Ljósmæðrablaðið

Ukioqatigiit

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2023, Qupperneq 5

Ljósmæðrablaðið - 01.06.2023, Qupperneq 5
ljósmæðrablaðið ljósmæðrablaðið 1. tölublað · 101. árgangur · júlí 2023 98 1. tölublað · 101. árgangur · júlí 2023 verk á forsíðu Freyja höfundur ritstjórn Hildur Hákonardóttir er fædd árið 1938 í Reykjavík. Hún stundaði nám í Menntaskólanum í Reykjavík frá 1953­55, en fluttist til Bandaríkjanna árið 1956 ásamt manni sínum, þar sem hún bjó næstu sjö ár og var þar húsmóðir og ól upp börnin sín tvö. Eftir heimkomu lagði Hildur stund á myndlistarnám bæði hérlendis og erlendis og var auk þess kennari og skólastjóri við Myndlista­ og handíðaskóla Íslands. Hildur Hákonardóttir hefur á löngum starfs ferli sínum tekið á málefnum samtímans og kynja pólitík. Hún hefur nýtt til þess fjölbreytta miðla en aðallega vefnað meðal annars í því augnamiði að efla sögu kvenna. Þá eru starfsaðferðir hennar í gegnum tíðina samofnar þeim málefnum sem efst eru á baugi í okkar samtíma, einkum umhverfis­ og jafnréttis ­ mál. Hildur er einnig mikilvirkur ræktandi og hefur velt fyrir sér margvíslegum kerfum sem er að finna í heiminum, bæði manngerðum og lífrænum. Í seinni tíð hefur Hildur einbeitt sér að rit­ störfum, bæði frumsömdum og þýðingum. Meðal þekktra bóka hennar eru Ætigarðurinn (2005), Blá­ lands drottningin (2008), þýðing hennar og Elísabetar Gunnarsdóttur á Walden. Lífið í skóginum eftir H. D. Thoreau (2017 og Hvað er svona merkilegt við það að vera biskupsfrú? (I–II, 2019–2021). Hildur hlaut Heiðurslaun listamanna í byrjun árs 2023 en slík laun eru veitt fyrir ævistarf. Verkið á forsíðu sem Hildur veitti Ljós mæðra­ blaðinu góðfúslegt leyfi til að birta er síðasta verkið sem Hildur óf áður en hún lenti í slysi sem varð til þess að hún gat ekki lengur ofið í vefstól. Verkið er gert árið 1989 og heitir eftir Freyju, gyðju ástar og frjósemi. Við sjáum hana þar sem hún leikur sér í vatni. Hildur segir að vatnið hafi orðið sér til heilunar eftir slysið, en að verkið tengist einnig leit hennar að guðdóminum og sé myndræn framsetning á gyðjum hins forna norræna siðar. Ekkert sýnir raunar að konan á myndinni sé gyðja utan skarður máninn en ef hún er mannleg kona þá eru eiginleikar gyðjunnar henni samofnir. Í blaðinu birtum við einnig sögubrot eftir Hildi um lækningamátt vatnsins. Sagan kom upp í huga hennar þegar ritnefnd Ljósmæðrablaðsins fór þess á leit við hana að vera listakona blaðsins. Við þökkum Hildi Hákonardóttur hjartanlega fyrir þann heiður að vera með okkur á vegferð ljósmæðra. Heimild Sigrún Inga Hrólfsdóttir og Guðmundur Oddur Magnússon. (2023). Rauður þráður, Hildur Hákonardóttir. Kjarvalsstaðir, Reykjavík. Hildur Hákonardóttir. Mynd eftir Ástu Kristjáns- dóttur, 2022. Brjóst II, 1972. Í eigu Borghildar Óskarsdóttur (birt með leyfi).

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.