Margt smátt - 01.10.2006, Qupperneq 14
Stiklaö
Astþór ísak Gunnarsson afhentipeningana en Lydia Geirsdóttir
verkefnastjóri hjá Hjálparstarfinu tók við þeim í vettvangsferð
barnanna íÞjóðminjasafnið.
Þorsteinn Pálsson nýr formaður stjórnar
A aðalfundi 9. september var kosin ný stjórn Hjálparstarfsins.
Þorsteinn Pálsson ritstjóri, fulltrúi kirkjuráðs í fulltrúaráði
Hjálparstarfsins var kosinn formaður og þau Sigríður Lister
hjúkrunarfræðingur og Gunnar Sigurðsson kerfisfræðingur
meðstjórnendur. I varastjórn eru sr. Elínborg Sturludóttir og
Hrafnhildur Sigurðardóttir útibússtjóri hjá Landsbankanum.
Hjálparstarf kirkjunnar þakkar fráfarandi stjórnarformanni
Einari Karli Haraldssyni og Hönnu Pálsdóttur meðstjórn-
anda fyrir vel unnin störf í þágu stofnunarinnar.
Tombóla
Sesselja Benediktsdóttir og Telma Rún Ingadóttir héldu
tombólu í Þorlákshöfn í sumar. Þær söfnuðu 3.700 krónum.
Það dugar t.d. til þess að greiða skóla- og heimavist íyrir eitt
barn á Indlandi í mánuð og skólavist og skólamáltíðir fyrir
barn sem býr nálægt skólanum og sefur heima. Það er ekki
svo lítil gjöf! Bestu þakkir.
hjálparstarf og vinna að öryggismálum alþjóðlegra frjálsra
félagasamtaka í Irak. Lydia var nú síðast verkefnastjóri hjá
Læknum án landamæra, hafði umsjón með því að koma á
fót næringarmiðstöðvum fyrir vannærð börn í Nígeríu og
var framkvæmdastjóri verkefnisins. Hún kemur inn í hóp
fjögurra starfsmanna Hjálparstarfsins.
Fermingarbörn í Bústaðakirkju keyptu 10 geitur
Fermingarundirbúningur í Bústaðakirkju hófst í ágúst. Um
100 börn fermast þar i vor og fékk Hjálparstarfíð tækifæri
til að segja þeim frá verkefnum sínum einn eftirmiðdaginn.
Brá svo við að tveimur dögum síðar var hringt úr kirkjunni.
Höfðu krakkarnir þá tekið sig saman um að safnað 12.000
krónum. Kirkjan lagði sömu upphæð á móti og verður því
hægt að kaupa 10 geitur fyrir framlagið. Krökkunum leist
vel á hvað geit getur breytt miklu fýrir fátækar fjölskyldur í
Malaví sem taka þátt í verkefni Hjálparstarfsins þar. Geitin
gefur mjólk, tað til áburðar, afkvæmi og þá kjöt og skinn.
Hljómsveitin Guitar Islancio fylgir í kjölfarið með tónleikum
23. apríl 2007. Vilborg Oddsdóttir félagsráðgjafi Hjálp-
arstarfsins úthlutar boðsmiðum á tónleikana í samvinnu við
ýmis félög s.s. Geðhjálp, Vin, Hugarafl, Klúbbinn Geysi ofl.
Tónleikarnir eru allir haldnir í Listasafni Islands á mánudög-
um kl. 14:00. Gunnar Kvaran sellóleikari á frumkvæðið
að tónleikunum og er listrænn stjórnandi þeirra. Hann er
styrktarmaður Hjálparstarfsins og vel kunnugur starfi henn-
ar. Styrktaraðilar tónleikanna eru Minningarsjóður Mar-
grétar Björgólfsdóttur, Listasafn Islands og Prentmet.
IVýr starfsmaður
Lydia Geirsdóttir hóf störf
sem verkefnastjóri hjá
okkur þann 1. júlí. Hún
mun hafa með höndum
samskipti við samstarfs-
aðila Hjálpastarfsins í
verkefnalöndum í Afr-
íku og á Indlandi, koma
að stefnumótun, otun og
samskiptum við stjórnvöld
á Islandi, sem og að þróa
tengsl við fyrirtæki, stétt-
arfélög og fagsambönd
auk samvinnu við frjáls
félagasamtök hér heima.
Lydia lauk meistarnámi
í þróun og alþjóðlegri
samvinnu frá háskólanum Lydia Geirsdóttir
í Gautaborg árið 2003. Lydia
hefur starfað sem hjálparstarfsmaður hjá alþjóðlegum frjáls-
um félagasamtökum, þ. á m. verið framkvæmdastjóri Sam-
hæfxngarráðs frjálsra félagasamtaka í Irak, the NGO Coor-
dination Comittee in Iraq. Hlutverk ráðsins var að samhæfa
Boðsmiðar á tónleikaröð
Glæsileg tónleikaröð hófst þann 4. september en tónleik-
arnir eru ætlaðir þeim sem vegna þröngra fjárráða geta ekki
sótt ýmsa listviðburði. A þeim fyrstu lék Víkingur Heiðar
Ólafsson á píanó. Næstu tónleikar verða 23. október og leik-
ur þá Blásarakvintett Reykjavíkur. Þann 19. mars 2007 leikur
Elísabet Waage á hörpu og Guðrún Birgisdóttir á flautu.