Ólafsfirðingur - 01.05.1962, Qupperneq 1
Olafslirðingur
1. tbl. Utgefandi: Sjálfstœðisfélögin í Olafsfirði. 1. árg.
A V A R P
Kœri lesandi.
Ólafsfirðingur hefur ekki komið út um nokkurra
ára skeið, og er það af ýmsum orsökum. Við, sem að
því stöndum að hefja útgáfu þessa blaðs í nýjum
búningi, teljum, að útgáfa blaðs í Ólafsfirði geti
orðið félags-, bœjarmála og menningarlífi staðarins
nokkur stoð. / blaðinu yrði vettvangur til þess að
rœða ýmis mál opinberlega af mönnum, sem gerst
þekkja til og verður að álíta, að það muni hafa heil-
brigð áhrif á umrœður um málin og framkvœmd.
Það er alkunna, að stórlega hefur dregið úr al-
mennum fundarhöldum hin síðari árin um mál, sem
varða almenning, þrátt fyrir viðleitni forráðamanna
hinna ýmsu félaga til þess að koma á slíkum um-
rœðufundum. Þetta stafar m. a. af auknu athafna-
lífi, sem gleðjast ber yfir í sjálfu sér, en afleiðing
þessa, hinar þverrandi almennu umrœður, hljóta að
valda því, að menn hálfþekkja oft hin ýmsu mál og
draga hœpnar ályktanir um þau, sem fara þá gjarna
eftir hugarflugi hvers og eins, fremur en sannleika,
sem leynast kann á bak við, og hefði ef til vill komið
fram við almennar umrœður. — I þessu efni getur
útgáfa blaðs orðið gagnleg, þótt henni séu að sjálf-
sögðu takmörk sett.
Ólafsfirðingur mun með þökkum taka aðsent efni
til birtingar, og mun veita allfrjálsan aðgang að
blaðinu öllum Ólafsfirðingum, hvar í flokki, sem
þeir standa.
/ ritstjórn Ólafsfirðings eru nú ungir menn og
óreyndir, en enda þótt ungir séu, gera þeir sér Ijósa
erfiðleika þá, sem eru í framkvœmd blaðaútgáfu í
okkar kœra Óiafsfirði. Engum getum skal því að því
leitt, hversu langlíf viðleitni þeirra og félaga þeirra
kann að verða, en ef vonir þeirra rœtast, munu þœr
á hverjum tíma kynna lesendum sig sjálfar.
Viðtal við bæjarstjóra
- Fréttir -
Ólafsfirðing'ur flyfcur fréttir úr
bænum að verulegu teyti fyrir
samsveitunga í öðrum byggðar-
lögum, auik þess sem hann vonar
að ailir, sem ti«l þekkja, muni hafa
af fróðleik nokkurn og skemmtun,
bæði heima og annars staðar.
Nýbyggingar.
Hér í Óalfsfirði eru í smíðum
17 íbúðarhús með 19 íbúðum. —
Kaupfélag Ólafsfjarðar er að
byggja imyndarlegt verzlunarhús
við Aðalgötu sunnan kjötbúðar-
innar. Nýlokið er byggingu ann-
ars verzlunarhúss við Aðalgötu,
Valbergs h.f., hins veglegasta og
iglæsitegasta húss. Fyrir skömmu
er einnig tekið til starfa nýtt
bifreiðaverkstæði, Múlatindur s.f.,
í nýjum húsakynnum, sem einnig
stendur við Aðalgötu. — Umsókn-
ir um 10 íbúðarhúsalóðir hafa
borizt byggingarnefnd frá ára-
mótum, einnig umsókn um iðn-
aðarlóð. — Geta má nærri, að
aðstaða tii iðnaðar og verzlunar
og þjónustu fer stórum batnandi
við þessar framkvæmdir, og nokk-
uð dregur úr húsnæðisskortinum,
enda þótt margir húsbyggjendur
séu ungt fóik, sem er að stofna
heimili, svo að ekki rýmist nedfct
húsnæði, þegar það flytur úr
föðurhúsum í nýjar eigin íbúðir.
Iiilun hitaveitunnar.
Fyrir nokkru féll snjófilóð yfir
aðaileiðslu hiitaveitunnar á Garðs-
dal. Ekki mun ieiðslan hafa brotn-
að, en sennilega raskazt við jarð-
hræringar, er snjóflóðið féll. Dró
ailmikið ioft inn í leiðsluna á
þessu svæði, og var óhægt um
vik að gera við skemmdirnar, þar
sem snjór var þarna 4—6 m á
þykkt. Nokkrar gúmpakkningar,
sem hafa innþornað og harðnað
munu hafa gefið sig og loft dreg-
izt inn í ileiðslurnar eins og áður
segir. Komið hefur fyrir að erfitt
Framh. á bls. 2.
Óiafsfirðingur kom að máli við
Ásgrím Hartmannsson bæjar-
stjóra og fór þess á leit, að hann
rabbaði svolítið við okkur um
bæjarmál Óiafsfjarðar. Varð Ás-
grímur fúslega við þeirri beiðni.
— Hvert er aðaláhugamál Ól-
afsfirðinga í dag, Ásgrímur?
— Aðaláhugamál Ólafsfirðinga
er og verður á næstunni hafnar-
málið, þ. e. að komið verði upp
öruggri höfn hér, svo að sjómenn
okkar fái hér bætta aðstöðu til
þess að vinna hér að þeim störf-
um, sem eru raunar grundvölur
að tilvist okkar hér. En því miður
hefur því máli miðað skemur en
skyldi af ýmsum orsökum, þrátt
fyrir góðan vilja.
— Hvað hefur miiklu fé verið
varið til hafnargerðar síðari ár ?
— Framkvæmdir á síðastliðnu
ári urðu minni en ráð hafði verið
fyrir gert, og stafaði það fyrst
og fremst af skorti á mönnum
til vinnu. Greiðslur vegna fram-
kvæmda í fyrra námu þó rúmlega
1 millj. króna hér heima, og und-
anfarin fjögur ár hafa samtals
farið ca. öýj miilj. króna í hafn-
argerðina. — Hafnarmálastjórnin
eða vitamálasfcrifstofan sér um
aila framkvæmd hafnargerða hér
sem annars sfcaðar.
— Og hverju hefur helzt þok-
að áleiðis í málinu?
—• Ein veigamesta framkvæmd-
in síðastliðin f jögur ár er dýpkun
sú, sem danska skipið Sansu
framkvæmdi, en það dældi veru-
legu sandimagni úr höfninni og
er óhætt að fuilyrða að það hafi
orðið og sé enn til miikiila bóta.
Erlent lán var fengið til þessara
framkvæmda, eitthvað á aðra
milljón króna. Auk þessa hefur
aðalvamargarður verið styrktur
nokfcuð, ný bryggja smíðuð og
söiltunarplan.
— Hver er aðstaða bæjar-
stjórnar til fjáröflunar til hafn-
argerðar ?
— Alþingi veitir fé á ári hverju
til ihafnargerða og eru þær fjár-
veitingar miðaðar við að ríkis-
sjóður greiði 2/5 hluta kostnaðar
við hafnargerðir skv. lögum. —
Hinn hlutann hefur bæjarstjórn
orðið að útvega og hefur fengizt
dálítið ifjármagn í þessu skyni
úr atvinnuleysistryggingasjóði og
atvinnuaukningasjóði með ríkis-
ábyrgð. Afitur á móti lána banikar
alls efcki til hafnargerða. Ólafs-
fjörður hefur fengið tiltölulega
hæstar fjárveitmgar og 'lán úr
nefndum sjóðum miðað við sam-
bærilega staði á undanfömum ár-
um. Hins vegar hefur fjármagns-
þörfin verið mifclu meiri heldur
en sjóðir þeesir hafa látið í té.
Til þessara brýnu framkvæmda,
sem aMir Óilafsfirðingar óska eftir
og afkoma þeirra byggist á, hef-
ur hvorki okkur — né öðrarn
bæjarstjórnum fyrir þeirra bæi —
tekizt að fá neitt annað fjármagn
en áður er nefnt og svo skammt
hefur dugað okfcur, nema sérstök
aðstoð hins opinbera hafi ikomið
til. —
— Er nokfcur von til að úr ræt-
ist með fjármagn?
— Nú er verið að afchuga um
verulegt erlent lán, sem og áður
hefur verið reynt, og auk þess
er vitað að ríkisstjómin vinnur
að stórri lántöku til hafnarfram-
kvæmda yfMeitt. Vonir standa til
að svar fáist við lánabeiðni þess-
ari á næstunni, og er ég bjart-
sýnn á að veruleg úrlausn fáist,
þar sem segja má að núverandi
ríkisstjórn hafi nú fyrst baft
tækifæri tiil þess að snúa sér að
umbótum í hafnarmálum þjóðar-
innar.
— En önnur mál bæjarbúa, —
hvað um hitaveitu?
— Allir íbúar Ólafsfjarðar og
ekfci sízt 'þeir, sem eru að byggja,
vænta mikils af borunarfram-
kvæmdum, sem fyrirhugaðar eru
í sumar. Eftir fcveggja ára bar-
áttu hefur okkur tekizt að fá
loforð fyrir iþví að við fiáum hinn
svonefnda Norðurlandsbor í sum-
ar, fyrstir manna hér norðan-
lands. Gunnar Böðvarsson verk-
fræðingur gefur okfcur góðar von-
ir um árangur, og við höfum góða
reynslu af iloforðum hans.
— Er nokkuð á döfinni í skipu-
lagsmálum hitaveitunnar ?
— Bárður Daníelsson verkfræð-
ingur hefur verið ráðinn til þess
að skipuleggja aMar hitaveitu-
lagnir, svo og vatns- og skólp-
veitulagnir og götur til undirbún-
ings varanlegri gatnagerð. — Er
ætlunin að byggja á þessu skipu-
lagi áæfclanir um kostnað þessara
framkvæmda í framtíðinni.
— Bærinn er í örum vexti?
— Á síðasfcliðinu ári hefur
íbúum bæjarins fjölgað um 50,
íbúðir eru 19 í smíðum og 12
lóðum hefur verið úthlutað að
auki í vor. Þrátt fyrir þetta er
fyrirsjáanlegt að Skortur verður
á húsnæði og hefur bæjarstjórn
því ákveðið að hefja byggingu
eins til tveggja raðhúsa á þessu
ári með fjórum íbúðum hvert.
— Nú er félagsheimiMsbygg-
ingu farsællega lokið. Hefur bæj-
arstjórn ekki á prjónunum nein
stórátök í hieiilbrigðis- og félags-
málum bæjarins?
— Undirbúningur er nú hafinn
að byggingu sjúkraskýlis hér. Það
er nú það mál, sem er einna mest
aðkallandi fyrir Ólafsfirðinga. Á
fjárhagsáætlun í ár er í fyrsta
sinni áætlað framlag tiil undir-
búnings þessa verks, en ætlunin
var að hrinda því fyrr í fram-
Framh. á bls. 5.
244430
Kl AMDQ