Vestfirðingur - 04.06.1999, Side 5
Vestfirðingur
5
Hjónin Sturla og Rebekka.
Alberts Guðmundssonar.
Það var samþykkt og gekk
Karvel af fundi. Skömmu
síðar kom hann með Albert
á fundinn. Albert spurði
hvað hann ætti að gera þar.
„Ég á ekkert atkvæði á
Vestfjörðum” sagði Albert.
Alberti var nú gerð grein
fyrir málinu. Albert, sem
var formaður stjórnar
Útvegsbankans, sagði að
það yrði fundur í stjórn
bankans kl. 10 daginn eftir
og að þeir mættu hafa
samband við sig kl 11. Það
var gert og var Útvegs-
bankinn tilbúinn að lána
1,5 milljónir króna ef
Landsbankinn gerði það
sama. Sá bankastjóri
Landsbankans, sem hafði
með þessi mál að gera var
úti í Bandaríkjunum.
Þannig að þessi von virtist
vera úti. Albert bauðst þá
til að reyna enn frekar.
Hann fékk að mæta á fund
bankaráðs Landsbankans
og tala fyrir málinu. Niður-
staða bankaráðsins var að
Landsbankinn var til í að
lána sinn hluta. Þegar kom
að því að skrifa undir lánið
setti Sturla það skilyrði að
það færi ekki af kvóta
bankans á ísafirði. Eftir
nokkurt þref fékkst það í
gegn. Þetta mál hafði þá
leist farsællega fyrir tilstilli
Alberts Guðmundssonar.
Fjölskyldan
Éggiftist Rebekku Stígs-
dóttur frá Horni þann
þrítugasta og fyrsta des-
ember árið 1944. Við
höfum átt sex börn. Misst-
um elsta barnið okkar,
Guðjón Elí fæddan 15.
september 1945, í slysi
þann 21. febrúar 1958.
Hann var að renna sér
ásamt fleirum á maga-
sleða, hér upp í hlíðinni og
lenti þar á steini og kast-
aðist síðan á húsgrunn.
Næstur í röðinni er Frí-
mann Aðalbjörn, fæddan
12. júlí 1947 og er hann
skipatæknifræðingur og
starfar hjá Skipatækni h/f.
Hann er giftur Auði Har-
aldsdóttur ogeiga þau þrjú
Danmark - listasmíð eftir Sturlu Halldórsson.
FERJAN BALDUR STYKKISHOLMI
SÍMI: 438 1120 - FAX: 438 1093
BRJÁNSLÆK SÍMI 456 2020
E-MAIL: ferjan@aknet.is
NETFANG: www.aknet.is/ferjan
„ jöuci'J. 1
)
r 75 AR A
, BREIÐAFIR
Sigling yfir Breiðafjörð
er ógleymanleg ferð inn
í stórbrotna náttúru
Vestfjarða.
Sumaráætlun 1999:
Frá Stykkishólmi
kl. 09:00 og kl. 16:00.
Frá Brjánslæk
kl. 12:30 og kl. 19-
Úr siglingu Kiwanis með eldri borgara um Djúp í júní 1991.
börn og tvö barnabörn. Þá
kemur Jónína fædd 4.
nóvember 1949, skrif-
stofudamaáAkureyri. Hún
er gift Helga Jónssyni
rafvirkja og starfar hjá
RARIK á Akureyri, þau eiga
eina dóttur, áður átti
Jónína tvö börn með Guð-
mundi Jóhannessyni sem
hún bjó með áður en hún
giftist Helga. Jónína á sem
sagt 3 börn og 2 barna-
börn. Þá kemur Stígur
Haraldur fæddur 20. októ-
ber 1953, skipstjóri. Hann
er giftur Ásgerði Ingvadótt-
ur, húsmóður, þau eiga
fjögur börn. Þau búa hér á
ísafirði. Þá er það Guðjón
Elí (yngri) fæddur 4. júlí
1959. blikksmiður í Hafn-
arfirði. Hann er giftur
Hrafnhildi Haraldsdóttur,
blómaskreyiingarrneistara
og rekur hún verslunina
Ömmubúð í Reykjavík. Þau
eiga tvö börn. Þá í lokin
kemur Friðgerður Ebba
fædd 7. júlí 1965, er ógift
en bjó um tíma með Þóri
Hallgrímssyni lögfræðingi
og á með honum eina telpu.
Árið 1977 greindist ég
með sykursýki sem var væg
í fyrstu, en síðar ágerðist
þetta og árið 1995 lá ég í 9
mánuði hér á Sjúkrahús-
inu og var þá tekið framan
af löppunum á mér, og mér
komið á hækjur og í hjóla-
stól.
Hlíf
Inn á Hlíf í eigin íbúð
fluttist ég beint af sjúkra-
húsinu þann 14 október
1995. Hér erum við íbúar
á Hlíf einsog ein fjölskylda
og líkar mér það mjög vel,
en bæjaryfirvöld mættu
sinna betur íbúum og
húseign, því húsin eru að
grotna niður fyrir viðhalds-
leysi. Og einnig mættu þau
huga að betri aðstöðu til
líkamsræktunar íbúanna,
þau eru í lágmarki. Lík-
amsræktaraðstaðan getur
mjög vel verið hér í kjallar-
anum. Þá þyrfti fólk ekki
að fara eins mikið út á
Sjúkrahús á vetrum til að
fara í endurhæfingu. Það
sýnir líka hug bæjaryfir-
valda, þegar þeir láta ýta
inn á lóð okkar hér fyrir
ofan þúsundir tonna af
snjó, sem síðan bráðnar á
vorin með asahláku og öllu
því sem því fylgir.
Lokaorð
Svo langt var hið form-
lega viðtal. Ritstjórinn sat
góða stund eftir að hinu
formlega viðtali lauk og
ræddi við Sturlu um menn
og málefni. Við fórum í gegn
um myndasafn sem geymir
mikla sögu af lífinu vestur
á Fjörðum síðustu ára-
tugina.
Þá skoðaði ritstjórinn
líkön af nokkrum þeim
skipum og bátum sem
Sturla hefur smíðað. T.d
Golden Hind sem Sturla
var í rúmar 1100 stundir
með. Lengstan tíma tók þó
orustuskipið Vasa. I það
fóru um 1850 stundir eða
rúmlega eitt vinnuár.
Nú hefur Sturla fundið
teikningar af Samvinnu-
félagsbátunum og draum-
urinn er að smíða líkan af
þeim öllum. Það verður
fríður floti, ekki síður en
hann var þegar ísafjörður
var rauður bær og átti
fallegustu bátana og falleg-
ustu stelpurnar, svo notuð
séu orð gamals Siglfirðings
um þessa tíma.
Viðtalið tók Smári
Haraldsson, ritstjóri.