Vestfirðingur - 04.06.1999, Blaðsíða 4

Vestfirðingur - 04.06.1999, Blaðsíða 4
4 Vestfirðingur Valbjörn ÍS 13, síðar Mímir ÍS 30 og loks Gylfi ÍS 303 er Sturla og fleiri keyptu bátinn. Skipstjórinn og skáldið. Sturla hafði frumkvæði að því að komið var upp bókasafni í Sólborginni. Guðmundur G. Hagalín hreifst mjög af þessu framtaki og gaf safninu myndarlega bókargjöf. við fengjum betra lens. Við seldum íyrir ágætis verð í Þýskalandi á tilsettum tíma. Þegar við ætluðum að fara heim bilaði ketillinn hjá okkur og þurftum við þess vegna að fara í slipp. Þar vorum við í 10 daga. Þá skeði sá sorglegi at- burður að einn úr áhöfn- inni týndist. Það var Gunn- ar Guðmundsson. Hann fannst svo síðar við dokk- ina. Við misstum þannig tvo góða drengi í þessum túr. Ég kunni vel við togara- lífið. Sólborgin var glæsi- legt skip og gaman að vera þar um borð. Þar var hroðalegt að sjá á eftir henni í brotajárn aðeins 11 ára gamalli. Lífið þar gat orðið skrautlegt á köílum. Stundum þegar verið var að fara úr höfn voru sumir illa á sig komnir. Ef menn létu illa og við óttuðumst að þeir færu sér eða öðrum að voða settum við þá í netpoka og saumuðum utan um þá. Þanniggeymd- um við þá í káetunni þar til af þeim var runnið. Eigin útgerð I september 1959 kaup- um við bræður og íjölskyld- ur okkar, Mími IS 30, sem áður var Valbjörn ÍS 13 og gefum honum nafnið Gylfi IS 303. Gerum hann út í nokkur ár, ég var með hann til fyrsta júní 1964, þegar ég fór í land og gerðist hafnarvörður við ísafjarð- arhöfn. Olafur bróðir minn tók síðan við og aílaði vel. Við stofnuðum Gylfaver hf. sem verkaði fiskinn af bátnum og söltuðum og hertum. Þar höfðum við frábært starfsfólk, sem Löndun úr línubátum á sjöunda áratugnum. aðrir fiskverkendur höfðu áhuga á að fá í sínar raðir. Ymsar aðferðir voru not- aðar til að koma okkur á kné, og tókst þeim það um síðir því bankinn tók af okkur bátinn og seldi til Sandgerðis, oggræddi stór fé af því. Hafnarvörður Einsog áður sagði réðist ég sem hafnarvörður fyrsta júní 1964 og starfaði sem slíkur til tíundajúní 1993. Auk þess að vera hafnar- vörður var ég yfirhafnar- vörður, vélstjóri á hafn- sögubátnum og einstöku sinnum hafnsögumaður. Ég fór á vélstjórnarnám- skeið Fiskifélagsins haust- ið 1939 og útskrifaðist um tuttugasta febrúar 1940. Árið 1942 útskrifaðist ég úr skipstjóranámskeiði hér á ísafirði sem veitti mér skipstjórn á allt að 120 tonna skipi. Veturinn 1949 til 1950 var ég við nám í Stýrimannaskólanum í Reykjavík og tók ég hið meira fiskimannapróf Qórtánda maí 1950. Ég hef tekið próf í verk- stjórn við fiskvinnslu í Reykjavík og Hafnarfirði. Samantekið var ég á sjó í 28 ár en 29 ár á höfninni á Isafirði. Félagsmál og pólitík Sturla starfaði lengi að bæjarmálunum og hefur víða komið við í félags- málum. Ég var lengi í stjórn og samninganefnd Vélstjóra- félags Isafjarðar. Ég var lengi í stjórn Bylgjunnar, m.a. lengi formaður. Égvar formaður í FOSÍ og síðar FOSVest þegar það var stofnað, þegar Bolvíkingar komu inn. Ég var við að undirbúa ílutning á Líf- eyrissjóði starfsmanna ísafjarðar í Lífeyrissjóð ríkisins. Ég var varabæjarfulltrúi fyrir Frjálslynda og vinstri menn 1974-78 og bæjar- fulltrúi fyrir Óháða borgara 1978-82. Þá var ég 2. formaður bæjarráðs. Ég var í bygginganefnd Hlífar I með Guðmundi H. Ing- ólfssyni og Snorra Her- mannssyni. Þá var ég lengi í hafnarnefnd og síðar hafnarstjórn. Markmið samtaka Óháðra borgara var að fá gott fólk til að starfa að bæjarmálunum óháð flokksböndum. í bæjarstjórn vorum við í meirihlutasamstarfi með D-lista. Guðmundur H. Ingólfsson leiddi lista Sjálfstæðismanna. Það var mikill kraftur í Guðmundi og hann var íljótur að átta sig á málum. Það var gaman að starfa með honum. Sturla var einn af stofn- endum Kiwanisklúbbsins Bása árið 1976 og forseti hans fyrstu tvö árin. Sturla segir að það hafi verið mjög ánægjulegt að starfa í þeim gjöra. Bak við tjöldin Það gerist margt undar- legt á bak við tjöldin í pólitíkinni. Sturla sagði þeim sem viðtalið tók sögu af því hvernig fé fékkst til að ljúka byggingu Hlífar I. Það vantaði 3 milljónir króna til að ljúka bygging- unni. Helst var talið fært að taka japanskt lán með ríkisábyrgð ef hún fengist. Byggingarnefndin fór suð- ur og reyndi að ná fundi Gunnars Thoroddsen sem var forsætisráðherra. Það gekk ekki og þar sem þeir þremenningar sátu ogréðu ráðum sínum bar þar að Karvel Pálmason alþingis- mann. Hann bauðst til að reyna að hjálpa þeim að ná fundi forsætisráðherra og fór burt. Að vörmu spori kom hann aftur og sagði: ,,Þið fáið 10 mínútur með forsætlsráðherra. Mætið hjá honum 10 mínútur fyrir 10 í íyrramálið”. Það stóð heima. Þeir fengu fundinn með forsætis- ráðherra. Gunnar tók beiðninni ekki illa en vildi að þeir töluðu við þing- menn kjördæmisins fyrst áður en ráðist yrði í að fá erlentlán. Byggingarnefnd- armenn fóru þá niður á Alþingi og fá fund með þingmönnum Vestfirðinga. Matthías Bjarnason sagði að hugsanlega mætti fá 300 þúsund úr Eknasjóði ís- lands. Sighvatur Björgvins- son sagði að hugsanlega mætti fá eina milljón úr Flóttamannasjóði Evrópu. Hvorug hugmyndin þótti nógu góð. Karvel spurði þá hvort hann mætti leita til Frá opnun Hlífar I 10. júlí 1982. Hafdís ÍS 75, einn af Svíþjóðarbátunum. Kiwanisklúbbnum. Við settum okkur það mark- mið að leggja áherslu á að sinna börnum og gamal- mennum og koma þar að sem verður útundan hjá ríki og bæ. Fyrsta söfn- unarátakið okkar var til að innrétta fyrstu sjúkra- bifreiðina á svæðinu. Næsta átak, og eitt það ánægjulegasta, var að gefa Rauðkrossdeildinni hjarta- hnoðtæki í sjúkrabifreið- ina. Ég var gerður að heiðursfélaga Kiwanis- klúbbsins Bása fyrir 3 árum og um síðustu ára- mót voru mér veitt HIXSON orðan sem er æðsta heið- ursmerki Kiwanishreyf- ingarinnar. Eitt af markmiðum Kiw- anishreyfingarinnar er hin gullna regla: Eins og þér viljið að aðrir menn gjöri yður það skuluð þér og Frá endurbyggingu Selsins í Langadal,

x

Vestfirðingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestfirðingur
https://timarit.is/publication/1936

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.