Dögun - 18.01.1946, Side 1
„Af heiliim
Ávarpsorð
Útgefendur Dögunar óska
lesendum sínum farsæls, nýárs.
Ár þetta er ár mikilla vona og
mikilla framkvæmda, ef fólkið
veit og skilur sinn vitjunar-
tíma. Heldrungi genginna
stríðsára hefur að v.ísu að
mestu gengið hjá okkar garði
og h.eyrir nú fortíðinni til, en
áhrif hans eiga að birtast í heit-
strengingum fjöldans um bjart-
ari og farsælli framtíð handa
öllum íbúum jarðar, hvort sem
þeir byggja fjölmenn ríki eða
fámenn.
Fjórða hvert ár leggur þjóð
okkar dóm sinn til úrslita á
verk fulltrúa sinna í lands- og
bæjarmálum. Sé hún aðgerðum
þeirra samþykk og aðhyllist á-
ætlanir þeirra, þá á hún að velja
þá að nýju. En hafi þeir ekki
farið að vilja hennar og telji
sig fremur ráðendur en fulltrúa,
þá ber henni skylda til að hafna
þeim og velja aðra, sem ekki
hafa áður brugðizt vonum
hennar.
Sósíalistafélag Akraness veit,
að sjaldan eða aldrei hafa kjós-
endur orðið fyrir slíkum von-
brigðum með fulltrúa sína í
bæjarstjórn og hreppsnefnd
sem nú. Glapræði þessafa for-
ystumanna eruv svo mörg og
stór, að fáum mun hafa dulizt,
hvar sem þeir hafa staðið í
flokki. Bæjarstjórnin hefur
starfað á hálfleynilegum fund-
um og forðazt að skýra frá
samþykktum sínum og verkin
ein, eða aðgerðarleysið hefur
veitt upplýsingar um þær.
Sósíalistafélag Akraness
ræðst nú í útgáfu blaðs þessa.
Fyrsti tilgangur þess er að
kynna kjósendum stefnumið
þess lista, sem félagið stendur
að við bæjarstjórnarkosning-
arnar. Framtíð og vilji fólks-
ins verður svo að skera úr,
hvort blaði þessu auðnast að
sinna hinu hlutverkinu: Að
draga ætíð fram í dagsljósið að-
gerðir fulltrúa fólksins í bæjar-
stjórn, að gefa fólkinu tæki-
færi til að bera álit sitt fram
oftar en með einum bókstaf við
Allt frá stofnun Sameiningar-
flokks alþýðu Sósíalistaflokks-
ins hefur flokkurinn lagt ríka á-
herzlu á nauðsyn þess að öll al-
þýða stæði saman faglega og
pólitískt um hagsmuna og
menningarmál sín. Mikilsverð-
ir sigrar hafa unnizt í þeim
máluni og er nú svo komið
sem kunnugt er, að öll alþýðan
er nú sameinuð innan vébanda
hinna ýmsu stéttafélaga, sem
mynda órofa heild undir merki
Alþýðusambands íslands, með
jöfnum réttindum og skyldum
allra meðlima sinna. Um þýð-
ingu þessara sigra þarf ekki að
fjölyrða. Ollum landsmönnum
er Ijóst, að meðan ekkert skarð
verður brotið í múr samtaka al-
þýðunnar, er óhugsandi að
stjórna landinu með fjandskap
gegn verkalýðssamtökunum að
markmiði. Þetta er afturhalds-
öflum þjóðfélagsins vel Ijóst,
enda vitað að á þessum stað-
reyndum er stefna núverandi
ríkisstjórnar mörkuð svo og á
styrkleika Sósíalistaflokksins,
sem einn allra stjórnmála-
kjörborðið, og að túlka hver
þau nyt'jamál, sem ofarlega
verða á baugi með alþjóð eða
bæjanbúum.
Blaðaútgáfa er dýr og erfið
ekki sízt í prentsmiðjulausum
bæ. Þú, lesandi góður, skalt
því gera það upp við þig, hvort
þér finnst tilraun þessi verð
þess stuðnings, að halda megi
útgáfunni áfram þótt kosninga-
hitinn lækki. Viljirðu það, þá
aflaðu blaðinu kaupenda, aug-
lýsenda og hvers þess fjárstuðn-
ings þú mátt.
Útgefendur Dögunar eru
bjartsýnir á framtíðina. En hitt,
skilja þeir, að nú er hvert augna
blik dýrmætt. Ekkert starf er
verðmætara en það, sem gefur
margfaldan arð í framtíðinni.
Látum því enga stund ónotaða,
svo að mí dagi í öllu þjóðlíji
íslenzkrar alþýðm____
[lá n~dsb ókasátn
JV's 165911
fsÞANLS
flokka hefur staðið einhuga og
óskiptur um framkvæmd
stefnuskrár núverandi ríkis-
stjórnar. Rétt er í því sambandi
að benda á, að Sjálfstæðisflokk-
urinn gekk sundraður til þess
samstarfs, í miðstjórn Alþýðu-
flokksins varð samstarfið sam-
þykkt með 11 atkv. gegn 10, 4
sátu hjá og Framsóknarfl. sem
heild andvígur.
Þarna hlýtur afstaða AÍþýðu-
flokksins að vekja óskipta at-
hygli alls alþýðufólks, þar sem
um var að ræða að framkvæma
stefnskrá, sem í verulegum atr-
iðum lýtur hagsmunum hins
vinnandi fólks í landinu, ef
framkvæmd yrði. En vera má,
að þessi lítt skiljanlega afstaða
skýrist nokkuð af því sem hér
kemur á eftir. Svo sem öllum
Akurnesingum er kunnugt gaf
Sósíalistafélag Akraness út bæj-
armálastefnuskrá, sem bæjar-
búar hafa kynnt sér. Sem við
var að búast fékk stefnuskrá
þessi misjafna dóma, en þó má
fullyrða að hún túlki í megin-
atriðum stefnu alþýðufólks á
Akranesi í bæjarmálum, eink-
um þó hvað snertir aukningu
atvinnutækja, sem er höfuð-
atriðið. Það leið heldur ekki
langur tími frá birtingu stefnu-
skrárinnar þegar fóru að hey,r-
ast raddir frá hinum „ábyrgu“
í Alþýðuflokknum, að hér væri
ekkert nýtt á ferð, þeir gætu í
einu og öllu skrifað undir
stefnuskrána sem sína. I niður-
lagsorðum stefnuskrárinnar
stendur, „að Sósíalistafélag
Akraness sé fúst til samstarfs
við hver þau félagssamtök og
einstaklinga, sem að fram-
kvæmd stefnuskrárinnar vilja
vinna af heilum hug. Nú skyldu
menn ætla að þeir, sem fremst-
ir standa í Alþýðuflokksfélag-
inu (sem að sögn var þó ekki
til sem löglegt félag) og hafa
talið sig sérstaka brimbrjóta
alþýðunnar í hagsmunamálum
hennar, hefðu nú gripið þetta
tækifæri tveim höndum og unn-
hug"
ið að samstarfi þessara flokka,
sem hefði þýtt trygging fyrir
framkvæmd höfuðatriða ítefnu-
skrárinnar að svo miklu Icyti
sem hægt hefði verið vegna að-
gerða ríkisvaldsins. Sú varð
samt ekki reyndin, og leið svo
langur tími að ekkert heyrðist
úr þeim herbúðum. Trúir
(stefnu sinni og samkvæmt á-
skorunum fjölda alþýðufólks úr
öllum flokkum ákváðu Sósíal-
istar að skrifa Alþýðuflokksfél.
Akraness (ef til væri) eftirfar-
andi þréf, svo að séð væri
hvers vænta mætti af forystu-
mönnum Alþýðufl. í þessu máli.
Akranesi 22. nóv. 1945.
Á fundi sem haldinn var 20.
þ.m. var samþykkt með öllum
greiddum atkv. að skrifa Al-
þýðuflokksfél. Akraness og
leita eftir hvort ekki sé sam-
starfsvilji fyrir hendi hjá félag-
inu við í hönd farandi bæjar-
stjórnarkosningar.
Okkur er ljóst, að fólkið, sem
styður þessa flokka báða, 'er
því fylgjandi ' yfirleitt,, að
flokkarnir standi sarnan um
einn listú Það er álit okkar
sósíalista, að tækist samstarf
með þessum flokkum, sé meiri-
hluti verkalýðsflokkanna
tryggður og framgangur brýn-
ustu hagsmuna og menningar-
mála bæjarins. Ef félag yðar
samþykkir að hefja samræður
um þessa málaleitun okkar, þá
vinsamlegast sendist svar til
formanns Sósíalistafél. Akra-
ness, Skúla Skúlasonar, fyrir 30.
þ.m.
F,h. Sósíalistafélags Akraness.
(undirskr.)
Til Alþýðuflokksfélags
Akraness.
Eins og bréf þetta ber með
sér er með því leitað eftir sam-
starfsvilja Alþýðuflokksfél. um
samvinnu Og óskað svars innan
7 daga. Svar Alþýðuflokksfél.,
sem hér birtist, kom að vísu