Þroskaþjálfinn - 2003, Qupperneq 22

Þroskaþjálfinn - 2003, Qupperneq 22
Er þvingun alltaf augljós? BÓKIN Disability/Postmodernity; Embodying disability theory Nei, þvingun og valdbeiting getur ver- ið falin eða jafnvel ómeðvituð. Má þar nefna andlega þvingun t.d. að sækja tómstundir með þeim sem manni líkar ekki við og jafnvel búa með þeim . Hafa starfsmenn í vinnu inni á heimilinu sínu sem manni líkar ekki við. Er verið að horfa á dagskrá í sjónvarpi sem starfsmað- ur eða heimilisfólk hefur áhuga á? Sama á við um útvarpshlustun eða tónlist af disk, hver velur? Hvernig er þessi ákvörðun tekin? Hvernig er umgengnin inni á heimilum fólks sem er vinnustaður ann- arra? Handavinna, bókalestur tölvuleikir eru allt verðug áhugamál meðan þau eru gerð með hagsmuni íbúa og heimilisins í huga. Alla þessa þætti, ásamt fjölmörgum öðrum, þarf fólk sem starfar á heimilum annarra m.a.að spyrja sig að til að verða meðvitað um hverra hagsmunir ráða. Virðing fyrir einstaklingnum skal höfð að leiðarljósi Eg vildi tala um þetta hér því vitað er að þroskaþjálfar eru ekki starfandi alls staðar þar sem fólk með fötlun býr og því vil ég ljúka þessu erindi á að segja að það er mín skoðun að til þurfi að vera reglur eða starfsrammar um inngrip/íhlutun í líf fólks í daglegu lífi. Ekki bara fyrir þroska- þjálfa heldur alla þá er starfa samkvæmt lögum um málefni fatlaðra. Opna þarf umræðu um þessa þætti starfsins því oft er það umræðan sem heldur fólki vakandi í starfi sínu með öðru fólki. Það er hvorki hægt né eftirsóknar- vert að setja reglur um alla hegðun og samskipt fólks, því þarf að leggja áherslu á mikilvægi opinnar og vakandi urnræðu. Ég lít á vinnu okkar á þessum starfsdög- um þroskaþjálfa sem frumkvöðlavinnu og vera hluta af því að við beitum fagþekk- ingu okkar í því skyni að bæta lífsskilyrði og lífsgæði skjólstæðinga okkar sbr. Siða- reglur þroskaþjálfa og Lög um málefni fatlaðra nr. 59/1992. Ferilskrd: HróSný úskrifaðist úr Þroskapjálfaskóla Islands 1989. 1989-1990: Þroskaþjálfaskóli Islands táknmál- stúlkur. 1989-1997: Landspítalinn í Kópavogi, áður Kópavogshœli. 1997 hóf stöf á Svœiíisskrifitofu málefha fatl- aðra í Reykjavík fyrst sem yfirþroskaþjálfi og síðan í sept ‘97 sem forstöðuþroskaþjálfi. Veriðfulltrúi í Siðanefnd Þ.í. frá 1997. í þessari grein verður lauslega fjallað um nýlega útgefna bók sem ber heitið Disability/Postmodernity; Embodying disa- bility theory og er ritstýrt af Mairian Cor- ker og Tom Shakespeare. I byrjun verður fjallað um hvernig bókin er byggð upp og svo verða teknir fyrir nokkrir punktar úr bókinni sem þóttu athyglisverðir. Bókinni er skipt upp í 17 kafla og að henni koma 23 fræðimenn sem eru meðal þeirra fremstu varðandi fötlunarfræði í Bandaríkjunum, Kanada, Bretlandi, Sviss, Japan, Indlandi, Astralíu og Jórdaníu. Köflunum 17 má skipta í þrjá hluta þar sem bókin byrjar á útskýringu á fræðilegri yfirsýn, þar sem sérstaklega er horft á fyr- irbærafræði, líkamann og þá heildarhug- mynd og hugtök sem snúa að mismun og kennimörkum einstaklinga. Annar hlut- inn fjallar aðallega um menningu, fagur- fræði, sögu, kvikmyndir, byggingarlist og hönnun en seinasti hlutinn kemur inn á málefni er varða þjóðfélagslegan vana, umræður varðandi sjónarhól barna með fötlun, kynímynd og að lokum um brjál- æði og geðrænar þjáningar. Ritstjórar bókarinnar söfnuðu saman greinunum í bókina með það að mark- miði að stuðla að þróun í fötlunarrann- sóknum með því að kanna hvað post- modernist (nútímastefna) og post-struct- uralist (nútíma-formgerðarstefna) fræði- mennska getur leitt af sér og stuðlað að í skilningi okkar á fötlun og margvíslegri reynslu einstaklinga með fötlun. Eins og fram kemur í 1. kafla bókar- innar vilja þau Tom Shakespeare og Carol Thomas, einn höfundur bókarinnar, meina að í framtíðinni verði aðal áskorun- in í rannsóknum á sviði fötlunar sú að áfram verði hægt að hagnast af nýjum fræðilegum verkum, áheyrn haldist meðal einstaklinga með fötlun og haldið verði áfram að fjalla um róttæk jaðarmál. Mark- miðið með útgáfu bókarinnar er því að hvetja þá sem starfa við fötlunarrannsókn- ir til að horfa út á við og hafa hugfast að takmarkið er alltaf það sama. Stuðla að frelsi einstaklinga með fötlun, hverjir sem þeir eru og hvað svo sem þeir telja að frelsi feli í sér og leiða þannig til þróunar á sam- félagi fyrir alla. 15- kaflinn nefnist De-gene-erates, Replicants and Other Aliens: (Re) defming Disability in Futuristic Film en í honum er rætt um hvernig fatlanir birtast í fjölmiðl- um. Það er áhugavert hvernig höfundur kaflans, Johnson Cheu, veltir upp ýmsum spurningum og bendir réttilega á hversu mikil áhrif vinsælir fjölmiðlar hafa á við- horf fólks. Það er í rauninni ótrúlegt hvað margir eru tilbúnir að leggja mikið á sig til að „útrýma“ ummerkjum fatlana. Um leið og myndbönd eins og „Læknið einhverfu núna“ og „Ég mun geta staðið í fæturna aftur, allt er mögulegt“ eru auglýst, hlaupa margir í búðina sannfærðir um að geta hjálpað sínum nánustu. Cheu veltir mikið fyrir sér þeirri hröðu þróun sem á sér stað í læknavísind- um og erfðafræði og þeirri hugmynda- fræði sem gætir á þeim vettvangi. Höf- undurinn bendir á að með sífellt betri þekkingu og rannsóknum á genum, grein- ingu á gölluðum genum og sífellt betri tækni til að gera aðgerðir á fóstrum verði reynt að gera fötlun „gamaldags". Þannig verða hugsanlega sigtuð út óæskileg gen og eins verða „gölluð“ fóstur löguð áður en þau fæðast. I framtíðinni muni því hugsanlega verða hægt að stuðla að því að einungis komi til með að fæðast fullkom- in börn í þá draumaveröld sem fólk vill lifa í.

x

Þroskaþjálfinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.