Læknablaðið - 01.10.2023, Page 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 477
Ritstjórnir norrænu læknablaðanna hitt-
ust í Osló í byrjun september. Fundurinn
var haldinn í húsi norska læknafélags-
ins, Legenes hus, sem var endurnýjað að
fullu á meðan á heimsfaraldri Covid-19
stóð og hýsir líka skrifstofur norska
læknablaðsins, Tidsskriftet. Húsið stend-
ur við einn elsta miðpunkt Oslo, Christ-
iania torv, sem er torgið sem dansk -
norski kóngurinn Christian IV ákvað
eftir stórbruna í borginni, árið 1624, að
yrði endurbyggt og torgið gert að mið-
punkti Osló, en listaverk með hönd hans
prýðir torgið.
Fundirnir eru verulega mikilvægir
öllum norrænu læknablöðunum, sem
sést best á því hve góð mæting er frá
löndunum fimm, Danmörku, Finnlandi,
Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Opin umræða
er um allt er varðar blöðin, gang blað-
anna, lestur þeirra, dreifingu, kostnað,
innhald fræðilegs sem félagslegs efnis
og skipst á skoðunum um hvað er gott
og hvað megi betur fara. Læknafélögin
standa að baki útgáfu norrænu lækna-
blaðanna en öll blöðin hafa fullkomið
ritstjórnarlegt sjálfstæði, fyrir utan reglu-
bundinn pistil frá stjórn læknafélag-
anna í sumum tilfellum. Prentað eintak
blaðsins er enn mikilvægasta formið en
blöðin eru einnig birt í opnum aðgangi á
netinu. Í heimi breytinga er mikilvægt að
fylgjast með hvað gengur vel, til dæmis
hvað varðar Facebook sem læknar virð-
ast nota minna en almenningur meira.
Hvar er umferðin mest, hvaða greinar
eru mest lesnar. Hvað vilja læknar lesa
og ekki síst, hvað vilja læknar hlusta á.
Hlaðvörpin eru greinilega að taka meira
pláss og það var gaman að kynna nýtt
hlaðvarp Læknablaðsins sem einmitt fór í
loftið daginn fyrir fundinn og hefur hlot-
ið verðskuldaða athygli.
En þó læknablöðin séu öll að nútíma-
væðast eru það alltaf fræðigreinarnar
sem eru meginstoð blaðanna og afar
gefandi umræður voru um þær, svo sem
varðandi ritrýni, lengd, framsetningu,
innihald og fleira.
Við nutum gestrisni norska lækna-
blaðsins að loknum löngum fundi. Skoð-
að var nýja Munch-safnið með leiðsögn
undir merkjum heilsu – en lífssaga
Munchs tengdist mikið sjúkdómum og
sorg eins og sjá má í verkum hans. Fund-
urinn var mikil innspýting góðra hug-
mynda og gefandi umræðna um útgáfu
læknablaðs og ómetanlegt fyrir litla þjóð
að vera þátttakandi í svo nánu og gef-
andi samstarfi.
Árlegur fundur ritstjórna norrænu læknablaðanna
Helga Ágústa Sigurjónsdóttir
ritstjóri Læknablaðsins
Myndir af Legenes hus, húsi norska
læknafélagsins, í hjarta Oslóar.
Kristján IV ákvað að endurreisa borgina undir sínu nafni eftir stór-
bruna árið 1624 og Christiania torv varð þá upphafsreiturinn.