Læknablaðið - 01.05.2023, Side 11
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 235
R A N N S Ó K N
Freydís Halla Einarsdóttir1
Erla Liu Ting Gunnarsdóttir2
Sunna Lu Xi Gunnarsdóttir2
Elín Metta Jensen1
Sindri Aron Viktorsson2
Inga Lára Ingvarsdóttir3
Katrín Júníana Lárusdóttir1
Leon Arnar Heitmann1
Tómas Guðbjartsson1,2
Freydís Halla, Elín Metta, Katrín Júníana og Leon Arnar eru læknanemar.
Aðrir höfundar eru læknar og Tómas prófessor við læknadeild Háskóla
Íslands.
1Læknadeild Háskóla Íslands, 2hjarta- og lungnaskurðdeild, 3svæfinga- og
gjörgæsludeild Landspítala.
Fyrirspurnum svarar Tómas Guðbjartsson, tomasgud@landspitali.is
Greinin barst til blaðsins 30. október 2022,
samþykkt til birtingar 14. mars 2023.
Á G R I P
INNGANGUR
Markmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif offitu á tíðni
skamm tíma fylgikvilla og langtímalifun eftir lokuskipti vegna
ósæðarlokuþrengsla.
EFNIVIÐUR OG AÐFERÐIR
Rannsóknin náði til 748 sjúklinga sem gengust undir ósæðarloku-
skipti vegna ósæðarlokuþrengsla á Landspítala 2003-2020.
Sjúklingum var skipt í fjóra hópa eftir líkamsþyngdar stuðli (LÞS):
kjörþyngd (18,5-24,9 kg/m2, n=190), ofþyngd (25-29,9 kg/m2, n=339),
offita (30-34,9 kg/m2, n=165) og mikil offita (≥35 kg/m2, n=54).
Sex sjúklingum með LÞS <18,5 kg/m2 var sleppt við útreikninga.
Upplýsingum um bakgrunns- og áhættuþætti sjúklinga var safnað
úr sjúkraskrám, auk skammtíma fylgikvilla og 30 daga dánartíðni.
Hóparnir fjórir voru bornir saman með tilliti til áðurnefndra
þátta og langtímalifun metin með Kaplan-Meier gröfum og Cox-
aðhvarfsgreiningu.
NIÐURSTÖÐUR
Sjúklingar með mikla offitu voru að meðaltali fjórum árum yngri
en sjúklingar í kjörþyngd, höfðu oftar áhættuþætti hjarta- og
æðasjúkdóma og hærra EuroSCORE II (5,3 á móti 4,4%, p=0,03).
Sjúklingum með mikla offitu blæddi hins vegar minna á fyrstu
24 klukkustundunum en þeim í kjörþyngd (558 á móti 1091 ml,
p <0,001), þeir fengu sjaldnar heilablóðfall (0% á móti 6,4%,
p=0,03), en oftar bringubeinslos (5,6% á móti 2,7%, p=0,04), djúpa
bringubeinssýkingu (3,7% á móti 0%, p=0,04) og bráðan nýrnaskaða
(26,4% á móti 15,2%, p=0,005). Munur á dánartíðni <30 daga og
langtímalifun var ómarktækur milli hópa og LÞS ekki sjálfstæður
forspárþáttur langtímalifunar í fjölbreytugreiningu.
ÁLYKTUN
Árangur sjúklinga sem þjást af offitu og gangast undir lokuskipti
vegna ósæðarlokuþrengsla er góður og skammtíma- og langtíma-
lifun sambærilegar við sjúklinga í kjörþyngd. Offita ætti því ekki að
vera frábending fyrir lokuskiptum við lokuþrengslum.
Áhrif offitu á árangur lokuskipta
vegna ósæðarlokuþrengsla
Inngangur
Ósæðarlokuþrengsl eru algengasti hjartalokusjúkdómurinn
á Vesturlöndum og eru aldurstengd kölkun lokunnar og
meðfædd tvíblöðkuloka langalgengustu orsakirnar.1 Í nýlegri
íslenskri rannsókn, sem byggði á hjartaómskoðun, reyndist
algengi sjúkdómsins 4% hjá einstaklingum yfir sjötugt, en
með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar er ljóst að tilfellum
mun fjölga enn frekar á næstu áratugum.1,2 Helstu einkenni
ósæðarlokuþrengsla eru mæði og brjóstverkur, en þegar ein-
kenni koma fram, og jafnvel fyrr, hefur verið mælt með opnum
ósæðarlokuskiptum þar sem kölkuðu lokunni er skipt út fyrir
lífræna eða ólífræna gerviloku.1 Á síðastliðnum árum hefur ný
meðferð, svokölluð ósæðarlokuísetning, einnig kölluð TAVI-að-
Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is
Hágæða
vinnustólar
Fastus býður upp á mikið úrval af vinnustólum fyrir lækna-, skurð-
og aðrar meðferðarstofur. Áklæði stólanna er með sérstöku
bakteríufráhrindandi efni sem auðvelt er að sótthreinsa og þrífa.
Nánari upplýsingar og ráðgjöf í síma 580 3900