Bæjarblaðið Jökull - 02.11.2023, Page 7
Stykkishólmsdeild Noræna fé
lagsins veitti í dag Eyrbyggjasögu
félaginu styrk til refilsaumsverkefn
is félagsins sem formlega verður
hleypt af stokkunum n.k. laugar
dag í Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hell
issandi, kl. 14 með fjölbreyttri dag
skrá.
Stjórn Stykkishólmsdeildar
Norræna félagsins, Sólborg Olga
Bjarnadóttir gjaldkeri, Sigurlína
Sigurbjörnsdóttir ritari og fráfar
andi formaður Þórhildur Pálsdótt
ir veittu styrkinn þriðjudaginn 31.
október 2023 á Fosshótel Stykkis
hólmi og það var ritari Eyrbyggja
sögufélagsins, Anna Sigríður Mel
steð sem tók á móti styrknum fyrir
hönd stjórnar. Anna þakkaði fyrir
styrkinn og í máli hennar kom fram
að kostnaður við verkefnið er um
talsverður og er þessa dagana verið
að ganga frá samningi við hönnuð
refilsins, svo allir styrkir koma að
góðum notum.
Refilsaumur er saumgerð sem
dregur nafn sitt af orðinu refill.
Reflar voru skrautleg tjöld úr ull
eða líni sem höfð voru til þess að
tjalda innan bæði kirkjur og híbýli
fólks fyrr á tíð. Refilsaumur er að
eins eitt útsaumsspora sem notuð
voru á miðöldum og er afbrigði
af útsaumi sem nefndur er lagð
ur saumur. Þessi meistaraverk ís
lenskrar miðaldalistar voru unnin
af listfengum konum sem bjuggu
yfir þekkingu og þjálfun í vefnaði
og útsaumi.
Þekktasti refillinn er hinn franski
Baeyeux refill. Hér á Íslandi hefur
refill með efnivið úr Njálssögu og
Vatnsdælasögu verið hannaður og
saumaður að hluta til og nú stend
ur til að setja í gang refilgerð með
myndskreytingum og sögum úr Eyr
byggjusögu. Hugmyndin var kynnt
fyrir öllum kvenfélögum á Snæfells
nesi s.l. vor. Kvenfélögin eru sjö tals
ins, en þau munu koma að fram
kvæmd saumaskaparins við refilinn
hvert í sinni sveit. Það eru Kvenfélag
Hellissands, Kvenfélag Ólafsvíkur,
Kvenfélagið Björk Helgafellssveit,
Kvenfélagið Hringurinn Stykkis
hólmi, Kvenfélagið Liljan Eyja
og Miklaholtshreppi, Kvenfélag
ið Gleym mér ei Grundarfirði og
Kvenfélagið Sigurvon Staðarsveit.
Til stendur að sýna refilinn, þegar
þar að kemur, um allt Snæfellsnes
og verður þannig til nokkurskonar
refilslóð á söguslóðum Eyrbyggju
sögu á Snæfellsnesi.
Hönnuður refilsins er Krist
ín Ragna Gunnarsdóttir myndlist
armaður og rithöfundur en hún
hannaði einnig Njálurefil og Vatns
dælarefil. Torfi Tulinius prófessor í
miðaldabókmenntum við Háskóla
Íslands, vinnur að drögum að hand
riti sýningar um Eyrbyggju og efn
isþáttum sem endurspeglast í ref
ilsaumnum.
Á laugardaginn verður viðburð
ur á vegum Eyrbyggjasögufélagsins í
Þjóðgarðsmiðstöðinni á Hellissandi
þar sem Torfi, Kristín og Sæmundur
Kristjánsson koma fram og verður
m.a. sýnd fyrstu drög að teikning
um á reflinum. Þess má geta að sama
dag opnar stærsta sýning ársins á
160 ára afmæli Þjóðminjasafnsins
þar sem öll varðveitt íslensk refil
klæði sem varðveist hafa verða sýnd
í fyrsta sinn saman.
Eyrbyggjurefill hlýtur styrk
Laus staða
við Grunnskóla Snæfellsbæjar - Ólafsvík
Laus er staða skólaliða við starfstöðina í Ólafsvík, 100% stöðugildi, frá 1. janúar 2024.
Starfsvið:
Þrif á skólahúsnæði og skólalóð.
Gæsla í frímínútum og matartímum.
Leiðbeina nemendum í leik og starfi.
Ýmis önnur verkefni sem til falla hverju sinni.
Menntun, reynsla og hæfni:
Menntun og reynsla sem nýtist í starfi.
Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Góð kunnátta í íslensku er skilyrði.
Borgað er samkvæmt kjarasamningum
Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember.
Umsóknareyðublað er á heimasíðu Snæfellsbæjar:
https://snb.is/wp-content/uploads/2013/12/Atvinnuums%C3%B3kn.pdf
Upplýsingar veitir Hilmar Már Arason skólastjóri í síma 894 9903.
Umsóknir skal senda til skólastjóra á netfangið hilmara@gsnb.is.
Frá vinstri: Anna, Þórhildur, Sigurlína og Sólborg Olga við veitingu styrksins