Læknablaðið - 01.10.2023, Síða 31
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 459
„Við læknar heyrum einkennandi hljóð,
eins og í mónitor, hjartslátt, dagsdaglega
í vinnunni. Mig langaði að koma því
inn í lagið: þessu læknaelementi,“ segir
Victor Guðmundsson læknir og tónlistar-
maður þekktur sem Doctor Victor þegar
hann lýsir stefinu sem hann samdi fyrir
Læknavarpið, hlaðvarp Læknablaðsins.
Fyrstu þættirnir eru komnir á Spotify.
Victor samdi með fleirum lag Vetrar-
ólympíuleikanna í Kína 2022, gerði Galið
gott með Páli Óskari sem sló í gegn í sum-
ar, spilaði á stóra sviðinu á Þjóðhátíð og
nú þetta einkennandi stef Læknavarpsins
fyrir Læknablaðið.
Victor segir að hann hafi haft alls-
konar hugmyndir fyrir stefið. „Þá hef ég
Victor Guðmundsson læknir, Doctor Victor, kom fram
með hlustunarpípuna um hálsinn á Þjóðhátíð nú í
ágúst og er hér á stóra sviðinu fyrir framan tugþús-
undir gesta.
Doctor Victor
semur stef
fyrir hlaðvarp
Læknablaðsins
Geta tekið 11.000 manns
á nýja Heilsugæslu Höfða
á Suðurnesjum
píanóbakgrunn og varð að hafa það með.
Nú svo er ég kominn í elektróníska tón-
list. Ég vildi koma þessu öllu saman en á
sama tíma gera stef sem er spennandi og
grípandi – segir að áhugavert viðtal sé að
fara í gang. Láta það fanga stemninguna.“
Læknavarpinu, hlaðvarpi Lækna-
blaðsins, hefur nú verið breytt. Áður var
það unnið úr hljóðbútum úr blaðavið-
tölunum sem tekin voru á síma en nú hef-
ur ferlinu verið snúið við. Hlaðvörpin eru
tekin upp í hljóðveri og textar fyrir blaðið
unnir úr hágæða upptökum. Nýja stefið
gerir svo blaðinu kleift að stíga öruggum
Alls höfðu 1100 skráð sig á nýja starfsstöð
heilsugæslunnar Höfða á Suðurnesjum fimm dög-
um frá opnun. Þórarinn Ingólfsson, yfirlæknir
heilsugæslunnar Höfða Suðurnesjum, segir stöðina
búna til að taka við allt að 11 þúsund skjólstæðingum
Bergljót Kvaran fagstjóri hjúkrunar, Þórarinn Ing-
ólfsson yfirlæknir og Gunnar Örn Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Heilsugæslunnar Höfða á Suðurnesjum
fyrir utan nýju heilsugæsluna í Keflavík.
Mynd/VFpket
Fjórtán læknastofur bíða fólksins í 1150
fermetra húsnæði við Aðaltorg, næst við
Courtyard by Marriott-hótelið í Keflavík.
Fyrst um sinn eru fjórar í notkun enda
læknarnir nú fjórir: Þórarinn sjálfur, Elín
Óla Klemenzdóttir, Oddur Þórir Þórar-
insson og Vilhjálmur Pálmason hafa
hafið þar störf. Einnig fjórir hjúkrunar-
fræðingar, ljósmóðir og starfsfólk.
„Við leitum lækna og reiknum með
því að þurfa að bæta við okkur strax
upp úr áramótum,“ segir hann. „Það
er erfitt að fá lækna enda alþjóðlegur
læknaskortur. Það skiptir því máli að
bjóða upp á starfsumhverfi og kjör sem
fólki hugnast.“
Þórarinn segir um 6000 Suðurnesja-
menn af 31.000 sækja heilsugæsluþjón-
ustu á höfuðborgarsvæðinu, þar af
1-2000 á Heilsugæslunni Höfða. „Við
finnum að það fólk sækir hingað. Það
þekkir okkur og við mætum mikilli já-
kvæðni. Margt þeirra hefur beðið eftir
okkur.“
Þórarinn segir að forsvarsmenn
Höfða hafi stokkið til þegar auglýst
skrefum inn á þennan ört vaxandi hlað-
varpsmarkað.
Lesendur Læknablaðsins geta sótt hlað-
vörpin sem fyrr á vef blaðsins, Sound-
cloud og nú einnig Spotify og iTunes.
Læknavarpið hefur nú einnig fengið bak-
hjarl í samheita- og líftæknilyfjafyrirtæk-
inu Teva.
var eftir rekstraraðila heilsugæslu
á Suðurnesjum. „Við erum þeirrar
skoðunar að heilsugæsla eigi að vera
eins og í nágrannalöndunum, einka-
rekin með þjónustusamninga. Við töld-
um að við hefðum borð fyrir báru að
spreyta okkur á þessu verkefni.“