Margt smátt - 01.10.2006, Síða 9
Neyðaraðstoð og uppbygging ACT í Líbanon
Stjórnvöld leggja til tvær milljónir
Ijúlí 2006 horfði heimurinn á
hvemig enn eitt iieyúarásíancl-
,ið skapaðist þegar stríúsátök
bratust út i Líbanon. Uni það bil
fjúrðungur af libönsku þjúðinni
þurfti að fíy ja heimib sín og fínna
skjúl frá verstu átökunum. Um það
biÍ 1200 manns létu lífið og 15.000
heimili voru lögð í rúst.
Hjálparstarf kirkjunnar fékk 2 millj-
ónir króna frá íslenskum stjórnvöld-
um til neyðaraðstoðar i Líbanon. Þær
fóru til ACT-Alþjóðaneyðarhjálpar
kirkna til að aðstoða 6.600 íjölskyld-
ur eða um 40.000 manns í Suður-
Líbanon, Mount Líbanon, Beirút og
Beqaa. Aðstoðin fólst í að útvega vatn,
hreinlætisvörur, sápu, sótthreinsandi
oíl. Hver fjölskylda fékk matarpakka
með hrísgijónum, sykri, olíu, dósamat,
þurrmjólk ofl. sem átti að duga einni
fjölskyldu í tvær vikur. Barnavörum s.s.
bleyjum og þurrmjólk var dreift, skjól-
gerðarefni, dýnum og mataráhöldum
svo og nauðsynlegustu lyfjum.
Ósprungnar sprengjur tefja
uppbyggingu
Tveimur mánuðum eftir að átökin
hófust eru Líbanir að reyna að koma
lífinu aftur í eðlilegt horf. ACT er
ennþá til staðar að aðstoða með vatn
og mat, sérstaklega i Suður-Líbanon.
Fólk sem hefur misst heimili sín mun
þurfa að bíða í flóttamannabúðum
þar til uppbygging hefst. Osprungnar
sprengjur á víð og dreif skapa mikla
hættu og þegar hafa um 40 manns
látið lífið við að nálgast heimili sín
og hreyfa við sprengjum. Samkvæmt
Sameinuðu þjóðunum mun taka allt
að 10 ár að hreinsa landið en u.þ.b.
70% af landi þar sem verstu átökin
áttu sér stað eru stráð sprengjum.
Börn í flóttamannabúðum
I flóttamannabúðum ACT er sér-
staklega reynt að skapa góðar aðstæð-
ur fyrir börn. Leikjanámskeið og
skemmtanir eru nauðsynlegur partur
af endurhæfingu barna. Flest ])eirra
hafa upplifað atburði sem engin börn,
aldrei, ættu að þurfa að gera. Á einu
slíku námskeiði voru börn látin teikna
framtíðardrauma sína. 1 fyrstu var
rnikið teiknað af sprengjum og stríði.
En nokkrum vikum seinna voru þau
aftur farin að teikna blóm, tré og fugla.
Najawa er níu ára gömul stelpa sem
enn býr með fjölskyldu sinni í kirkju
í Beirút: „Eg held að allir fuglar hafi
flutt frá Líbanon og að blómin okkar
hafi verið brennd,“ sagði hún. En svo
hugsaði hún sig aðeins um og bætti
við: „En ég held að fuglarnir komi
einhvern daginn til baka.“ Ef trúin
getur flutt fjöll, þá getur hún líka flutt
fugla.
Lydia Geirsdótti?• verkefnastjóri
Najawa teiknabiþessa mytid í áfallahjálp Alþjóðatieyðarhjálpar kirkna, ACT.
IH
IOELAISIDAIRHOTELS
W W W
s