Læknablaðið - 01.05.2023, Blaðsíða 26
250 L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109
F R É T T I R
Bryndís og bráðamóttakan
fá viðurkenningu
„Ég er ótrúlega auðmjúk og þakklát,“ segir Bryndís Sigurðardóttir,
smitsjúkdómalæknir á Landspítala, sem fékk nýlega viðurkenningu sér-
námsgrunnlækna fyrir framúrskarandi kennslu í annað árið í röð. Starfsfólk
bráðamóttökunnar fékk einnig viðurkenningu
■ ■ ■ Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
„Þetta eru kollegar og tilvonandi kolleg-
ar og frábært að finna að þeir kunna að
meta það sem maður gerir með þeim
á deildunum. Þau eru þakklát og ég er
þakklát enda er þetta ekki kennsla eða
kvöl og pína fyrir mér. Mér finnst gaman
að tjá mig og hugsa upphátt,“ lýsir Bryn-
dís Sigurðardóttir um stofugang með
þessum kollegum.
„Það er eðlilegur hluti af vinnunni að
tala upphátt og tryggja að fólkið í kring-
um mig átti sig á því hvað ég ætla að
Jón Kolbeinn Guðmundsson, Finna Pálmadóttir, Hjalti Már Björnsson, Bryndís Sigurðardóttir, Ragnar Pétursson,
Stefanía Katrín J. Finnsdóttir og Inga Sif Ólafsdóttir. Mynd/Gerður Ríkharðsdóttir
Einstaklingar sem tóku sýklalyfið Sta-
klox á ákveðnu tímabili verða skimaðir
fyrir ónæmum sýklum, þurfi þeir að
leggjast inn á sjúkrahús. Samkvæmt
upplýsingum sóttvarnalæknis er nú
þegar skimað fyrir ónæmum sýklum hjá
ákveðnum hópum við innlögn og bæt-
ast því þessir einstaklingar í þann hóp.
Frekari aðgerðir ráðist svo af niðurstöð-
um þeirra skimana og staðan verði metin
eftir þrjá mánuði. Sýklalyfið var innkall-
að vegna fjölónæmra baktería í febrúar.
Lyfjastofnun segir í svari til Lækna-
blaðsins bráðabirgðaniðurstöður benda til
þess að ástæða mengunarinnar í Staklox-
lyfinu sé ófullnægjandi þrif á burstum
gera. Þetta er óverulegt aukaálag á mér,
eiginlega frekar náttúrulegt eðli að tala
mikið og útskýra,“ segir hún og lýsir því
hvernig hún skýtur inn upplýsingum
eða staðreyndum um sýklalyf og sýk-
ingar á stofugöngum.
Spurð hvort kennslan sé ekki dýr-
mæt til að draga fólk að faginu, segir
hún vanta í flestar sérgreinar. „Og við
myndum njóta góðs af fleiri smitsjúk-
dómalæknum. Viðfangsefnunum fjölgar
stöðugt. Nú þegar geisar stríð í Úkraínu
streyma inn lifrarbólgu B- og berklatil-
felli. Þá hefur álagið vegna grúppu A
streptókokka-faraldursins einnig aukið
álag og fleiri veikir sjúklingar legið inni.“
Þá þurfi að huga að breytingum. „Við
viljum fara að taka göngudeildina í gegn
og efla sýklalyfjagjafir í heimahúsum,“
segir hún. „Við þurfum klárlega að bæta
verkferla. Allt krefst þetta mannskapar
og það eru mörg spennandi og skemmti-
leg verkefni.“
Bryndís segir viðurkenninguna mikla
hvatningu. „Já, þetta er hvatning til að
halda áfram og gera það sem ég geri vel
og jafnvel betur. Mér finnst ég aldrei gera
nóg. Ég vil kenna meira, gera meira og
hvetja ungu læknana okkar áfram.“
Skima Staklox-notendur við sjúkrahússinnlögn
sem notaðir eru í framleiðsluferlinu.
Lyfja stofnun segir rannsókn enn í gangi.
Einn einstaklingur hér á landi var
talinn hugsanlega hafa smitast af þessari
fjölónæmu bakteríu sem rekja mætti til
lyfsins. Lyfjastofnun hefur ekki vitneskju
um fleiri tilvik. Stofnunin segir að vel
hafi tekist að stöðva dreifingu lyfsins hér
á landi en samkvæmt markaðsleyfishafa
verði ekki hægt að gera innköllunina
upp að fullu fyrr en rannsóknum hafi
verið lokið.
Lyfjastofnun segir lyfið ekki fara aftur
í umferð hér á landi fyrr en fullnægjandi
niðurstaða fáist í málinu. „Bakterían
sem um ræðir smitast ekki auðveldlega
á milli fólks, veldur ekki sjálfkrafa sýk-
ingu hjá öllum sem fá hana og er, sam-
kvæmt rannsóknum, næm fyrir ýmsum
sýklalyfjum,“ segir í svarinu.