðrúnu Tryggvadóttur sími 894-5160, Sölva Konráðssyni i sími 894-2832 eða Lydíu Rafnsdóttur sími 892-5302. Geymið auglýsinguna Á dögunum fóru starfsfólk og leikskólabörn á Krílakoti í árlega ísferð til Þórðar og Ólínu í ÓK, þau hafa boðið leikskólabörnunum upp á ís á hverjum sumri í fjölda mörg ár. Undanfarna daga hefur hita stigið hækkað örlítið svo að óhætt þykir að fá sér ís án þess að verða fyrir ofkólnun, ferðamenn jafnt sem heimamenn hafa því gripið tækifærið og gætt sér á ýmsum tilbrigðum af ís. Starfsfólk og börn á Kríla- koti vilja koma á framfæri kæru þakklæti til eigenda Sölu skála ÓK og einnig óska les endum gleðilegs sumars. Ísferð í Söluskála ÓK

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.