Margt smátt - 01.10.2006, Qupperneq 11
The Constant Gardener
Hugleiðingar um ástand mála í Afríku
Fyrir nokkrum missirum var
sýnd í kvikmyndahúsum okkar
öndvegismynd, The Constant
Gardener, eftir spennusögu meistara
John le Carré. Hún er nú komin á
disk og auðvelt að nálgast á mynd-
bandaleigum. Myndin er ekki aðeins
býsna góð spennumynd með leik-
urunum Ralph Fiennes og Rachel
Weisz heldur fléttast inn í hana falleg
ástarsaga og snörp samfélagsádeila,
sem mér fmnst vera það veigamesta
í myndinni.
Baksvið myndarinnar er harð-
neskjulegt daglegt líf í suðurálfu, þar
sem lífskjörin eru víða afar kröpp.
Það virðist sem mörg atriði í mynd-
inni séu tekin á staðnum í iðandi
mannhafinu. Ryðguð bárujárnsþök
gefa þéttbyggðum þorpunum lit,
börn og búsmali leika sér i opnum
sorplækjum sem renna eftir þröng-
um götunum. Berklar og alnæmi hrjá
fólkið á öllum aldri og sjúkrastof-
urnar eru ekki upp á marga fiska.
Ralph Fiennes leikur hæglát-
an embættismann við útibú breska
sendiráðsins í fátæku héraði í Kenýa.
Hann dundar sér við garðyrkju í
tómstundum og kemur þaðan nafn-
fiALPH FlEHM'iS 1 fiACHEl WEISZ
IGKLY ANTlClPATED iNTERNATIONALTHRILLER FHOMJOHHLtCAHRÉ v”'°
í FERHAND3 MtlRtLLES THt ACADfMY AWRO'NOMiNATLD QiRECTOR OF CI1Y0F600
ið á myndinni. Atburðarásin berst
vítt um byggðir og sveitir. Eg hef
ferðast um mörg slík lönd Afríku og
upplifað þetta sama umhverfi víða,
en ég komst aldrei svo vel niður í
grasrótina né inni í kviku mann-
lífsins sem svo vel kemur fram í
myndinni.
Eitt veigamesta atriði myndarinn-
ar er svikaflétta sem stórt lyfjafyr-
irtæki er að vefja með opinberum
aðilum heima í Bretlandi og í Kenýa.
Lyfjarisi þessi fékk með pukri og
leynimakki að gera tilraunir með
ný berklalyf á dauðvona alnæm-
isjúklingum í Afríku, því mikið lá
við að koma lyfinu sem fýrst á mark-
að vegna samkeppni á lyfjamarkaði
heimsins. Ekki virðist hafa kornið
til greina að gera slikar tilraunir á
hvítum heima í Evrópu. Eru hvít-
ir menn merkilegri en svartir? Má
frekar fórna svörtu fólki á „altari
vísindanna” en hvítu? Auk þess var
í húfi atvinna stórs hóps manna
í afskekktum byggðum Bretlands
og atkvæði í viðkvæmu kjördæmi.
Störf í Evrópu virðast hafa forgang
umfram líf og limi annars staðar.
Eiginkonan ástfangna, Tessa, var
afar tortryggin í eðh sínu og mikil
baráttukona gegn illsku og hættum
nútímans. Með klækjum og útsjón-
arsemi komst hún á snoðir um þenn-
an svikavef. Hefst þá atburðarás
sem enginn fær stöðvað. Myndin er
geysiáhrifamikil og vekur áleitnar
spurningar um siðferði hvíta manns-
ins gagnvart hinum svarta ekki síður
en siðgæði í stjórnmálum og í við-
skiptum á Vesturlöndum. Þetta efni
fellur vel að umræðunni undanfar-
ið um siðferðisbrest í viðskipta- og
stjórnmálalífi á Vesturlöndum. Hér
er því reitt hátt til höggs.
Þorsteinn Magnússon
SPRON Vaxtabót
13% vextir*
Óverðtryggður sparnaðarreikningur
sem ber allt að 12,50% vexti.*
SPRON Viðbót
4,80% vextir*
Tveir sterkir
Verðtryggður sparnaðarreikningur
sem ber allt að 4,80% vexti.*
- sparnaðarreikningar á Netinu ! I Þú getur stofnað reikning á spron.is
Upplýsingar í næsta útibúi SPRON í síma 550 1200,
í þjónustuveri SPRON f síma 550 1400 eða á spron.is
*Samkvæmt gildandi vaxtatöflu SPRON 21. ágúst 2006