Þroskaþjálfinn - 2003, Page 24
Inngangur
I þessari grein mun ég segja frá alþjóð-
legri ráðstefnu sem ég sótti í Melbourne í
Astralíu í september síðastliðnum. Einnig
verður stuttlega fjallað um Inclusion
International - alþjóðlegu samtökin sem
stóðu fyrir ráðstefnunni.
Inclusion International
Inclusion International stóð fyrir ráð-
stefnunni í samvinnu við áströlsku hags-
munasamtökin The National Council on
Intellectual Disability (NCID) og Victor-
ian Advocacy League for Individuals with
Disability (VALID) sem voru gestgjafar
ráðstefnunnar og sáu um skipulagninguna
heima fyrir. Inclusion International eru
alþjóðleg samtök/netverk þeirra sem vinna
að bættu lífi þeirra 60 milljóna manna
sem eru með þroskahömlun í heiminum.
Þetta eru ein af stærstu alþjóðlegum sam-
tökum í málefnum fatlaðra, sem ekki eru
á vegum opinberra aðila. I Inclusion
International eru um 200 félagasamtök frá
115 löndum, þ.m.t. frá Islandi en Lands-
samtökin Þroskahjálp eru aðildarfélag.
Samtökin vinna með Sameinuðu þjóðun-
um, þeirra umboðsskrifstofum, opinber-
um stofnunum og samtökum og eru
málsvarar þess að málefni og réttindi fólks
með þroskahömlun séu tekin með í allri
stefnumörkun, bæði innan hvers lands,
svo og á alþjóðlega vísu. Þau styðja félög-
in í praktískum málum, skipuleggja al-
þjóðleg málþing og ráðstefnur, miðla
þekkingu og vekja athygli á og berjast
Soffía Lórusdóttir
gegn hvers kyns misrétti. Þau sinna út-
gáfustarfsemi sem miðar að því að hjálpa
foreldrum og fagfólki í viðleitni sinni til
aukinnar vitundar. Inclusion
International, ásamt einstökum meðlim-
um þess stjórna starfi í þróunarlöndunum,
s.s. ráðgjöf og stuðningi til að efla foreldra,
sjá um fjármögnun og stjórnun verkefna.
Nánari upplýsingar um framantalin
samtök má finna á heimasíðu
http://www.dice.org.au ,
http://203.108.4.104Aviccid og
http://www.inclusion-international.org
en þar má einnig finna tengingar inn á
aðrar gagnlegar heimasíður.
Markmið ráðstefnunnar
Inclusion International heldur alþjóð-
lega ráðstefnu á fjögurra ára fresti. Að
þessu sinni var hún haldin í Melbourne í
Astralíu sem er önnur stærsta borg lands-
ins, en þar búa 3.4 milljónir manna af ótal
þjóðernum. Ráðstefnan, sú þrettánda í
röðinni, var helguð fjölskyldum fatlaðra
barna og baráttu fóllcs með þroskahömlun
fyrir mannréttindum og lýðréttindum.
Heiti ráðstefnunnar var sótt til þriðju
greinar mannréttindayfirlýsingar Samein-
uðu þjóðanna: „Allir menn eiga rétt til lífs,
frelsis og mannhelgi". Yfirþemu ráðstefn-
unnar byggðust á þessum þrem réttind-
um, þ.e. Iíf, frelsi og mannhelgi, sem voru
útfærð nánar á eftirfarandi hátt: Réttur til
lífs sem felur í sér rétt til þátttöku, mennt-
unar, velgengni, áskorunar og breytinga.
Réttur til frelsis sem felur í sér rétt til að
velja, að stjórna, valds, sjálfsálcvörðunar og
aðgengis. Réttur til mannhelgis sem fel-
ur í sér rétt til öryggis, stolts, trausts,
vellíðunnar og þæginda.
Markmið ráðstefnunnar var að: Fagna
áföngum sem náðst hafa, fólk með
þroskhömlun hefur víða náð árangri við
að ávinna sér aukin mann- og borgararétt-
indi. Berjast gegn hindrunum/ógnun-
um, fóllc með þroskahömlun býr enn við
alvarlega ógnun við líf, frelsi og mann-
helgi. Deila árangri, fólk með þroska-
hömlun, fjölskyldur þeirra og stuðnings-
fólk finnur oft áhrifaríkar leiðir til að
vinna gegn aðgreiningu, lcúgun og mis-