Stormur - 01.04.1944, Blaðsíða 8

Stormur - 01.04.1944, Blaðsíða 8
8 Storaur 'Bygðarfrétti.r Það var haldinn fundur í smjörgerðarfélaginu "Norður Stjarnan" þ. 24. marz 1944. Fyrir utan hin vanalegu fundarstörf, svo sem em- bættismanna kosningar og árs-reikninga, var ein samþykt gerð. er i frásögur er færandi. Það var sem sé samþykt, að félagið legði ekki fram neitt fé til verðbréfa kaupa til stríðs þarfa í framtíðinni. Þar eð félagið er samvinnu félag, myndi maður halda að það væri fúst til samvinnu við stjórnina, eigi síður en aðra, með því líka að stjórnin hefir sýnt töluverða viðleitni til samvinnu við bændur með all ríflegri verð uppbót á smjörfitu. Það er í frásögur færandi að Mr. Bryce, sambands þingmaður Sel- kirk kjördænis, kom hingað norour í páska-fríinu, og hélt fund 1 Árborg. Að þetta sé frásagnar vert, er ekki svo mjög vegna bess að miklu hafi verið komið til leiðar í Ottawa af hálfu C.C.F. Það er víst erfitt verk, eftir frásögn Mr. Brycej en hitt er bað, að koma hans hingað norður í kjördæmið er virðingaverð. Laugardaginn, 18. marr,, hé].t Heilsufarsnefnd Árborg op.inn- fund, til bess að ræða um starfsemi hjúkrune.rkonunnar í Bifröst sveit. 'vliss King, Miss McDowell og Miss Breckman héldu ræður um starfið. Aðallega benti Miss Breckraan á nauðsyn á tannlækni, bar sem yfir 500 börn þörfnuðust viðgerð á tönnum. Var þetta rætt, og fólk beðið að stuðla að því að fá lækna til að gera þetta verk. ?Jfyndir voru sýndar. Kaffiveitingar voru undir umsjón M.F.A. Það er ef til vill . ekki á vitorði nema fárra lesenda blaðsins, að "North Star" smjörgerðarfélagið leggur árlega í sjóð upp að $200, í bví augnamiði að menta unglinga £ ýmsum greinum landbúnað- ar. Sjóður sá er í höndum sérstakrar nefndar, irndir stjórn frú Andreu Johnson. Þessi áminsta nefnd, ásamt annari fra "Agricult- ural Society", hafði námsskeið £ viohaldi og meðferð akuryrkju verkfæra. i Arborg síðast liðinn vetur. Fimtíu nemendur sóttu skól- ann. "Sameinaðir stöndum vér, en sundraðir föllum vér." * * * "Stormur" er blaðið ykkar. Skrifið í "Storm".

x

Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stormur
https://timarit.is/publication/1904

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.