Læknablaðið

Volume

Læknablaðið - 01.10.2023, Page 13

Læknablaðið - 01.10.2023, Page 13
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 441 R A N N S Ó K N væri ekki ákjósanlegur vegna þess hve fáir svarendur voru. Í staðinn völdum við að bjóða upp á lýsandi og sjónræna grein- ingu á niðurstöðum fyrir endanlegt þýði, á sama tíma og við drögum aðeins hæfar ályktanir um yfirþýðið, það er að segja alla mögulega kennara úr sama bakgrunni og kennara við læknadeild. Niðurstöður Hluti 1 – nemendakönnun Á vorönn 2020 voru 305 nemar skráðir í læknisfræði, 168 í BS- hluta námsins og 137 í námi til kandídatsprófs. Allir fengu tölvupóst með boði um þátttöku í rafrænu könnuninni. Svör bárust frá 199 læknanemum, eða 65%. Af þessum 199 voru 88 í BS-hlutanum (52% svarhlutfall) og 111 í námi til kandídatsprófs (81% svarhlutfall). Þegar spurt var hversu margir kennarar á hverju námsári notuðu hermingu sem kennsluaðferð var meðalgildi svara þrír kennarar. Í BS-hlutanum var meðalgildið einn kennari en fjórir í námi til kandídatsprófs, samtals 15 kennarar. Þar sem heildarfjöldi kennara var 150 þá gefa svör nema til kynna að 10% kennara noti hermingu sem kennsluaðferð. Samkvæmt nemum í BS-hlutanum var algengasta hermingaraðferðin sem notuð var staðlaður sjúklingur. Í námi til kandídatsprófs voru fjölbreyttari aðferðir nefndar, þar sem sjúklingaherming með sýndarsjúklingi var mest notuð, þá staðlaður sjúklingur og loks færniþjálfun. Fleiri svör og skilgreiningar má sjá í töflu I. Hluti 2 – kennarakönnun Á vormisseri 2020 voru 150 kennarar skráðir í læknisfræði og allir fengu boð um að taka þátt í rafrænu könnuninni. Svör bárust frá 97 kennurum, eða 65%. Lýðfræðilegar upplýsingar er að sjá í töflu II. Þrjátíu og þrír (39%) svarenda höfðu tekið þátt í hermingu í Tafla I. Hermiaðferðir notaðar við kennslu læknanema, samkvæmt svörum læknanema. Fjöldi (%). Hermiaðferðir notaðar í BS-hluta læknanáms n=88 Hermiaðferðir notaðar í námi til kandídatsprófs n=111 Staðlaður sjúklingur (einstaklingur er þjálfaður í að leika sjúkling) 26 (30) Sjúklingaherming með sýndarsjúklingi (tölvustýrður sýndarsjúklingur sem lítur út og hegðar sér eins og sjúklingur) 40 (36) Færniþjálfun (til dæmis með líkamshlutahermum til að kenna skoðun eða inngrip) 2 (2) Staðlaður sjúklingur (einstaklingur er þjálfaður í að leika sjúkling) 19 (17) Sjúklingaherming með sýndarsjúklingi (tölvustýrður sýndarsjúklingur sem lítur út og hegðar sér eins og sjúklingur) 1 (1) Færniþjálfun (til dæmis með líkamshlutahermum til að kenna skoðun eða inngrip) 18 (16) Sýndarveruleiki (tölvustýrt þrívíddarumhverfi) 0 (0) Sýndarveruleiki (tölvustýrt þrívíddarumhverfi) 4 (4) Tafla II. Lýðfræðilegar upplýsingar um kennara læknadeildar sem tóku þátt í könnun. Heildarfjöldi svara var 97 en ekki svöruðu allir þátttakendur öllum spurningum. Hlutföll eru reiknuð út frá fjölda svara við hverri spurningu. Kyn Fjöldi (%) Útskriftarár úr læknisfræði Fjöldi (%) Karlar 63 (66) 2011-2020 12 (14) Konur 33 (34) 2001-2010 24 (28) 1991-2000 24 (28) Aldur 1971-1990 25 (30) 35-52 ára 42 (44) 53-70 ára 54 (56) Starfsaldur hjá læknadeild >71 ára 0 (0) <5 ár 27 (29) Framhaldsnám 5-15 ár 27 (29) Norðurlönd 45 (52) 16-25 ár 29 (31) Bretland 5 (6) >25 ár 10 (11) Evrópa, annað 3 (3) Aðalkennslustaður Bandaríkin 31 (36) BS-hluti 28 (31) Annað 3 (3) Nám til kandídatsprófs 51 (55) Bæði 13 (14) Tafla III. Kennsluaðferðir, aðrar en herming, sem kennarar við læknadeild nota. Kennsluaðferð Fjöldi (%) Fyrirlestur 69 (78) Kennsla í litlum hópum (kennari vinnur með litlum hópi nemenda) 59 (66) Vinnubúðir (kennslustund sem er stutt og haldin einu sinni til að kenna sérstakt atriði) 29 (34) Kennslubók (eða annað skrifað námsefni) 27 (32) Neminn sem kennari (nemandi kennir samnemendum) 28 (31) Lausnarleitarnám (nemar læra um efni með því að leysa vandamál í hópvinnu) 24 (28) Leiddar hópumræður (kennari leiðir nema í umræðum um afmarkað efni) 19 (22) Rafræn kennsla (að nota raftæki til að nálgast námsefni fyrir utan hefðbundna kennslustofu) 16 (18) Vendikennsla (nemar fara yfir námsefni fyrir kennslustund sem er síðan notað í umræður) 14 (16) Annað 8 (14) Rökræður (nemar fá úthlutað afstöðu til efnis og færa rök fyrir henni) 1 (1)

x

Læknablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.