Dögun - 18.01.1946, Síða 4
4
DÖGUN
C-listinn
listi sósilistaíélags Akra—
ness og óháðra
Á næstu fjórum árum ættu því
báðir skólarnir að eignast fram-
tíðarhúsnæði, og allt núverandi
húsnæði þeirra yrði þá laust til
annarra nota.
Ríkið mun greiða helming
byggingarkostnaðar gagnfræða-
skólans, en væri ekki fé fyrir
hendi í bæjarsjóði til greiðslu á
hinum hlutanum til væntan-
legra skólabygginga, þá sýndist
sjálfsagt að bærinn tæki lán tií
langs tírna, svo að ekki stæði á
fé. Sú stefna er vafalaust rétt,
að láta ekki reisendur menn-
ingarstöðva eina um að greiða
þær. Komandi kynslóðir, sem
eiga að njóta ávaxta þeirra,
munu ekki vanþakka það, þótt
þær greiði sinn hlut Hitt munu
þær vanþakka og að réttu, ef
við gerum ekki tafarlaust
skyldu okkar um bætta að'búð
æskunnar.
Húsmœðraskólinn. Ollum er
nú að verða Ijós nauðsyn stað-
góðrar andlegrar og verklegrar
þekkingar húsfreyjanna og til-
vonandi mæðra. I þeirra hönd-
um er ekki aðeins magaleg vel-
líðan allra heimilsmanna, held-
ur annast þær hið fyrsta upp-
eldi hvers einasta borgara. Sé
nokkurs staðar þörf staðgóðrar
þekkingar á uppeldismálum, þá
er það meðal kvenna.
Hér í bæ mun vera allmikill
áhugi fyrir stofnun húsmæðra-
skóla, og mun kvenfélagið haf-a
haft þar -forystu um alllangt
skeið. Veit ég eigi, hvað langt
þessar áhugakonur hafa komið
máli þessu, en bæði er það, að
húsmæðraskól-ar eru Iögum
samkvæmt bæjar- og ríkisstofn-
anir, og einni-g er það málefna-
leg skylda bæjarins að veita
þessu brautargengi. Ber því
bæjarstjórn að hlutast strax til
urn lausn þessa rnáls. Meðan
ekki er til vinunandi húsnæði,
þarf að starfrækja námskeið
fyrir húsmæður og húsmæðra-
efni. Hins vegar ber að athuga,
hvort ekki fyndist einhver
bráðabirgðalausn á húsnæðis-
málinu, svo að s-kólinn , gæti
hafið starf sitt sem fyrst. Hins
vegar er rétt að benda á, að
ríkissjóður greiðir % stofn-
kostnaðar húsmæðraskóla. Enn-
fremur verður að telja bænum
til útgjalda mikinn hluta þess
fj-ár, sem margar stúlkur úr
bænum verj-a nú, til þess að
geta stundað nám við slíka
skóla annars staðar á landinu.
í sambandi við húsmæðra-
skólann hér væri svo gött að
starfrækja ætíð námskeið fyrir
húsmæður, sem ekki h-afa eða
geta átt þess kost að sækja
skólann.
Iðnskólinn. Iðnskólar eru að
vísu ekki reknir a.f ríki eða
bæjum, en fjarstætt virðist, að
menntun iðn-aðarmannna sé sér-
mál þeirra, sem ekki snerti
lándsmenn. Bæjarstjórnum ber
hv-arvetna skylda til að veita
sem beztan stuðning til að starf
iðn-skólanna geti borið tilætlað-
an árangur til heilla alþjóð.
Ég mun. ekki beiyla hér á
nauðsynlegar úrbætur í húsnæði
iðnskólans. Ilitt tel ég skylt, að
þar verði heppileg lausn fundin
í sambandi við aðra skóla, þótt
ég telji sjálfsagt, að hver skóli
‘búi sem mest að sínu, bæði um
húsnæði og annað.
En ég tel nauðsyn að bærinn
beiti afli sínu m.a. til þess að
iðnskólinn yrði starfræktur sem
fullkomin dagskóli 3—4 mán-
uði ársin-s. Ég hef undanfarin
sex ár (að þessum vetri undan-
skildum) kennt við iðnskóla og
þykist því mega segja það, að
núyerandi fyrirkomulag, sem
tíðkast um allt land, er alls ó-
hæft. H-verjum dettur í hug, að
sæmilegur árangur náist, þrátt
fyrir bezta vilja, þegar nemend-
ur verða að fara úr vinnunni
beint í skólann og eiga síðan að
stunda heimanám, þegar líður
að háttatíma hjá öðrum? Meist-
arar eru kannske smeykir við
þessa breytingu, en ég hygg að
sá ótti sé ástæðulaus, og hef ég
marga meistara talað við, sem
töldu slíka breytingu til bóta,
.einnig fyrir þá, vegna aukinnar
athygli nemanna við vinnu,
þegar skólanámið truflaði ekki.
Sjómannanámskeið. Sjávar-
plássi er nauðsyn að eiga góða
og g-egn-a sjómannastétt. Hér
þarf bærinn að koma á verk-
legum og e.t.v. bóklegum nám-
skeiðum fyrir sjómenn. Slík
námskeið ætti að starfrækja 2-
2(4 mánuð að hausti, ár hvert.
Hygg ég að skjótt mundi sjást
árangur af kennslu í hagnýtum
vinnúbrögðum, hjálp í viðlög-
um o.s.frv.
Bamaleikvöllur. Enginn bær
má vera án hentugs svæðis fyr-
ir börn til alls kon-ar útileikja
að sumri til. Mæðrum er ó-
m-etanlegt gagn að slíkum völl-
um, og börnunum er hann
heilsubrunnur og veitir full-
næginu starfslöngunar, sem er
ríkasta eðli b-arnsins. Slíkum
velli verður að koma upp á
nœsta vori og starfrækja h-ann
síðan hvert sumar a.m.k. 3
framboðslisti Sósíalistafélags
Akraness og óháðra manna við
bæjarstjórnarkosningarnar 27.
janúar, var lagður fram 31. des.
s.l. Hann er þannig skipaður:
1. Sk-úli Skúlason, verkamað-
ur;
2. Hans Jörgensson, húsa-
meistari; \
3. Ingólfur Runólfsson, kenn-
ari;
4. Pétur Jóhannsson, verk-
smiðju-stjóri;
5. Hel-gi Þorláksson, skóla-
stjóri;
6. Magnús Norðdal, bílstjóri;
7. Axel Eyjólfsson húsgagna-
smíðameistari;
8. 'Haraldur Sigurð-sson vél-
virkjameistari;
mánuði. Þrenns er þá nauðsyn-
legt að gæta:
1) Að velja vellinum góðan
og hengtug-an stað, m.a. með
tilliti til þess að þar yrði e.t.v.
reist dagheimili og vöggustofa.
2) Að hafa nauðsnleg leik-
tæki og skýli á vellinum, en
hvort tveggja kostar mjög lítið
og þarfnast lítils viðhalds.
3) Að ráða hæfan umsjónar-
m-ann eða menn til stöðugrar
umsjónar á vellinum. Verður
það hinn raunverulegi reksturs-
kostnaður vallarins að greiða
umsjónarmanni laun, og má
ekkert verða til þess, að hann
geti ekki helgað sig þessu st-arfi
yfir sumarið. Heppilegt teldi
ég, að sfarf þetta væri falið ein-
hverjum barnakennara og góð
stúlka væri honum til aðstoðar.
Mun ekki standa á mannvali.
Sumardvöl barna. Af hern-
aðarátsæðum mun hafa verið
komið upp dvalarheimili fyrir
börn hér í bæ. Nú er sem betur
-fer ekki þessi nauðsyn, sem
knýr til slíks starfs. Skal ég
ekki fúlyrða, að slíkt dvalar-
heimili sé tímabært, en hitt er
vafalaust, að mjög er mikils-
vert, að ung börn dvelji á fögr-
um stöðum í sveit, þótt ekki
væri nema eina viku hvert
sumar. Frú Kristr-ún Ólafs-
dóttir hefur undanfarið brotizt
í að hald-a uppi slíkum bæki-
stöðvum og hefur þar notið
lítils styrks, annars en fórnfúsr-
9. Árni Sigurðsson, skips-
stjóri;
10. Ársæll Valdemarsson,
iðnnemi;
11. Ingi Gnðmundsson, báta-
smiður;
12. Ásgrímur Sigurðsson,
verkamaður;
13. Gísli Guðmundsson, sjó-
maður;
14. Halldór Bachmann, iðn-
nemi;
15. Leifur Gunnarsson, bif-
reiðarstjóri;
10. Þorvaldur Steinsson, sjó-
maður;
17. Þórður Valdimarsson bif-
reiðastjóri;
18. Halldór Þorsteinsson,
vélvirki.
ar hjálpar nokkurra manna og
kvenna. Bæjarstjórninni ber
skylda til að #inna þessu starfi
hennar með virkri aðstoð. Það
er ekki viðunandi fyrir bæinn
að allt starfið verði að vera
unnið í frístundum áhugafólks,
án nokkurra launa. Meðan
bærinn rekur enga slíka starf-
semi sjálfur á hann því að
greiða laun star-fsfólksins og
veita styrk til að við'unandi
húsnæði fái-st fyrir starf þetta.
Eg veit, að hinir fjölmörgu
bæjarbúar, sem hafa kunnað
að meta þessa starfsemi, taka
undir þessa kröfu, en sjálfur
hafði ég glöggt tækifæri til að
kynnast þessu dvalarheimili í
sumar, og. er mér ljóst, að ann-
markar þess stafa af erfiðum
aðstæðum en ekki vilja- eða
skilningsleysi starfsfólksins.
Þetta verður nú að nægja
um skóla- og uppeldismál og
brýnustu úrbætur þeirra. Skal
ég að siðustu taka það fram,
að fullt samkomulag er meðal
frambjóðenda C-listans um
þessi mál, og munu þeir beita
sínum mætti til framgangs
þeim í bæjarstjórn og utan.
í framhaldsgrein mun ég svo
víkja að öðrum menningar-
málum, svo sem íþróttamáium,
heilbrigðismálum og ýmsum al-
mennum menningaratriðum
öðrum.
Tlelgi Þorláksson.
é