Dögun - 24.06.1946, Side 6
6
D O G U N
Hér á Akranesi urðu þrír húsbruuar
síðast liðinn vetur, 1. mars kviknaði í
efri hæð Niðursuðuverksmiðju H. B.
8c Co. Eyðilagðist þak hússins og all-
ar þær dósir og aðrar vörur, sem þar
vóru. Viðgerð var þegar hafin á hús-
inu og gekk mjög vel, tók aðeins tvær
vikur.
/5. april kviknaði í Hótel Akranes
og brann það til grunna á skömmum
tíma. Húsið var vátryggt, en gestir og
starfsfólk varð fyrir tilfinnanlegu tjóni.
í Hótelinu brunnu málverk og mjög
sérkennileg útskorin ljósakróna, sem
Jón Guðmundsson hóteleigandi átti.
Einu málverki, mjög verðmætu (af
Þíngvöllum) var bjargað.
/5. mai brann Sláturhús Bjarna
Olafsson & Co. á Akranesi. Sláturfélag
Suðurlands hefur notað þetta hús á
háustin, en þess á milli hefur verið
geymt i því veiðarfæri og ýmsar aðrar
vörur. Húsið brann til grunna og allt
sem í því var. Sannast hefur, að um
íkveikju var að ræða, og bíður málið
dóms.
iy. júni voru éngin hátíðahöld á
Akranesi, bæjarstjórnar meirihlutan-
um þótti víst ekkf taka því.
Er hér um slíkt regin hneyksli að
ræða, að einsdæmi mun vera, enda er
óánægja almennings geysileg, án til-
lits til flokka.
H. Þ. og I. R. sendu forseta bæjar-
stj. svohljóðandi bréf, þegar sýnt þótti
að engrar forgöngu mátti vænta hjá
stjórnendunum:
Akranesi, 11. júní 1946.
Við undirritaðir bæjarfulltrúar
krefjumst þess hér með, að tafarlaust
verði haldinn fundur í bæjarstjórn
Akraness. Teljum við niðurfellingu
funda undanfarna rúma tvo mánuði
skýlaust brot á 7. gr. fundarskapa
bæjarstjórnarinnar, þar eð vitað er, ;að
ýmis mál liggja fyrir.
Ennfremur bendum við á nauðsyn
þess, að fundur verði strax haldinn,
svo að hægt verði að kjósa nefnd til
undirbúnings lýðveldisfagnaðar 17.
júní n. k.
Helgi Þorláksson.
Ingólfur Runólfsson.
Til Ólafs B. Björnssonar,
forseta bæjarstjórnar Akraness.
Bréfi þessu var á engan veg sinnt.
Framboð til Alþingis. Alþingis-
kosningar eiga að fara fram 30. þ. m.
Þessir frambjóðendur eru í kjöri hér
í Borgarfjarðarsýslu:
Fvrir Alþýðuflokkinn: Baldvin Þ.
Ivristjánsson, erindreki Landsamb. ísl.
útvegsmanna.
Fyrir Framsóknarflokkinn: Þórir
Steinþórsson, skólastjóri í Reykholti.
Fyrir Sósíalistaflokkinn: Stefán Ög-
mundsson, varaformaður Alþýðusam-
bands íslands.
Fyrir Sjálfstæðisflokkinn: Pétur
Ottesen, bóndi á Innra-Hólmi.
Hálfdán Sveinsson, kennari hér, er
í framboði fyrir Alþýðuflokkinn í
Dalasýslu.
Friðrik Hjartar, skólastjóri hér,
hefur verið leiðbeinandi á námsskeiði
fyrir norðlenzka kennara. Mót þeirra
var að Laugum í Þingeyjarsýslu.
Austurför gagnfrœðinganna. Gagn-
fræðingar þessa vors fóru í kynnisför
austur á Síðu rétt fyrir hvítasunnu.
Voru þeir tæpa viku í förinni, skoð-
uðu merkisstaði, fóru í gljúfragöngu
og brugðu sér á hestbak. Ferðin gekk
að óskum, og skilur vonandi eftir góð-
ar minningar hjá ferðalöngunum.
Framkoma þeirra var prúð og Akra-
nesi til sæmdar.
Þeir Ólafur Hjartar, kennari og
Helgi Þorláksson, skólastjóri, voru
leiðsögumenn.
Síldveiðibátar eru sem óðast að
búast á veiðar og sumir farnir. Dögun
óskar þeirn öllum fararheilla og góðr-
ar heimkomu að loknu fengsælu
sumri.
Almennur kjósendafundur var
haldinn hér í Bíóhöllinni síðastliðinn
fimmtudag. Sósíalistaflokkurinn boð-
aði til þessa fundar, og fluttu þeir
Einar Olgeirsson, varaform. Nýbygg-
ingarráðs, og Stefán Ögmundsson,
frambjóðandi Sósíalistaflokksins, ræð-
ur. Um 90 manns sátu fundinn.
Framboðsfundur var hér á laugar-
dag. Töluðu þar frambjóðendur
flokkanna og lýstu viðhorfum sínum
til helztu Jrjóðmála. Tæp 200 manna
sátu þenna fund, þegar flest var.
I næsta blaði verður nánar sagt frá
báðum þessum fundum.
Sr. Þorsteinn Briem, prófastur,
kvaddi söfnuð sinn með messu i gær.
Lætur hann nú af embætti eftir ald-
arfjórðungsstarf hér. Sr. Magnús Run-
ólfsson, aðstoðarprestur hahs, þjónaði
fyrir altari, sr. Friðrik Friðriksson tók
til altaris, en sr. Sigurbjörn Á. Gísla-
son flutti prófasti kveðju prestastefnu
fslands. Form. sóknarnefndar, Jóhann
B. Guðnason, þakkaði próf. störf hans
og árnaði heimili hans allra heilla.
Mikill mannfjöldi kvaddi þar sinn
virðulega læriföður.
Prestskjör fór fram í gær. Umsækj-
endur voru 8, en 5 höfðu dregið sig til
baka. Var því kosið milli sr. Jóns M.
Guðjónssonar í Holti, cand. theol. Sig-
urðar M. Kristjánssonar og sr. Þor-
steins Jóhannessonar í Vatnsfirði.
866 kjósendur, af 1307, neyttu at-
kvæðisréttar síns, eða um 66,3%.
Samkvæmt lögum, fer talning atkvæða
ekki fram fyrr en seint í vikunni.
Talið verður hjá biskupi.
1 nastu blöðum birtast fréttir af
skólunum, íþróttastarfinu, bæjarstjórn
o. fl.
Þeir, sem vilja koma efni í næsta
blað, sendi það í síðasta lagi á mið-
vikudag. Greinar mega vera merktar
dulnefni, en nafn höfundar verður að
fylgja til blaðsins;
Ritstj.
Akranes —
HreSavatnsskáli
ekið um Svignaskarð.
Alla daga frá Akranesi kl. 9
eftir komu skipsins til Akraness,
nema laugardaga kl. 15,30 og
sunnudaga kl. 13,30.
Frá Hreðavatnsskála kl. 17,
nema laugardaga kl. 18.
Afgreiðsla í Hreðavatnsskála hjá
Vigfúsi Guðmundssyni, í Reykja-
vík hjá Frímanni Frímannssyni,
Hafnarhúsinu, sími 3557 og á Akra-
nesi á Óðinsgötu 16, simi 17.
Fólk er beðið um að tryggja sér
farmiða á ofantöldum stöðum fyrir
kl. 18 daginn áður.
Þórður Þ. Þórðarson.
TILKYNNiNG
til síldarsaltenda
Þeir síldarsaltendur, sem ætla að salta síld á þessu
sumri, þurfa samkvæmt 8. gr. laga nr. 74 frá 1934 að
sækja um leyfi til Síldarútvegsnefndar.
- Saltendur þurfa að upplýsa eftirfarandi:
1. Hvaða söltunarstöð þeir hafa til umráða.
2. Af hvaða skipum þeir fái síld til söltunar.
3. Hvaða eftirlitsmaður verður á stöðinni.
4. Hve margt síldarverkunarfólk vinnur á stöðinni.
5. Eigi umsækjendur tunnur og salt, þá hve mikið.
Þeir saltendur, sem óska að fá tómar tunnur og salt
frá Síldarútvegsnefnd, sendi umsóknir til skrifstofu nefnd-
arinnar á Siglufirði fyrir 30. júní 1946.
Síldarútvegsnefnd.
Akurnesingar!
Sækið ekki til annarra staða
vörur, sem fást innan bæjar.
Glerslípun Akraness h.f.
býður ykkur aðeins fyrsta flokks
vörur, svo sem:
V indutjaldastangir,
V indutjaldadúk,
Gluggagorma,
Messing rennibrautir,
Spegla, allskonar,
Glerhillur,
Gler, 3—6 m.m.
Málningu, allskonar.
KOMIÐ, SJÁIÐ
og þið munuð sannfærast um
gæðin og verðið.
Glerslípun Akraness h.f.
r
Aætlunarferðir.
Áœtlunarferðir
Akranes—Reykholt—Reykjavík
mánudaga.
Þriðjudaga sömu leið til
baka.
Akranes—Reykholt
miðvikudaga og föstudaga.
Akranes—Reykjavík
fimmtudaga.
FERÐAFÓLK!
Athugið, að tíminn er
peningar. - Þið þurfið
stytztan tíma til að
komast áður nefndar
leiðir með
Magnúsi Gunnlaugssyni.
Akurnesingar!
Borgfirðingar!
Bráðlega kemur rafmagn-
ið frá Andakílsárvirkjun-
inni.
TALIÐ VIÐ MIG í TÍMA,
ef ykkur vantar
rafmagnsáhöld,
raflagnir
eða viðgerðir
á eldri lögnum.
Hringið í síma 91.
Sveinn Guðmundsson
r a f v i r k i
Suðurgötu Akranesi