Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 01.10.2023, Síða 49

Læknablaðið - 01.10.2023, Síða 49
L ÆKNABL AÐIÐ 2023/109 477 Ritstjórnir norrænu læknablaðanna hitt- ust í Osló í byrjun september. Fundurinn var haldinn í húsi norska læknafélags- ins, Legenes hus, sem var endurnýjað að fullu á meðan á heimsfaraldri Covid-19 stóð og hýsir líka skrifstofur norska læknablaðsins, Tidsskriftet. Húsið stend- ur við einn elsta miðpunkt Oslo, Christ- iania torv, sem er torgið sem dansk - norski kóngurinn Christian IV ákvað eftir stórbruna í borginni, árið 1624, að yrði endurbyggt og torgið gert að mið- punkti Osló, en listaverk með hönd hans prýðir torgið. Fundirnir eru verulega mikilvægir öllum norrænu læknablöðunum, sem sést best á því hve góð mæting er frá löndunum fimm, Danmörku, Finnlandi, Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Opin umræða er um allt er varðar blöðin, gang blað- anna, lestur þeirra, dreifingu, kostnað, innhald fræðilegs sem félagslegs efnis og skipst á skoðunum um hvað er gott og hvað megi betur fara. Læknafélögin standa að baki útgáfu norrænu lækna- blaðanna en öll blöðin hafa fullkomið ritstjórnarlegt sjálfstæði, fyrir utan reglu- bundinn pistil frá stjórn læknafélag- anna í sumum tilfellum. Prentað eintak blaðsins er enn mikilvægasta formið en blöðin eru einnig birt í opnum aðgangi á netinu. Í heimi breytinga er mikilvægt að fylgjast með hvað gengur vel, til dæmis hvað varðar Facebook sem læknar virð- ast nota minna en almenningur meira. Hvar er umferðin mest, hvaða greinar eru mest lesnar. Hvað vilja læknar lesa og ekki síst, hvað vilja læknar hlusta á. Hlaðvörpin eru greinilega að taka meira pláss og það var gaman að kynna nýtt hlaðvarp Læknablaðsins sem einmitt fór í loftið daginn fyrir fundinn og hefur hlot- ið verðskuldaða athygli. En þó læknablöðin séu öll að nútíma- væðast eru það alltaf fræðigreinarnar sem eru meginstoð blaðanna og afar gefandi umræður voru um þær, svo sem varðandi ritrýni, lengd, framsetningu, innihald og fleira. Við nutum gestrisni norska lækna- blaðsins að loknum löngum fundi. Skoð- að var nýja Munch-safnið með leiðsögn undir merkjum heilsu – en lífssaga Munchs tengdist mikið sjúkdómum og sorg eins og sjá má í verkum hans. Fund- urinn var mikil innspýting góðra hug- mynda og gefandi umræðna um útgáfu læknablaðs og ómetanlegt fyrir litla þjóð að vera þátttakandi í svo nánu og gef- andi samstarfi. Árlegur fundur ritstjórna norrænu læknablaðanna Helga Ágústa Sigurjónsdóttir ritstjóri Læknablaðsins Myndir af Legenes hus, húsi norska læknafélagsins, í hjarta Oslóar. Kristján IV ákvað að endurreisa borgina undir sínu nafni eftir stór- bruna árið 1624 og Christiania torv varð þá upphafsreiturinn.

x

Læknablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.