Þroskaþjálfinn - 2003, Blaðsíða 27

Þroskaþjálfinn - 2003, Blaðsíða 27
Þroskaþjálfar á Suðurlandi Efri röð frá vinstri: Kristín Björk, Nína Edda, Hrönn, Margrét og Lilja. Fremri röð frá vinstri: Halla Steinunn og Osk. Þegar útgáfuráð blaðsins óskaði eftir greinarkorni frá þroskaþjálfum á Selfossi var ákveðið að ná saman hópnum til að raddir oldcar flestra myndu heyrast. Veru- lega hefur fjölgað í þroskaþjálfastéttinni á síðustu árum hér á Selfossi. Erum við nú tólf þroskaþjálfar (allar kvenkyns) starf- andi á einn eða annan hátt með fólki með fötlun. I flestum tilvikum erum við eini þroskaþjálfmn á vinnustaðnum. Loksins þegar hægt var að finna fund- artíma sem hentaði fjölbreyttum vinnu- tíma þroskaþjálfa kont í ljós að rnikil þörf var á að ræða saman og fá útrás fyrir hin ýmsu málefni. Við fórum um víðan völl, fengum fullt af hugmyndum en okkur fannst fyrst og fremst frábært að hittast og finna fyrir þeim gagnkvæma skilningi sem var á milli okkar. Við gátum talað saman á „okkar tungumáli“. Efst í huga okkar allra á þessum fyrsta fundi var reynslan af því að vera eini þroskaþjálfinn í starfs- mannahópnum. Þar sem þetta hugðarefni brann mest á okkur fannst okkur kjörið að fjalla um kosti þess og galla í greininni. Það hefur mikil áhrif á starf viðkom- andi þroskaþjálfa að hann er eini þroska- þjálfmn á vinnustaðnum. Mikið af hans tírna fer í að sannfæra samstarfsfólk um ágæti hinna ýmsu aðferða og verkefna sem nauðsynlegt er að framfylgja til þess að hagur skjólstæðinganna sé ávallt í fyrir- rúmi. Þroskaþjálfastarfið hefur margvís- legar hliðar eftir starfsvettvangi og algengt er að þroskaþjálfar út á landsbyggðinni Iendi í stjórnunarstöðum snemma á starfs- ferlinum. Þegar þroskaþjálfinn er í samstarfi við aðrar fagstéttir sem byggja á öðrum grunni reynir á að þroskaþjálfinn skil- greini sig sem fagmann. Þá er það spurn- ingin hvaða áhrif einstaklingurinn inn í fagmanninum hefur á þá sýn sem samfé- lagið fær á stéttina. Það fylgir því mikil ábyrgð að vera þroskaþjálfi. Við þurfum að vinna í miklu þverfag- legu samstarfi og er það mjög gefandi og veitir ákveðna vídd í okkar eigin fag- menntun. Við erum jafnframt meðvituð um að það er mikill styrkur að vera í sam- starfi með öðrum þroskaþjálfum og sökn- um þess oft. Það er hins vegar góð og krefjandi reynsla að vera einn á vinnustað því það reynir verulega á okkur sem fag- menn. Við verðum að treysta á eigið inn- sæi, bera ábyrgð og sýna gott fordæmi. Nauðsynlegt er fyrir alla þroskaþjálfa að finna leiðir til að styrkja sig í starfi. Þroskaþjálfi sem starfar einn þarf virkilega að huga að slíkri styrkingu til að viðhalda fagmennsku sinni. Þroskaþjálfastéttin er bjartsýn og hefur trú á því að geta haft áhrif í samfélaginu. Sameiginlegur bakgrunnur okkar kennir okkur réttsýni gagnvart öllu fólki. Allir eiga skilið tækifæri til að sanna sig. Þessi sýn okkar nýtist mjög vel í fjölbreyttum starfsvettvangi þroskaþjálfa bæði gagnvart skjólstæðingum okkar og því samstarfs- fólki sem þroskaþjálfinn starfar með. Þess vegna þurfum við þroskaþjálfar að vera dreifðir í samfélaginu. Fundir okkar vegna þessarar greinar gerðu kraftaverk. Við áttuðum okkur á því hversu öflugur hópur við getum verið og í raun hve þörfin er mikil á því að styðja og styrkja hver aðra. Vonandi marka þeir upphafið að fagdeild þroskaþjálfa á Suður- landi. Við skorum á þroskaþjálfa á Akureyri að skrifa í Gestapenna næsta blaðs þroska- þjálfans. Með kveðju, Halla Steinunn Hinriksdóttir forstöðu- þroskaþjálfi Svœðisskrifstofa Suðurlands Hrönn Erlingsdóttir þroskaþjálfi sérdeild Vallaskóla Kristín Björk Jóbannsdóttir þroskaþjálft sérdeild Sandvíkur/Vallaskóli Lilja Björg Guðjónsdóttir deildarþroska- þjálfi Svœðisskrifstofa Suðurlands Margrét Arnadóttir þroskaþjálfi Sólvallaskóli/Vallaskóli Nína Edda Skúladóttir þroskaþjálfi Svaðisskrifstofa Suðurlands Ósk Unnarsdóttir forststöðuþroskaþjálfi Svæðisskrifstofa Suðurlands

x

Þroskaþjálfinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þroskaþjálfinn
https://timarit.is/publication/1930

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.