Feykir - 25.01.2023, Blaðsíða 8
°°°
Heilir og sælir lesendur góðir.
Það er Ingubjörg Tómasdóttir frá Brenni-
borg í Lýtingsstaðahreppi sem er höf-
undur fyrstu vísunnar að þessu sinni.
Mun hún trúlega ort upp úr 1960. Er hún
send til Jóns Jónssonar, sem þá starfaði í
mjólkursamlagi KS á Sauðárkróki.
Mun tilefni hennar það að einhver vafi
mun hafa verið um hvaða gæði mjólkin
frá því öfluga samlagi hafði að geyma.
Undarlegt er að mér finnst
ef enginn fær að vita,
hvaða mjólk er kannski þynnst
né hvað er mikil fita.
Talsverð umræða hefur nú undanfarið
verið um væntanlegar virkjanir. Kemur
þar hver vankahausinn á eftir öðrum
og mótmælir þeim nauðsynlegu fram-
kvæmdum. Þorgeir Magnússon er höf-
undur að þessari:
Sumar ár má aldrei virkja
eða stífla gil.
Sumir skyldu ekki yrkja
aðeins vera til.
Talsverð umfjöllun hefur verið nú í
vetur um þá fávisku sem kölluð er
fótbolti. Þórður Júlíusson er víst einn af
aðdáendum þeirrar iðju. Hann yrkir:
Magnaður er þessi Messí.
Marksparki er hann sko hress í.
Sá knattspyrnukall
er kannski svo snjall
því nafni hans finnast 2 s í.
Allir vísnavinir vita trúlega um þann
afkastamikla Guðmund Arnfinnsson.
Tvær ágætar vísur koma hér eftir hann:
Ungu skáldin eðal góð
um allt sem heitið getur,
yrkja í frjálsu formi ljóð
og færa þau í letur.
Eldri skáldin eðal fín
auðga vísna sjóðinn,
yrkja um hesta, ást og vín
upp á gamla móðinn.
Skömmu fyrir jól fréttist af öflugum heim-
ilisiðnaði þeirra hjóna í Víðimýrarseli.
Að mér setur engan beyg
eða nokkra krísu.
Konan hnoðar kökudeig
karlinn gerir vísu.
Einhverju sinni er Jón átti leið til
Akureyrar og horfði á fjallið Kaldbak
handan fjarðarins verður þessi vísa til:
Væna skafla vetur bjó
vítt um lendur jarðar.
Lít ég Kaldbak krýndan snjó
konung Eyjafjarðar.
Í suðvestan strekkingi og frosti, 20.
janúar 2019, verður þessi til:
Vantar sól og víða skjól
veðrast ból hjá flúðum.
Vetrargjólu vindaról
vefur hólinn dúðum.
Vísnaþáttur 824
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is
Næstu vísu tileinkar Jón 22. mars 2019.
Bjartasta vonin er þá birtan sem ört vex.
Krenkir lýðinn kuldatíðin
kafaldshríðin eyðir ró.
Rísa á fætur ránar dætur
rökkrið lætur völdin þó.
Þegar 25. febrúar 2019 gengur í garð á
Skörðum er allt í einu sunnlensk vorblíða
í kortunum með hita á mælinum í Selinu.
Góða veðrið sýnir sig
sæmdar búið dáðum.
Snjórinn horfinn, hitastig
helst í fjórum gráðum.
Ein vísa kemur hér í viðbót eftir Jón:
Náttúran er indæl öll
ís á þúfnakollum.
Lít ég úti fönnug fjöll
og freraskán á pollum.
Þórarinn Þorleifsson, sem oftast var
kenndur við Skúf í Norðurárdal, er
höfundur að þessari:
Orðin verða oft sem ský
elt af vindablaki.
En það er stundum ylur í
einu handartaki.
Pétur Stefánsson mun vera höfundur að
þessari:
Kuldinn hér við Atlantsál
í mér magnar hrollinn.
Færir manni frið í sál
fyrsti kaffibollinn.
Ágæt hringhent vísa kemur hér næst
eftir Pétur:
Sýnir ellin ekkert slig
álög hnellin þylur.
Andinn hellist yfir mig
eins og fellibylur.
Sá góði hagyrðingur Davíð Hjálmar mun
einhverju sinni hafa gengið á Kerlingu,
sem mun vera talið með hæstu fjöllum í
byggð hér á Norðurlandi. Þangað kom-
inn yrkir hann svo:
Takmarkinu tókst að ná
með töf við nokkra staði.
Kerlingu nú er ég á
í einu svitabaði.
Einhverju sinni mun Davíð Hjálmar hafa
heyrt af svokallaðri fuglatalningu um
vetur.
Við Hvalfjörð sá Filippus fálka
og fýl, þar var teista og álka,
hann sá dúfu hjá Þyrli
og dáðist að smyrli
en datt fyrir björg, það var hálka.
Fleira kemst ekki á dagskrá þessa
þáttar, og veriði þar með sæl að sinni.
Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
Nú nýverið gaf Króksarinn Malen Áskelsdóttir út sína
fyrstu plötu, Back Home, og er hægt að hlýða á hana á
Spotify. Malen er næstelst dætra Völu Báru Valsdóttur og
Áskels Heiðars Ásgeirssonar. Lögin eru lauflétt og grípandi,
oftar en ekki lágstemmt kántrýskotið popp en hún samdi
lög og texta yfir þriggja ára tímabil, frá 2019 og fram í árs-
byrjun 2022. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir Malen.
Hvernig semur þú lög og texta? „Það er mjög misjafnt
hvernig ég sem lög og mjög misjafnt hversu vel það gengur
að semja þau - stundum koma þau hratt en stundum ekki
og þá jafnvel læt ég það sem er komið í friði í einhvern
tíma og skoða það svo aftur seinna. Þegar ég er fljót að
semja lag þá er ég yfirleitt að semja laglínuna og textann á
sama tíma. Stundum sem ég laglínuna á undan en þá þarf
ég yfirleitt að leggja mig mikið fram við að semja texta sem
mér finnst passa.“
Um hvað fjalla textarnir? „Ég held að fólk túlki alltaf texta
á mismunandi hátt, hugsi þá út frá sér og sinni reynslu. En
í stuttu máli myndi ég segja að lögin á plötunni fjalli um
ástina en frá alls konar sjónarhornum.“
Hverjir sjá um undirleik og upptökur á plötunni? „Mitt
fyrsta lag tók ég upp hjá Stefáni Erni og Reynir Snær
spilaði á gítar. Svo fórum við Reynir að vinna meira saman,
ég sendi honum alls konar demo og við tókum fyrst upp
lagið All The Time og gáfum út. Söngurinn í því lagi er
tekinn upp hjá Eyþóri Inga. Ég tók upp þrjú lög í viðbót hjá
Reyni og hann, ásamt Bergi Einari og Magnúsi Jóhanni,
hjálpuðu mér að útsetja og spila inn á þau. Svo kynntist ég
öðrum skemmtilegum pilti sem heitir Baldvin Hlynsson
og endaði á því að taka upp tvö lög á plötunni hjá hon-
um. Sólrún Mjöll, Arnar Freyr og Halldór Sveinsson
spiluðu einnig inn á plötuna.“
Ætlar að halda kántrýtónleika í ár
Malen Áskelsdóttir var að gefa út plötuna Back Home
Malen. MYND AÐSEND
Hvaða tónlist höfðar helst til þín? -Ég hlusta á mjög
mismunandi tónlist. Popp, country, rokk, hiphop, rapp,
folk – þetta er allt skemmtilegt, fer bara eftir því í hvernig
stuði ég er. Þegar kemur að því að semja þá hefur Taylor
Swift haft mikil áhrif á mig. Einnig Kacey Musgraves, Lizzy
McAlpine, Emilíana Torrini…og ég gæti haldið áfram í
allan dag.
Ætlarðu að fylgja plötunni eftir á einhvern hátt? „Ég
stefni á að halda country-tónleika í Skagafirði á árinu. Þar
mun ég flytja lög eftir mig og ábreiður og verð með hóp af
flottu tónlistarfólki með mér. Svo held ég vonandi áfram
að gigga eitthvað. Ég hef ekki mikið verið að setja mér
langtímamarkmið, frekar að plana bara næsta skref sem
ég vil taka, veit ekki hvort það sé skipulagsleysi eða ég að
vera góð í núvitund,“ segir Malen og hlær.
Hún segir að það sé mjög gaman, en líka scary, að koma
einhverju frá sér sem maður hefur skapað. „Að opna sig og
semja lög um tilfinningarnar sínar og leyfa svo öllum að
heyra lögin er svolítið eins og að leyfa öllum að lesa
dagbókina þína. En ég er búin að vera mjög dugleg að æfa
mig í því að hlusta ekki á egóið þegar það fer að láta mig
efast um sjálfa mig. Það er allt miklu léttara þegar ég leyfi
mér að vera ég sjálf og svo finnst mér alltaf koma betur í
ljós að þetta skiptir ekki neinu máli – það gerist ekkert ef ég
klúðra einhverju uppi á sviði eða gef út lag sem einhver
fílar ekki. Svo ég tek undir þessa klisju og hvet alla til þess
að reyna að hætta að pæla í hvað öðrum finnst. - Mig
langar líka að þakka fyrir æðislegar viðtökur. Mér þykir
mjög vænt um öll fallegu orðin sem ég er búin að fá um
plötuna,“ segir Malen að lokum. /ÓAB
8 04/2023