Ólafsfirðingur - 19.12.1964, Qupperneq 11

Ólafsfirðingur - 19.12.1964, Qupperneq 11
70 ÁRA ’ 1897—1909 féll síðan far- kennslan niður, en á þessum árum notuðu nokkur börn í sveitinni þorpsskólann. ★ Brautryðjenda- starf Páls Beres- sonar Seinni part sumars flytur hingað í Ólafsfjörð, árið 1897, Páll Bergsson, síðar kaupmaður hér. Hann var gagnfræðingur frá Möðru- völlum 1893. Kona hans var Svanhildur Jörundsdóttir frá Hrísey. Þau hjón voru mifcl- ar framfaramanneskjur og létu fljótt að sér kveða. Verkefnin skorti ekki, m.a. í fræðslumálum, en hér var við ramman reip að draga, þar sem voru gamlar og rót- grónar venjur. Ýmsir litu svo á, hér sem annars stað- ar, að ekki yrði bókvit í aska látið. Til þess að hef ja kennslu í þorpinu þurfti kennara og húsnæði, en hvorugt var til staðar. Brá þá Páll á það ráð, að hann bauð fram hús- næði og tóik að sér kennsl- una. Veturinn 1897—1898 Skenndi hann í stofunni íheima hjá sér 3—4 mánuði, 8—12 börnum, sem gengu til hans frá næstu býlum og bæjum. Næsta vetur fór hinu sama fram og var þar með lagður grundvöllur að föstum heimagöngu-ibarna- skóla í Ólafsfirði. ★ Fyrsta skóla- húsið 1899 Sóknarpresturinn, sr. Bm- il Guðmundsson á Kvíabekk,. var Páli samhentur 1 fræðslumálum, enda hinn mesti láhugamaður um þau efni eins og áður er frá sagt. Þessir tveir menn fcomu því til leiðar, að um sumarið 1899 var byggt fyrsta barnaskólahúsið í kauptúninu. Páll sá um framkvæmdir. Hús þetta var 8x8 álnir að stærð, ein kennslustofa. Var það jafn- frarnt 'byggt sem þinghús hreppsins, og einnig notað til annarra fundahalda og skemmtanahalds. Það stóð þar sem nú er Strandgata 3. Árið 1905 var húsið stækkað og bætt við það annarri kennslustofu, enn- fremur var Skólanum þá skipt í tvær deildir og við hann störfuðu tveir kenn- arar. ★ Strandgata 7 Fyrsta skóLaihúsið, sem var í upphafi af vanefnum gert, var svo notað með Litl- um breytingum fram til vorsins 1920. Læknir hafði þá um veturinn lagt blátt bann við, að það yrði notað lengur sem skólahús. Var þá um sumarið keypt í staðinn íbúðarhús sr. Helga Áma- sonar á kr. 9.000,00, þar af greiddi ríkissjóður krónur 2.500,00. Hús þetta er nú Strandgata 7. í Núverandi skólahús. oddviti, Grími Grknssyni, frá Möðruvöllum í Héðins- firði, og bað haim að taka að sér aðalkennslustarf við skólann. Varð Grímur við þessari beiðni, og hóf störf við skólann 3. nóv. 1906. Þessu S'tarfi 'gegndi hann til ársins 1934, eða í 28 ár, en þá varð hann að hætta störfum sökum heymar- deyfu. Grímur var fæddur í Stór- 'holti í Fljótum, 15. janúar 1882. Hann lauk gagnfræða- prófi frá Möðruvallaskóla) (sem þá var fluttur til Ak- ureyrar sökum skólabrun- ans á Möðmvöllum 1902) og f Gamla barnaskólaliúsið, byggt 1925. ★ „Gamli skólinn“ byggður 1925 Árið 1925 var þetta hús (Strandgata 7) einnig dæmt ónothæft sem skólahús, og þá var hafizt handa um að 'byggja nýtt skólahús úr steinsteypu. Var gengið að því með miklum dugnaði að koma húsinu upp, enda var þá oddviti hinn alkunni at- orkumaður, Þorsteinn Þor- steinsson. Haustið 1926 var skólinn vágður og itekinn í notkun. Brátt varð þó að taka á leigu húsnæði í þágu skólans, en skólahúsið, sem nú er notað, var byggt 1950. ★ Brautryðjendur í kennarastétt Svo sem áður er sagt, var Páll Bergsson fyrsti kennari barnaskóla í ÓLafsfirði. Vet- urinn 1900 tók við af hon- um Jón Bergsson, einnig gagnfræðingur frá Möðm- vöilum. Sumarið 1906 skrifaði Páll Bergsson, sem þá var 1906 lauk hann kennara- prófi frá Flensborgarskól- anum. Grímur var talinn af nemendum sínum frábær skólamaður. Hann hefur riit- að skólasögu byggðarlags- ins, og er stuðzt við heim'- ildir úr þeirri sögu hér. Árið 1929 'kom að skólan- um Jón Júlíus Þorsteinsson, frá Ósbrefcku. Hann hafði þá nýlega lo'kið kennara- prófi. Hann lagði mikla rækt við smábamakennslu og var íhér frumkvöðull að hljóð- lestraraðferð, sem þá var nýbreytni, en hefur verið notuð æ síðan í íslenzkum skólum. Við komu hans var bætt smábamadeildum við skólann, og vom 5 fyrstu árin um 30 böm í hverri deild. Taka varð húsnæði á leigu í þessu skyni. Af kennurum, sem síðar koma til sögu, áttu og eiga lengstan starfsdag að baki, Sigursteinn Magnúss., fyrrv. skólastjóri, og Bjöm Stefáns son, núv. skólastjóri bama- skólans. Gleðileg jól og gott og farsœlt komandi ár! Skipaútgerð ríkisins Gleðileg jól og gott og farsœlt komandi ár! Eimskipafélag íslands h.f. Óskum viðskiptaviimm vorum gleðilegra jóla og gœfuríks komandi ár. Þökkum viðskiptin á árinu. Bílaverkstæðið Múlatindur Bílaverkstæði 'Svavars Gunnarssonar, Ólafsfirði, óskar öllum viðskiptavinum sínum gleðilegra jóla og farsœls komandi árs, með þökk fyrir viðskiptin á árinu. Bílaverkstæði Svavars Gunnarssonar Óska, starfsfólki mínu og viðskiptavinum * gleðilegra jóla og farsœls komandi árs, Magnús Gamalíelsson, Ólafsfirði Óskum öllum viðskiptamönnum vorum gleðilegra jóla og góðs komandi árs. Þökkum viðskiptin á liðnu ári. Valberg h.f. STÍGANDI s.f. óskar starfsfólki sínu og við- skiptavinum gleðilegra jóla og góðs komandi árs. Stígandi s.f., Ólafsfirði Gleðileg jól og gott og farsœlt komandi ár! Þökkum viðskiptin á árinu. jR Tjarnarborg s.f. SPARISJtoUR ÖLAFSFJAKÐAK óskar öllum Ólafsfirðingum . ; gleðilegra jóla og góðs komandi árs. Sparisjóður Ólafsfjarðar Gleðileg jól og gott og farsœlt komandi ár! Þökk fyrir viðskiptin. m Skeljunigur h.f. Umboðsmaður í Ólafsfirði: Jónmundur Stefánsson, sími 131 ÓLAFSFIRÐINGUK 11

x

Ólafsfirðingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ólafsfirðingur
https://timarit.is/publication/1945

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.