Ólafsfirðingur - 19.12.1964, Síða 8
Kristinn Jónsson:
Ötræði um aldamót
ÁRABÁTAÚTGERÖÐ var
hér þar itil Páll Bergsson
flutti hingað í Ólafsfjörð.
Með komu ihans miá segja að
vélbátaútgerð hafi komið
hér. Fram yfir aldamót, eða
þangað til vélbátaútgerð
hófst, lifði fólkið hér í sveit-
inni að mestu á landbúnaði.
Vor og hauslt réru menn frá
Ólafsfjarðarhorni, og áttu
margir sveitabændur þar
verbúðir og viðlegupláss.
Á þessum árum mun
mega telja að aflabrögð 'hafi
verið sæmileg. Gott þótti
að fá til hlutar 30 fiska í
róðri. Skipti voru þannig:
þar sem fjórir voru á, var
skipt í 7 sbaði, væru 5, jþá í
átta staði o.sfrv. Alltaf var
róið með línu. Væru sex
menn á skipi, voru hafðir
18 stokkar, 120 önglar hver.
Auk þess hafði hver maður
stúf. Það er: eigin aukalínu,
sem á voru 60 önglar.
Venjulega var línan stokk-
uð upp á sjónum. Efcki var
afh ahnennt verkaður sem
söluvara. Sveitamenn hirtu
afla sinn sjálfir og verkuðu
til heimihsnota og var hann
þá oítast hertur. Allt var
hirt: þorskhausar, lifur og
jafnvel kútmagar. Það var
vani, að hér framan úr firð-
inum var farið annan hvern
dag með hesta til þess að
sækja fiskinn. Var hann svo
flattur og hengdur upp eða
saltaður heima. Þessir
haustróðrar stóðu venjulega
frá göngum og fram til
fyrstu viku vetrar. — til
'beitu var kúfiskur og söltuð
síld.
Margir voru þeir sveita-
menn, sem enga útvegi áttu,
og ekki heldur gátu farið
til róðra eða sent mann í
ver. Venja var að gefa þess-
um mönnum upp á hest, við
og við á róðrartímanum.
Verbúðirnar stóðu á
ikambi, sem var hér kring-
um f jarðarhomið. Voru ibát-
arnir settir í fjöru, hver
niður undan sinni búð. Fisk-
vegsbændanna stóðu á milii
búðanna. Þeir vonz með
torfþaki og grindum. til
stafnanna. Ysta búðin stóð
á kambinum utan við krók-
inn, nálægt iþví, sem frysti-
hús Magnúsar Gamaliels-
sonar stendur nú. Oft kom
það fyrir, ef brimaði, að
setja iþurfti alla báta, og þá
stundum alla leið suður á
grasbala, langt ofan við
kambinn.
Það voru oft erfiðleikar
hjá fólki með öflun ibrýnustu
nauðsynja. Sækja varð vöru
til Akureyrar, en sjóleiðin
þangað, héðan frá Ölafsfirði,
er sjö sjómilur. Þetta var
farið á árabátum, oftast í
svartasta skammdeginu, rétt
fyrir jólin, og svo aftur upp
úr áramótum.
Héðan frá Ólafsfirði var
farið snemma morguns, ef
vel gekk, var komið til Ak-
ureyrar seinni hluta dags.
Væri hins vegar mótvindur,
sem oft bar við um þetta
leyti árs, tók ferðin mun
lengri tíma. Væri veðurútlit
gott, þá var strax að kveldi
haldið iheirn á leið aftur, og
var margur þreyttur að leið-
arlokum.
í frostavetrum gat það
komið fyrir, að Eyjafjörður
legði, allt út fyrir Hjalteyri.
Ég minnist þess eitt vor, þá
var ég ráðinn á færaskip frá
Akureyri og áttum við að
mæta til skips 1. marz, en
í Vélbátaútgerð á fjórða
tug aldarinnar.
þá fraus skipið inni á
Krossanesbótinni og kom-
umst við ekki út fyrr en á
uppstigningardag.
Eftir að Páll Bergsson
kom í Ölafsfjörð, minnkuðu
mjög kaupstaðarferðirnar
til Akureyrar. Páll rak hér
verzlun, var framkvæmda-
samur um margt og veitti
atvinnu. Má segja að hann
hafi verið vinsæll hér.
Áður en Páll Bergsson
kom hér í Ólafsfjörð, hafði
verið hér viðloðandi í ei'tt
■t Bátur settur á hausti
í hafnleysu.
eða tvö ár, maður frá
Grenivík og fengizt smá-
vegis við verzlun. Þegar
maður þessi fór, keypti
Páll eignir hans hér. ,Þá
mun aðeins hafa verið hér
tvö hús, önnur en verbúðir,
en þær voru nokkuð margar.
Drekkið EGILS drykki
um jólin
Umlboðsmaður í Ólafsfirði
GUNNAR ÞÓR MAGNÚSSON
Olgerðin Egill Skallagrímsson
Ólafsfirðingar!
Um leið og við óskum ykkur gleðilegra jóla og árnum ykkur
alls góðs í framtíðinni, viljum við leyfa okkur að minna ykkur
á það veigamikla atriði að hafa heimilið vel tryggt. — Innbús-
trygging er nauðsynleg fyrir hvert heimili, og er hún jafn-
fram mjög ódýr. — HEIMILISTRYGGING er fullkomnasta
trygging fyrir heimilið. Með heimilistryggingu er innbúið
brunatryggt, tryggt gegn vantstjóni og innbrotsþjófnaði,
heimilisfólk ábyrgðartryggt, húsmóðirin slysatryggð o.fl-
Öryggi heimilisins er bezt tryggt með heimilistryggingu.
Dragið ekki að tryggja. Það hafa allir efni á að tryggja, en
enginn efni á að missa eigur sínar ótryggðar.
Auk heimilistrygginga bjóðum vér yður:
Bifreiðatryggingar — Ábyrgðartryggingar bif-
reiða — Ferðaslysatryggingar — Brunatrygg-
ingar — Innbústryggingar — Glertryggingar —
Ábyrgðartryggingar — Slysatryggingar.
Heimilisfeður! Hafið þér athugað, að slysatrygging er nauð-
syn hverjum, sem hefur fyrir lieimili að sjá. Ef bér eruð
slysatryggður og slys hendir yður, fáið þér greidda dagpen-
inga frá þeim degi, sem óhappið henti yður. Einnig er þessi
trygging líftrygging vegna slysa.
Ef }>ér þurfið að tryggja, þá kynnið yður tryggingar vorar
lijá umboðsmanni vorum í Ólafsfirði
Ásgeiri Ásgeirssyni
MEÐ BEZTU KVEÐJUM
ALMENNAR TRYGGINGAR U.
8
ÓLAFSFIRÐINGUR