Vestfirðingur - 15.12.1965, Síða 16

Vestfirðingur - 15.12.1965, Síða 16
16 VESTFIRÐIN GUR Hinn 21. sept. sl. staðfesti Félagsmálaráðuneytið nýja reglugerð um lánveitingar Húnæðismálastjórnar. Reglu- gerð þessi var síðan birt í B-deild Stjórnartíðinda hinn 15. okt. sl. Nauðsynlegt er að vekja athygli þeirra, sem hyggjast sækja um lán til Húsnæðismálastjómar, á því að samkvæmt 14. gr. þeirrar reglugerðar skal Húsnæðis- málastjórn fylgja eftirfarandi reglum varðandi stærð nýbygginga við úrskurð um lánshæfni umsókna: a) Fyrir fjölskyldu, sem telur 1—2 meðlimi, allt að 70 ferm. hámarksstærð, netto. b) Fyrir fjölskyldu, sem telur 3—5 manns, allt að 120 ferm. hámarksstærð, netto. c) Fyrir fjölskyldu, sem telur 6—8 manns, allt að 135 ferm. hámarksstærð, netto. d) Séu 9 manns eða fleiri í heimili, má bæta við hæfi- legum fermetrafjölda fyrir hvern fjölskyldumeð- lim úr því með þeirri takmörkun hámarksstærðar, að ekki verði lánað út á stærri íbúðir en 150 ferm., netto. Varðandi b-, c-, og d-lið, skal þess sérstaklega gætt, að herbergjafjöldi sé í sem mestu samræmi við fjölskyldustærð. Öll fermetramál skulu miðuð við innan- mál útveggja. Þá skal einnig bent á að samkvæmt 13. gr. sömu reglugerðar, skulu umsækjendur — á meðan eftirspum eftir lánum hjá Húsnæðismálastjóm er ekki fullnægt — sem svo er ástatt um, og lýst er í stafliðum a til d hér á eftir, eigi fá lán: a) Eiga eða hafa átt sl. 2 ár nothæfa og fullnægjandi íbúð, þ.e. 12 ferm. netto pr. fjölskyldumeðlim að innanmáli herbergja og eldhúss. b) Byggja stærri íbúðir en ákveðið er í 14. gr. c) Byggja fleiri en eina íbúð. d) Hafa góða lánsmöguleika annarsstaðar, t.d. sam- bærilega eða betri en lán samkvæmt reglugerð þessari veita, eða næg f járráð, að dómi Húsnæðis- málastjórnar, svo að þeir geti betur komið íbúð sinni í nothæft ástand, án frekari lána, miðað við aðra umsækjendur, er afgreiðslu bíða. e) Fengið hafa hámarkslán á sl. 5 árum, nema sér- stakar ástæður séu fyrir hendi að dómi Húsnæðis- málastjómar. Þetta tilkynnist yður hér með. Húsnæðismálastofnun ríkisins. Sundlanúarbaðverðir Karlmaður og kvenmaður óskast. Skriflegar umsóknir þurfa að berast sem fyrst. Sundhöll ísafjarðar. Kaupfélag Króksfjarðar Króksf jarða rnesi Útibú í Skálanesi og Reykhólum Selur allar helztu nauðsynjar og ferðamannavörur. Umboð fyrir Samvinnutryggingar. Ávaxtar sparifé í innlánsdeild. Benzínafgreiðsla. Bílaolíur á öllum stöðunum. Gleðileg jól! Farsælt nýtt ár! Þökkum viðskiptin á líðandi ári. KAPFÉLAG KRÓKSFJARÐAR Sandfell hf. ísaflröi Óskar sjómönnum og öðrum viðskiptavinum sínum, gleðilegra jóla og farsæls komandi árs með þökk fgrir viðskiptin á liðna árinu. í framtíðinni munum við kappkosta að hafa jafnan á boðstólum sem fjölbreyttast úrval af veiðarfærum og öðmm útgerðarvömm, á sem allra lægsta verði. Við höfum einkaumboð á Islandi fyrir japönsku BEISEI veiðarfærin. Og pöntum þau beint ef óskað er. SANDFELL HF. Isafirði — Sími 570 Óskum starfsfólki voru á sjó og landi og öðrum viðskiptavinum gleðilegra jóla og farsældar á nýja árinu með þakklæti fyrir líðandi ár. Eir llf. ieðilez jái gott og faucdt komandi ái ísafirði. Vestfirðingur óskar lesendum sínum gleðilegra jóla og gæfuríks nýjárs. Sælgætisoerðin FBEYJA Reykjavik

x

Vestfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.