Feykir - 25.01.2023, Blaðsíða 12
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
04
TBL
25. janúar 2023 43. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981Stórmót ÍR fór fram í Laugardalshöll um helgina, það
26. í röðinni, og var fjölmennt líkt og áður en yfir 500
keppendur frá 28 félögum voru skráðir til keppni.
Keppt var í fjölþraut barna 10 ára og yngri og í hefð-
bundnum greinum í öllum aldursflokkum 11 ára og
eldri. Fjölmargir keppendur frá UMSS og USAH tóku
þátt og tólf þeirra náðu á verðlaunapall.
Það má með sanni segja að hinn 11 ára gamli
íþróttamaður frá Sauðárkróki Guðni Bent Helgason
hafi komið séð og sigrað því hann sigraði í öllum þeim
greinum sem hann tók þátt í en hann keppir undir
merkjum UMSS. Í kúluvarpi kastaði hann 8,73 m,
sveif 4,1 metra í langstökki og 1,42 metra í hástökki,
hljóp 60 metrana á 9,03 sekúndum og 600 metrana á
1:53,34 mínútum og stóð uppi sem sigurvegari í
fimmtarþraut með 4874 stig. Vel gert.
Félagarnir Aron Gabríel Samúelsson og Ísak Hrafn
Jóhannsson, einnig í UMSS, röðuðu sér í 2. og 3. sætið
í fimmtarþraut pilta, 12 ára, en Aron endaði í öðru
sæti í þremur greinum, í langstökki 4,23 m, hljóp 60
metrana á 9,07 sekúndum og 1:54,46 mínútum í 600
metra hlaupi.
Ísak Hrafn var einnig öflugur en hann náði fyrsta
sætinu í 600 metra hlaupinu á tímanum 1:54,20 og
tvisvar steig hann á pall til að taka við bronsinu, annars
vegar í 60 metra hlaupi með tímann 9,17 sek og í
fimmtarþrautinni eins og áður segir.
Í 600 metra hlaupi 13 ára pilta landaði Friðrik Logi
Haukstein Knútsson bronsverðlaunum er hann rann
brautina á 2:02,32 mínútum.
Hafþór Ingi Brynjólfsson sté tvisvar á pall í 13 ára
hópnum en sín hver bronsverðlaunin hlaut hann að
launum fyrir þrístökk upp á 7,93 metra og 200 m
hlaup, 31,54 sekúndu.
Magnaður árangur
keppenda UMSS og USAH
Fjölmennt Stórmót ÍR
Valdimar Logi Guðmannsson USAH sigurvegari í þrístökki 13 ára pilta
en honum á hægri hönd er Freyr Ingvarsson KR sem lenti í þriðja
sæti og á vinstri hönd Hafþór Ingi Brynjólfsson UMSS sem landaði
bronsinu. MYND AF FB-SÍÐU FRJÁLSÍÞRÓTTADEILDAR HVATAR
Öflugir Húnvetningar
Húnvetningar voru einnig öflugir en sjö náðu sér í
medalíur á mótinu undir merkjum USAH. Valdimar
Logi Guðmannsson var atkvæðamestur þeirra en hann
gerði sér lítið fyrir og krækti í þrenn gullverðlaun og
þrenn silfur. Gullið fékk hann fyrir stökkgreinarnar;
hástökk 1,53 m, langstökk 4,99 m og þrístökk pilta 8,90
m. Annað sætið var hans í 60 metra hlaupi þar sem hann
skeiðaði brautina á 8,32 sekúndum, 200 metrana á 28,27
og kúlunni varpaði hann 8,41 metra.
Þá náði Adam Nökkvi Ingvarsson þriðja sætinu í
þrístökki pilta 14 ára með stökk upp á 8,83 metra.
Lárey Mara V. Sigurðardóttir 12 ára gerði einnig gott
mót en hún vann sér inn ein silfurverðlaun þegar hún
kastaði kúlu 8,04 metra og þrenn bronsverðlaun; í há-
stökki þegar hún sveif yfir 1,22 m og 3,76 m í langstökki.
Árangur Láreyjar skilaði henni bronsi í fimmtarþraut.
Harpa Katrín Sigurðardóttir náði einnig góðum
árangri 14 ára stúlkna en hún sigraði í þrístökki með
stökk upp á 9,41 metra, annað sætið var hennar í
langstökki 4,69 m og að lokum hafnaði hún í þriðja sæti
í 300 metra hlaupi á tímanum 47,80 sekúndur.
Þrjár stúlkur í viðbót nældu í bronsverðlaun þær
Katrín Heiða Finnbogadóttir, 11 ára, í 60 metra hlaupi
með tímann 10,18 sek. og jafnöldrurnar Arney Nadía
Hrannarsdóttir sem varpaði kúlu 7,42 metra og Hrafney
Lea Árnadóttir sem hljóp 600 m á 2:07,78 mínútum. / PF