SÍBS blaðið - 01.06.2024, Blaðsíða 17
17
2. tbl. 2024
Samantekt
Fitufordómar auka streitu og skömm hjá einstaklingum sem
lifa með offitu. Staðreyndin er að offita er að aukast hér á landi
sem og úti í heimi. Meðferð fyrir einstaklinga með offitu er mjög
ábótavant. Það vantar meiri fræðslu, betri úrræði. Nálgumst
efnið af virðingu og styðjum einstaklinginn þar sem hann er
staddur, ekki gera ráð fyrir að þó svo að einstaklingur sé með
offitu að hann lifi á skyndibita og hreyfi sig ekki. Það má ekki
snúast um heppni að hitta á „réttan“ heilbrigðisstarfsmann til
að fá virðingu sem allir eiga skilið óháð holdafari. Það eiga allir
að hafa möguleika á að sækja sér meðferð óski þeir þess. Ein-
staklingar sem lifa með offitu verða að eiga rödd innan kerfisins
og fá að taka þátt í þeim breytingum sem eiga að verða.
Heimildalisti fylgir textanum í greinasafni SÍBS á sibs.is.
tjá sig í öruggu umhverfi og fá stuðning. Benda fjölmiðlum á
að nota myndefni og orðalag við hæfi.
Hvernig er hægt að minnka fitufordóma?
Mæta þarf öllum einstaklingum óháð holdafari af virðingu.
Auka þarf fræðslu heilbrigðisstarfsfólks í námi þeirra og
starfi. Hlusta á raddir þeirra sem eru útsettir fyrir fitufor-
dómum. Hvetja og ítreka við fjölmiðla að vanda sig við orða-
lag og myndbirtingu. Einnig fræðsla til almennings og efla
þarf forvarnarstarf, því góð næring og hreyfing er holl fyrir
alla. Fræðsla um lýðheilsu á erindi til allra en á ekki snúa að
ákveðnum hópi. Það er hægt að efla heilbrigði allra án þess
að vera með fordóma.
Sj
ómannaheilsa