Margt smátt - 01.10.2006, Síða 13
Fjármál við lok starfsárs
Söfnunarfé og útgjöld
Söfnunarfé og aðrar tekjur stofnunarinnar frá 1. júlí 2005 til 30. júní 2006 námu 151,4 milljónum króna. Framlög
styrktarmanna, presta og sókna námu 20,3 milljónum. Brúttótekjur af styrktarlinum í fréttablaðið Margt smátt voru
5,4 milljónir og af kertasölu 8,7 milljónir. Almennt söfnunarfé og sér gjafir til sérstakra verkefna voru 89,9 milljónir
og fjármagnstekjur námu 18,9 milljónum króna.
Framlög til verkefna
82,7 milljónum var varið til verkefna á starfsárinu. Þar af
var 31,5 milljónum varið til þróunarverkefna og 28,5
milljónum til neyðarhjálpar. 5 milljónum var varið
til fræðslu- og kynningarstarfa og 17,8 millj-
ónum til verkefna innanlands. Auk þess var
verðmæti matargjafa áætlað 6 milljónir.
Mismunur á tekjum og því sem varið er
til verkefna felst að mestu í fjármunum
sem hafa verið eyrnamerktir ákveðnum
verkefnum en dreift á lengri tima.