Þingey - 19.12.1945, Side 5

Þingey - 19.12.1945, Side 5
Hiisavík, 19. desember 1945 ÞINGEY 7 Sósialistar! Verkamenn og verkakonur, látið þá. sem auglýsa í Þingey njóta viðskipta yðar. eru fyrir því, hvert vegir verða lagðir, hvar símalínur gerðar og rafmagn leitt. Ég tel þess- vegna ástæðulaust með öllu að harma það þótt nokkuð sneiðist af fremstu afdala og heiða- hyggðum. — Það er eðlileg þróun“..........Það er eigin- lega gleðilegt að mitt í hinni pólitísku moldviðrisbaráttu skuli koma fram jafn hreinskilnings- ar og hispurslausar umsagnir og jafnvel óbein viðurkenning þess, að hin langa barátta sósi- alista fyrir samfærslu byggð- anna og breyttum búskaparhátt- um hefir ekki verið unnin fyrir gýg- Það er meira virði fyrir þing- eyskan landbúnað og menningu — svo eitthvert dæmi sé tekið — að þau þrjú byggðahveríi, sem talin eru upp í frumvarpi Krist- ins Andréssonar og Brynjólfs Bjarnasonar um Nýbyggðir og nýbyggðasjóð komist upp sem fyrst hér í sýslunni, heldur en a'ð halda við við byggð í Fjörð- um, utanverðri Látraströnd, Flateyjardal eða Náttfaravíkum. Það þýðir ekkert að sítera það að „fagurt sé í Fjörðum þegar frelsarinn gefur veðrið blítt“, eða sauðland gott í Víknafjöll- um. Slíkt er rómantik en ekki raunsæi. Það verður að horfast í augu við staðreyndir. Menn okkar nýju atormaldar kjósa heldur að búa í Keflavík, þar sem flugvéladrunur heyrast dag og nótl og öldur heimshræring- anna falla að ströndu; en þeirri Keflavík, sem* harmsaga sú er varð Guðmundi skáldi á Sandi að yrkisefni gerðist. Pólitískir angurgapar geta galað um viðhald hinna dreifðu byggða, en mundi til dærnis hr. Þórarinn Þórarinsson ritstjóri Tímans, hr. Haukur Snorrason ritstjóri Dags, hr. Gísli Kristjáns son eða aðrir ámóta höfðingjar vilja gerast bændur á Vargnesi eða Keflavík í Fjörðum eða jafn vel þó þeim væri boðið gamalt höfuðból, eins og Þönglabakka. — Ég held tæplega og ég lái þeim það ekki heldur. En það er lítilmennska, að kirja lofsöng um einyrkjubúskap á útskögum og annesjum, en hreiðra sem fastast um sig í skrifstofum borganna. —v— „Maður er manns gaman,“ segir garnall málsháttur. Þetta hefir íslenzk sveitaæska fundið og tileinkað sér. Kannske hefir ekkert kennt henni það eins vel, og þannig stuðiað að flótta henn ar úr sveitunum, eins og alþýðu- skólarnir. Að koma úr einangr- un afskekktra heimila, og vera Ur paKaliorainu r/Enginn er svo leiSur oð Ijúga . . Brófkafli úr sveitinni. Einn frómur Framsóknarmað- ur, einn þessi, sem sér ekkert og hugsar ekkert, nema það sem Framsókn vill að hann heyri og sjái, — allt, sem þar er fram yf- ir er af hinum vonda, sem ber að varast, — kom til granna síns dag nokkurn í haust um það bil, er Alþingi kom saman. Var hon- um all mjög brugðið og mikið niðri fyrir. Spurðnr var hann tíðinda eftir gömlum og góðum sveitasið. Jú, hann sagði miklar fréttir og merkilegar. Banda- ríkjamenn voru búnir að her- nema ísland aftur vegna þess að „kommúnistar“ voru í undir- búningi með að fá Rússa til að hernema landið.“ samvistum við heilan hóp jafn- aldra, stundum fleiri vetur hefir mikil og varanleg áhrif. Fá- breytni sveitalífsins nægir þeim mörgum ekki lengur. Heilar sveitir eru nú þannig settar, að þar fyrirfinnst ekki nokkur mað- ur á aldrinum 18—30 ára. Þar er einungis eldra fólk og börn, sem enn eru ekki skriðin úr hreiðrinu. Hér er um miklu meira vandamál að ræða en ýmislegt það, sem nú er mest geipað um í blöðum þess flokks, er nýlega rak eina bóndann, sem var í miðstjórn hans úr henni. Unga fólkið eyrir ekki í dreif- býlinu. Það vill geta komið sam- an og skemmt sér, dansað, farið á bíó, rætt sín áhugamál, gengið á skóla, æft íþróttir o. s. frv. Þetta getur það ekki í strjálbýl- inu nema nijög takmarkað og hvert á þá að leita nema í kaup- staðina. En það mun öllum koma saman um það að ekki sé heppi- legt, að öll þjóðin hnappist sam- an á fáeina litla malarbletti við sjóinn. Töluverður hluti þjóðar- innar þarf að halda áfram að eiga heima og starfa í sveitun- um, ekki bara eldra fólk og börn, heldur líka æskan, með sitt fjör, sinn áhuga og starfsþrótt Það er þennan vanda, sem þarf að leysa og þar eru byggðahverfin eina úrlausnin, sem líkleg eru til úrbóta, svo nokkru nemi, Þau eiga að sameina kosti sveitalífsins við fjölbreytni bæj- arins, —- mynda sveitaþorp, þar sem félagslíf og mentastarfsemi getur þrifist, og hægt er að koma við allri þeirri tækni, sem 20 öldin hefir upp á að bjóða. Jón Þ. Buch. Granni hans dró í efa að þetta gæti verið rétt. Jú, það var á- reiðanlega rétt frétt. „Hafði þetta þá komið í útvarpinu?“ spurði granninu. „Nei, ekki var það.“ „í símanum þá?“ „Nei, eklci heldui, en fréttin átti bara að berast svona milli manna ut- an útvarps og síma.“ Þannig undirbýr Framsókn kosningarnar. bak við tjöldin, treystandi því „að enginn er svo leiður að Ijúga, að ekki sé ein- hver Ijúfur að trúa.“ V Hverjir eru landráðamennirnir? Eftir þá vitneskju, sem síast hefir út til íslenzku þjóðarinnar, um hina lokuðu fundi Alþingis, varðandi afsal landsréttinda á íslandi, Bandaríkjum Norður- Ameríku til handa, virðist það frambærileg krafa, að þeir sem aðstöðu hafa til þess, leiði þjóð- ina í allan sannleika um það, hverjir af íslenzkum stjórnmála- mönnum hafi verið slíku afsali fylgjandi. Því að augljóst er, að íslenzku þjóðinni, ekki síður en öðrum þjóðum, ber ófrávíkjanleg skylda til að setja sínum „kvisl- ingum“ hæfilegar skriftir fyrr en í ótíma. V Úr þorpinn og nágrenni Iðnaðarmannafélag Húsavíkur hafði kvöldskemmtun í Samkomuhúsinu laug- ardagskvöldið 1. þ. m. Einar J. Reynis setti samkomuna með ræðu, Helgi Hálf- dánarson lyfsali og Egill Jónasson lásu upp og Edvard Fredriksen söng gaman- vísur. Auk þess var til skemmtunar stutt- ur gamanleikur, bögglauppboð og dans. IJúsið var þétt, skipað og skemmtu sam- komugestir sér með ágætum. Sjötug varð 19. f. m. frú Helga Þórar- insdóttir kona Vigfúsar Vigfússonar verka- manns. Sextugur varð 25. f. m. Benedikt Krist- jánsson bóndi á Hólmavaði í Aðaldal. Nýlátinn er í sjúkrahúsinu hér Jón Snorrason bóndi frá Þverá í Laxárdal, tæplega sextugur að aldri. Einnig er fyr- ir skemmu látinn að heimili sfnu Vogum við Mývatn Jónas Hallgrímsson bóndi þar. 986 neytendur í Húsavík hafa rétt til niðurgreiðslu á kjöti samkvæmt bráða- birgðalögum ríkisstjórnarinnar. — Niður- greiðslurnar fara fram ársfjórðungslega og er fyrsti ársfjórðungur liðinn nú þann 20. þ. m. Þingeyingur heitir nýtt blað, sem Hér- Húsavíkur-Bíó JÓLAMYND Ráðkæna stúlkan með Deanne Durbin í aðalhlutverkinu Bráðskemmtileg og hrífandi söngmynd, sem kemur öll- um í jólaskap. B Æ K U R TIL JÓLAGJAFA: Sjósókn, e. Erlend á BreiðabólsstaS. Vor um alla veröld. Æskuævintýri Tómasar Jeffersens þýdd af Andr. Krístjónssyni. Ódóðahraun, 1.—3. Sveitin heiilar, þýdd af Sig. Gunnars- syni, skólastjóra. Undraflugvélin. Kfói. Kyrtillinn, e. L. Douglas. Bóndinn í Kreml. Órabelgur. Þrjú ævintýri, e. Stéfón Jónsson. Úrvalsljóð Stephans G. Stephanss. Sálin hans Jóns mins, e. D. Stefánss. Jólavaka. Þúsund og ein nótt, T.—3. Ritsafn Jóns Trausta. Ritsafn Einars Kvaran. Ritsafn Jóns Thoroddsen. Ljéðmæli Daviðs Stefánssonar. Tveir hjúkrunarnemar. Bernskubrek og æskuþrek. Þjóðsögur Óiafs Daviðssonar, 1,—-3. Bó k a v e r z 1 u n Þór. Stefánssonar. --------------—------ aðssamband S.Þingeyinga hefir hafið út- gáfu á. Blaðið, birtir að þessu sinni, auk frétta af félagsstarfsemi Sambandsins, greinar ýmislegs efnis og kvæði eftir Kon- ráð Vilhjálmsson. Þingeyingur fer mynd- arlega af stað og er vonandi að Samband- inu takist að halda útgáfu hans áfram. Sparisjóður Húsavíkur átti 50 ára starfs- afmæli 14. þ. m. Grein um Sparisjóðinh og stsrfsemi hans birtist í blaðinu síðar.

x

Þingey

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þingey
https://timarit.is/publication/1947

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.