Margt smátt - 01.10.2006, Qupperneq 15

Margt smátt - 01.10.2006, Qupperneq 15
Seldum geit aðra hverja mínútu A menningarnótt seldist geit aðra hverja mínútu. Geitasalan var liður í dagskrá Hjálparstarfsins og Biskupsstofu en við vorum í fyrsta sinn með opið hús á menningarnótt í ár. Yið byrjuðum kl. 14 að selja geitur og hættum kl. 18:30. Tiltækið var til styrktar verkefni í Malaví þar sem fólki er gert kleift að eignast geit sem þátt í að tryggja betur afkomu sína. Um er að ræða 600 fjölskyldur sjálfsþurftarbænda sem við höfum unnið með í fjögur ár. Verkefnið felst í að afla vatns, nota það Glaðir og reifir geitakaupendur. í áveitur, til skepnuhalds eða í fiskiræktartjarnir. Allt miðar þetta að því að gera fólkið ekki eins háð uppskerunni og birgðulu veðri, og um leið að gera fæðuna fjölbreyttari og heilsuna því betri. Starfsfólk Hjálparstarfsins hafði ekki við með posann og þær Dáfríður og Dís, geitur úr Húsdýragarð- inum, gerðu sitt til að laða fólk að. Sjálfboðaliðar gengu um Laugaveginn og dreifðu miðum um söluna þannig að fólk væri viðbúið þegar það kæmi að básnum okkar. Við þökkum Húsdýragarðinum, lögreglunni í Reykjavík og gestum menningarnætur fýrir samstarf og frábærar und- irtektir. Hjálparstarfíð flytur úr 101 og upp í Grensás Verið er að breyta húsnæði í kjallara Grensáskirkju eftir þörf- um Hjálparstarfsins en starfsemin flytur þangað um áramót. Umfang starfsins er orðið meira. Með nýrri stefnumótun er ætlunin er að þrefalda tekjur stofnunarinnar á árabilinu 2006-2010. Það kallar á nýjan starfsmann sem ráðinn var í sumar og þar með stærra húsnæði. Húsnæði í Grensáskirkju er á vegum kirkjuráðs og verður það látið í té endurgjalds- laust. Þar verður meira rými fyrir starfsmenn, matarbúr og lager. Gengið verður inn að aftan og norðan við kirkjuna. Fyrir framan eru góð bílastæði sem hefur bráðvantað á Vatnsstígnum. Leið 11 gengur að kirkjunni frá Hlemmi og Mjódd. Gjafabréfin eru orðin sex Gjafakort Hjálparstarfsins eru núna orðin sex. Hægt er að gefa gjafabréf til fimm málefna eða óeyrnamerkt og er framlagið þá notað i þau verkefni sem brýnust eru hverju sinni. Þegar þú gefur gjafakort skrifar þú stuttan texta til að ávarpa móttakandann sem við prentum á kortið. Svo er staðlaður upplýsingatexti um verkefnið sem stutt verður fyrir kaupverð á gjafabréfinu. Upphæðir geta verið allt frá 1500 kr. en geitin kostar þó 2.400 kr. og er sú upphæð bundin. Þú sækir eða við sendum þér bréfið eða beint til móttakanda. Veldu málefni: Efri lina Vatn í Afríku Geitur handa fátækum fjölskyldum í Afríku Neðrí lína Menntun barna á Indlandi Leysa þrælabörn úr ánauð Þar sem þörfin er mest, óeyrnamerktar gjafir Framtíðarsjóður, menntun efnalítilla ungmenna á íslandi

x

Margt smátt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Margt smátt
https://timarit.is/publication/1939

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.