Feykir - 25.01.2023, Blaðsíða 4
Satt er það, að ekki
leist mér á þá áskorun
Viktoríu frænku minnar
um að skrifa orð í Feyki
og hugmyndin um hvað
skyldi skrifa hvergi
sjáanleg. En ekki fer ég
nú að láta það hefta för
mína, og var ósjálfrátt
búinn að samþykkja
þessa aðför að mér áður
en ég vissi af.
Til að byrja þessi skrif
(hugmyndalaus) hef
ég ákveðið að fara
aðeins inn á nýlega
yfirstaðna sameiningu
Húnavatnshrepps og
Blönduóss í fáum orðum.
Ég hef verið hlynntur
sameiningu í mjög langan
tíma og verið á þeirri
skoðun að losna þurfi
við allt neikvætt umtal
um náungann og hans
störf, af nægu er að
taka og svolítið ríkjandi
að finna frekar að en
hrósa fyrir það sem vel
er gert (allt A-Hún ).
Gaman hefði verið að
hafa Skagabyggð og
Skagaströnd með en þau
sem það vildu, náðu ekki
brautargengi og þurftu
að lúta í lægra haldi fyrir
þeim sem höfnuðu. Litlu
munaði í Skagabyggð
og hefur maður heyrt
getgátur um að flestir
þeir sem höfnuðu vilji
lítið eða ekkert koma
að rekstri eða stjórn
sveitarfélagsins. Ekki
veit ég. Meiru munaði á
Skagaströnd en eftir að
ryk hefur sest og lífið
heldur áfram hefur
maður heyrt að ansi
margir nagi sig í
handarbökin og jafnvel
sjái pínulítið eftir því að
hafa hafnað. En hvað veit
maður, vonandi farnast
öllum sem best í sínu.
Við vorum að mínu mati
mjög heppin með nýjan
sveitarstjóra sem vonandi
farnast vel í starfi.
Ég held ég þurfi nú
ekki að fara að rausa
í fólki sem les Feyki
um muninn á því að
búa úti á landi eða á
höfuðborgarsvæðinu en
það er nú samt svolítið
gaman að koma aðeins
inn á þessi fríðindi
sem við búum við, því
við þurfum jú oft að
minna okkur á hvað
við höfum það gott og
erum oft á tíðum svo
frjáls og fljót í förum.
Ég til dæmis, búandi
í A-Hún, sæki af og til
þjónustu á Sauðárkrók
og er bara líklega í
mörgum tilfellum fljótari
þangað heldur en tekur
að fara frá Reykjavík
til Hafnarfjarðar/
Mosfellsbæ.
Það er margt sem við á
þessum litlu stöðum úti
á landi fáum í verslunum
í okkar heimabæ en
alls ekki allt og þá fæst
það með hvers kyns
pöntunum annars staðar
frá og í flestum tilfellum
í höfuðborginni. Það
sem hins vegar mörgum
hættir til að gleyma, er
að kanna stöðuna í sínu
nærumhverfi því þar
getur einmitt verið til það
sem upp á vantaði og oft
ekkert endilega dýrara.
Sjálfur leita ég töluvert
eftir aðföngum frá
Sauðárkróki sem ég ekki
fæ á Blönduósi og finnst
að fleiri ættu að gera
það líka, því það eykur
líkurnar á því að hægt
sé að bjóða upp á vörur
á viðráðanlegu verði og
hægt að eiga á lager.
Það sem ég kom inn á
varðandi aukin viðskipti,
um verð og framboð á
því miður ekki alltaf við.
En þó ég hafi ákveðið
að reyna að vera ekki
mjög neikvæður verð
ég aðeins að koma því
frá mér hvað við erum
að verða ólánsöm með
Kjörbúðina hérna á
Blönduósi. Hún er í
mörgum tilfellum mjög
dýr og dagvörur á tíðum
ekki fáanlegar. Þetta ætti
ekki að þurfa að gerast
þar sem gríðarlegur
fjöldi ferðamanna á
ársgrundvelli stoppar
þarna og verslar. Þarna
kemur Skagfirðingabúð
mun betur út að mér
skilst því þar fæst nú flest
allur fjandinn er mér sagt
og verðið mun skárra,
en ekki sendum við
ferðamanninn sem prikar
hérna í gegn þangað,
eða hvað?
Sjálfur fer ég nú helst
aldrei í búð og verð því
að styðjast við frásagnir
að hluta en ég lendi mjög
oft í að borga og þar finn
ég mun. Annars erum
við nú lagerfólk á mínum
bæ og þyrftum sjálfsagt
alls ekki eins oft í búðina
og farið er. Hefðum
líklega átt auðveldara
hlutfallslega með að fóðra
strandaglópa en raunin
varð á Keflavíkurvelli
fyrir stuttu.
Ég er bóndi, þjónusta
bændur, og reyni að
sinna sjúkraflutningum
eftir þörfum ásamt
ýmsum öðrum verkefnum
sem oft verða að
fleirum en upphaflega
stóð til að taka að sér.
Hef oft þótt yfirdrifinn
í því sem mér dettur
í hug (ótakmarkaðar
hugmyndir) og veit fátt
verra en annars flokks
hugsun í lífinu öllu. Það
tekur jú yfirleitt jafn
langan tíma að gera vel
og illa í flestu.
Göngur og réttir eru
stórir viðburðir á mínu
heimili og má segja
að um nokkurs konar
árshátíð búsins sé að
ræða og mikið gert úr,
er mannmargt á bænum
á þeim tímum og engu
til sparað í vellystingum
og skemmtun. Kemur
fólk af Suðurlandi og
Eyjafjarðarsvæðinu,
ásamt heimafólki sem
og öðrum velunnurum,
saman til þessa hátíða.
Oft hefur heyrst að ekki
gangi nægjanlega vel að
manna göngur á bæjum
og kann ég ágætis ráð
handa þeim kollegum
mínum.
Ég gæti skrifað mjög
mörg orð um flugvöllinn
á Blönduósi fyrst ég
nefndi sjúkraflutninga,
brýna þörf hans og
tilverurétt. En þá gæti
ÁSKORENDAPENNINN | palli@feykir.is
Rúnar Örn Guðmundsson bóndi á Síðu í Austur-Húnavatnssýslu
Áskorun um skrif
ég einnig leiðst út í ljót
orð og jafnvel sum hver
sem venjulegt fólk hefur
ekki heyrt áður, svo
ég hægi á mér. Mér er
málið hugleikið til langs
tíma, verið viðloðandi
sjúkraflutninga á
Blönduósi í um 15 ár. Ég
veit að það tekur mun
styttri tíma fyrir flugvél
að koma frá Akureyri
til Blönduóss heldur en
þyrlu frá Reykjavík eftir
að báðar eru komnar í
loftið. Flugvélin er fljótari
til Reykjavíkur, mörgum
sinnum minni hávaði
fyrir sjúklinginn og mér
er sagt að kostnaður við
flugvél sé helmingur af
kostnaði við þyrluflug.
Svo er flugvélin jafnþrýst
en þyrlan ekki. Þyrla er
frábært björgunartæki
og við værum illa sett
án hennar en flugvélin
er það einnig og oft á
tíðum betri á stað sem
Blönduós þegar hún fæst
á staðinn. Tímanum sem
tekur að keyra sjúkling
til Sauðárkróks í flug, er
betur varið í að keyra til
móts við þyrlu suður ef
um þann alvarleika er
að ræða. Gallinn er sá
að oft hefur ekki komið
í ljós fyrr en of seint að
vakthafandi flugmenn
treysta sér ekki, eða
vilja ekki af einhverjum
orsökum, lenda á
Blönduósi og þá er of
seint að hætta við. Það
eru flugmenn hvers flugs
sem ráða hvar er lent.
Ég hef svolitla skoðun
á stýringu landsins og
finnst að þar megi gera
betur. Upp til hópa er
þetta eflaust ágætis fólk
sem vill öllum og landinu
vel en hefur því miður,
að mér virðist, tæpa
getu til. Allt of mikið er
um eitthvert þras og
kjaftæði sem engum er
til gagns og bara til þess
fallið að fólk missir trú á
hinum ýmsa málsstað.
Mér finnst að banna ætti
gersamlega með öllu
þetta takmarkalausa flæði
upplýsinga í fjölmiðla
þar til mál eru afgreidd
og niðurstaða kynnt. Mér
finnst margt þetta fólk
algerlega búið að tapa
virðingu almennings með
tómu rugli og málþófi
þar sem engin virðing er
borin fyrir málsstaðnum
eða því starfi sem það var
kosið til. Mér finnst einnig
í alvörunni að þetta fólk
sem kosið er til þess að
stýra þessu landi og þjóð,
geti bara alveg drullast til
þess að vera í jakkafötum
með bindi og í kjólum,
Rúnar Örn. AÐSEND MYND
eftir kyni. Því það Á að
vera munur á þeim sem
stjórna landinu og þeim
almenna borgara sem
gerir það ekki. Ef þetta
fólk getur ekki hundskast
til þessa, finnst mér það
einfaldlega ekkert hafa
inn í ráðahús landsins
að gera. Fólki sem mætir
í peysu eða stendur í
pontu, gjammandi hálf
skammyrt einhverja
þvælu, jafnvel með
jakkann á handleggnum,
ætti umsvifalaust að vísa
á dyr og skrá fjarverandi
(til launalækkunar). Það
er einnig galið að hver
sem með tárum eða
annars konar brögðum
kemur sér í hóp þessara
63 aðila sem stjórna,
kemst upp með að standa
hálfpartinn á orginu aftur
og aftur eins og frekur
krakki, skammandi allt
og alla, skuli ekki vera
gert að hundskast heim
til sín og koma bara aftur
á morgun (launalaus á
meðan). Virðingu fyrir
náunganum og sér
eldri fer virkilega aftur í
landinu og bara almenn
virðing einnig og hefur
gert um of langa hríð.
Þarna í ríkisstjórninni
skulum við byrja og
innleiða svo í fólkið í
landinu. Flestum ef ekki
öllum gengi betur í sínum
störfum ef vinnufriður
fengist. Vinstri sinnuðum
líka.
Ég hef verið á þeirri
skoðun að fækka
eigi ráðamönnum um
allavega helming sem
fengju til viðbótar laun
hinna. Þá kannski gæfu
kost á sér fleiri alvöru
einstaklingar til að
stjórna. Í dag hafa þeir
það mikið betra í öðrum
störfum og gefa því ekki
kost á sér.
Jæja, þetta var nú ekkert
sérvalið efni, heldur
frekar pælingar líðandi
stundar svo ég gæti
haldið endalaust áfram
en læt staðar numið.
- - - -
Ég skora á Jón Kristófer
á Hæli að koma með
næstu orð.
Góðar stundir.
4 04/2023