Vestfirðingur - 15.12.1965, Page 8

Vestfirðingur - 15.12.1965, Page 8
8 VESTFIRÐIN GUR Davíðshús Já þú, sem elskar listamannsins ljóð og leitar hælis þar sem gróður vex en virðir litils hrokans tómahljóð, þig heillar jafnframt Bj arkarstígur sex. Úr þessu vann hann mörg og litrík ljóð og ljóma brá á gamalt hafurtask, því hann var einnig skáld með þeirri þjóð, sem þekkir naumast framar tóman ask. Þar sérðu manninn vinur ef þú villt og veizt áð hann var stóri bróðir þinn, en fyrir þá sem tildrið hefur tryllt er tilgangslaust að koma þangað inn. Ég bið þig, gakktu vel um húsið hans og hreyfðu aldrei neitt sem þar er geymt. Og sjá, þú finnur nálægð mikils manns og mætir þvi sem fjöldinn hefur gleymt. Haraldur Stígsson f'rá Horni. Komdu með mér — það er þér í hag — upp þennan stíg, sem laufguð björkin ver og þú munt heyra kliðmjúkt kvæðalag í kringum það sem fyrir augun ber. Því þar er ekkert glingur eða. glys, en gamlir munir birtast hér og þar. Og yfir þeim er ró og dul en ris þess rökkurlifs er einu sinni var. hjá Svíum en okkur og hvað miður. Er það mjög eðlileg spurning, þar eð Svíþjóð er talið vera það land, sem einna lengst er komið á þeirri braut iað tryggja öllum þegnum sínum velmegun. Mér verður stirt um svar, því að mig brestur um of kunnugleika bæði þar og hér. Þó mætti vísa til þess er að framan er skrifað um öflugar almanna- tryggingar, góðar samgöngur og meiri festu í þjóðfélags- byggingunni allri. Þá má nefna skilyrði til æðri mennt- unar og svo heilbrigðismálin sem eru með miklum ágætum. Er gnægð stórra og vel út- búinna sjúkriahúsa í landinu. Háir þeim einna mest, hve erfitt vill reynast að fá starfs- lið, einkum er hjúkrunar- kvennaskortur tilfinnanlegur og hefur stundum orðið að loka heilum deildum nokkurn tíma af þeim sökum. Þótt margar hjúkrunarkonur út- skrifist fer þar sem hér, þær giftast og fara að sjá um böm og heimili. Úr þessu er þó víða reynt að bæta með því að hafa dagheimili fyrir börn í sambandi við sjúkrahúsin og gefst það nokkuð vel, og fást margar giftar hjúkrunarkonur til starfsins með þeim hætti. Aftur á móti er kaup þeirra enn heldur lágt, og yfirvinna, sem oft vill verða, fæst lítið sem ekkert borguð. Til er það, iað karlmenn læri til hjúkrunar starfa, en er ekki algengt fremur en hér, því að erfitt mun það reynast fjölskyldu- föður að sjá heimili farborða með þeim launum. Auk hinna almennu sjúkra- húsa er svo fjöldinn allur af heilsuhælum á vegum hins opinbera, m.a. hressingar- og lækningahæli fyrir gigtarsjúk- linga. Hefur verið ráðgert nú mjög nýlega að koma einu slíku hæli upp suður í Kanarí- eyjum. Miklu einfaldari og skýrari reglur virtust mér vera þar en hér um dagpeninga sjúk- linga, Skrifar læknir á þar til gert eyðuglað þann tíma, sem sjúglingurinn telst óvinnufær af hvaða orsökum sem það er og fer sjúklingurinn með þann pappír til næsta sjúkrasam- lags, sem greiðir honum sjúkra diagpeninginn án allra frekari vafninga. Þetta fyrirkomuiag finnst mér mun einfaldara en hjá okkur með allt eyðublaða- farganið, sem mér fyrir mitt leyti hefur gengið illa að finna botn í. Og ég veit fleiri dæmi þess hér, að sjúklingar hafa farið með vottorð sín til sjúkrasamlags þegar þeir áttu að snú sér til Tryggingarstofn unar og öfugt, og kannske gefizt upp á endanum við að þá peninga, sem þeim með réttu bar. Þá vil ég geta þess að öll opinber þjónusta er með af- brigðum góð. Er. það einkenni flestra stofnana að leysa vanda viðskiptavina sinna svo framarlega sem það stendur í mannlegu valdi og af svo mikilli kurteisi að af ber. Fannst okkur, sem erum ekki alltof von slíkri ofurfágun, stundum um of. En hvort heldur sem er í verzlun, opin berri skrifstofu eða þar sem önnur þjónusta er veitt, er af- greiðsla með þeim hætti, að viðskiptavininum finnst hann vera velkomin. Hann uppgötv- ar aldrei á síðasta auknabliki, að hann sé mættur af ein- hverjum óútskýranlegum rótarskap til að tefja fyrir lúnu afgreiðslufólki. Að sjálfsögðu er svo eitt og annað, sem Islending í Sví- þjóð finnst miður fara, en margt eru það smámunir á borð við það, að geta hvergi fengið kindasvið á borðið, að ég tali nú ekki um harðfisk. Formfesta og einskorðun við skrifaðar formúlur og reglur, sem laldrei virtist vera hægt að hnika til, hvernig sem að- stæður voru, fannst okkur oft vera til áþæginda að nausynja litlu, kannske fyrir það, að maður er vanari öllu lausari sniðum. Persónulega fannst mér allt hernaðarbröltið og hervæðingin vera til stórra lýta og bæri að líta á það sem nokkurs konar óværu á þjóð- félagslíkamanum. Er og líka vandséð að hvaða gagni slíkt má verða, ef til innrásar atóm- veldis kæmi, aðrar grann- þjóðir kæmu varla til greina í því sambandi, þótt áður fyrr væri ófriður við Dani og Norð- menn mjö í tízku. Málsvarar herskapar halda því hinsvegar fram, að ef sterkar almenniar varnir séu í landinu, myndi jafnvel atómveldi ekki þykja svara kostnaði að leggja það undir sig, þótt það væri tækni- lega mögulegt. Og svo að lokum örfá orð um hunda. 1 Svíþjóð ríkir hið megnasta hundahald, sem setur mjög svip sinn á allt hversdagslíf og var okkur Islendingunum flestum þyrnir í augum, þótt ekki kæmi það okkur beinlínis við. Flestir a.m.k. hinna ,,betri“ borgara hafa heimilis- hund, sem nýtur sömu ef ekki meiri réttinda en börnin á heimilinu ef einhver eru. Fari fjölskyldan út að aka, hefur hundurin bezta sætið í bif- reiðinni. Fastur liður í heimil- isverkunum er að fara með hundinn á göngu með vissu millibili og er áfangastaður- inn venjulega næsti ljóskers- stólpi. Er það ljótur blettur að sjá götur borgarinnar, sem annars eru svo snyrtilegar og vel hirtar, allar útbíaðar í hundasaur. Er hætt við, að slíkt myndi gera flestar heil- brigðisnefndir í bæum hér á landi gráhærðar um aldur fram. 1 skólamálum standa Svíar mjög framarlega svo sem kunnugt er. Bamaskólar eru flestir ágætir, þótt þar standi kennaraskortur mjög fyrir þrifum líkt og hér. Minnir mig að um það bil þriðjungur starfandi kennara við bama- skóla sé ófaglærður. Er nú ráðgert, að nemendur velji sér áhugasvið strax upp úr fimm- ta bekk barnaskóla og kennsl- unni þar eftir hagað í sam ræmi við það. — Grun hef ég um, að bóklestur meðal al- mennings sé þar ekki jafn al- mennur og hér. Sjaldan virtist mér mikil ös í bókabúðum, en almenningsbókasöfn eru mikil og góð. Verð á bókum er einkennilega lítið lægra en hér, þegar tillit er tekið til þess, að bækurnar ættu að geta komið út í stærri upp- lögum og pappírinn þar að auki innlend framleiðsla. Verð á bókum af meðal sjálfsævi- sögustærð og í þokkalegu bandi svarar til 350 til 450 ísl. króna. Hins ber þó að geta að útgáfa mjög góðra bóka í vasabókaformi er mikil og kostar þar frá ca. 35 til 100 ísl. króna. Rannsókn á bóka- eign leiddi nýlega, í ljós, að á meðalheimilinu sænska væru til 60 bindi af bókum. Fróðlegt væri að vita hver væri sam- svarandi tala hér.

x

Vestfirðingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.