Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 29.06.2023, Blaðsíða 2

Bæjarblaðið Jökull - 29.06.2023, Blaðsíða 2
Blaðið er gefið út af Steinprent ehf. og liggur frammi í Snæfellsbæ og Grundarfirði, Blaðið kemur út vikulega. Upplag: 500 Áb.maður: Jóhannes Ólafsson Prentun: Steinprent ehf. Sandholt 22a, Ólafsvík 355 Snæfellsbæ Netfang: steinprent@simnet.is Sími: 436 1617 Fjöldi fólks lagði land undir fót til Snæfellsbæjar um helgina enda mikið um að vera í bæjarfé- laginu. Meðal þess sem var í boði var Íslandsmót í motorcrossi sem haldið var á braut Motorcross- klúbbs Snæfellsbæjar, fyrir ut- an Enni. Mikill mannfjöldi fylgd- ist með keppninni en auk þeirra voru um 70 keppendur sem tóku þátt í mótinu í karla og kvenna- flokki. Sigurvegari í karlaflokki MX-1 var Máni Freyr Pétursson og í karlaflokki MX-2 var það Eið- ur Orri Pálsson. Í unglingaflokki sigruðu Kári Siguringason og Er- ic Máni Guðmundsson en Andri Berg Jóhannsson var fyrstur í 85 flokki. Aníta Hauksdóttir var fyrst í kvennaflokki en í kvennaflokki 30+ var það Theodóra Björk Heimisdóttir. Þegar stutt var eftir af keppni varð slys sem varð til þess að keppandi hálsbrotnaði. Þyrla landhelgisgæslunnar var send á slysstað og flutti viðkomandi und- ir læknishendur. Er sjúklingurinn á batavegi og hefur tjáð sig um reynsluna á samfélagsmiðlum. Næsta keppni fer fram á Akra- nesi þann 8. júlí næstkomandi. JJ Um 70 manns kepptu í motocross Níunda og síðasta árið af endurhleðslu Ólafsvíkurréttar er að líða en einungis 14 metrar eru eftir af réttinni i sinni gömlu mynd. Síðan árið 2014 hef- ur Guðrún Tryggvadóttir stað- ið að átaksverkefni sem varðar endurhleðslu réttarinnar ásamt Lydíu Rafnsdóttir og Sölva Kon- ráðssyni. Þessi þrír sjálfboða- liðar ásamt Ara Jóhannessyni, hleðslumeistara, hafa staðið staðið vaktina við endurhleðsl- una öll níu árin í réttinni ásamt fjölda sjálfboðaliða sem tekið hafa til hendinni. Teymið hefur hlaðið réttina að nýju, einn dilk í einu og nú í júní eru einung- is 14 metrar eftir af verkefninu sem áætlað er að klára í ágúst. Gríðarlega mikil vinna er að baki þessa öfluga hóps en ávalt er stutt í gleðina. SJ Hleðsla réttarinnar gengur vel

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.