Læknaneminn - 01.04.2022, Blaðsíða 14
12 LÆKNANEMINN
fram þegar námslegar kröfur í skóla aukast
með vaxandi aldri barnsins.3 Einnig koma
einkenni einhverfurófsröskunar oft fyrst
upp á yfirborðið þegar kröfur í félagslegum
sam skiptum aukast á unglingsárum. Rann
sóknir á tíðni taugaþroskaraskana sýna
fram á mismunandi niðurstöður eftir því
hvaða raskanir er verið að skoða. Nýleg
rann sókn skoðaði tíðni athyglisbrests með
ofvirkni, einhverfurófsraskana, alvar legrar
sjón skerðingar, heilalömunar, alvar legrar
heyrnar skerðingar, náms erfiðleika, þroska
hömlunar, floga og mál þroska raskana.
Skoðuð var tíðni hjá 317 ára gömlum börnum
í Bandaríkjunum þar sem heildar tíðni
þessara raskana var 17,8% og var það hækkun
um 1,6% frá því nokkrum árum áður.8
Hildur Björg Gunnarsdóttir
Sérnámslæknir í barnalækningum við
Háskólasjúkrahúsið í Osló
Þroskaferill
Þroskamynstur barna fylgir oftast ákveðnu
ferli eins og sjá má á mynd 1. Út frá
normaldreifingu helstu þroskaáfanga má
kortleggja eðlilegan þroskaferil sem gerir
ráð fyrir ákveðnum breytileika. Sjá má
mismunandi mynstur í frávikum þroska
ferils. Hjá börnum með seinkaðan þroska feril
eru oft hægar en stöðugar fram farir. Bilið
milli þeirra barna sem eru með seinkaðan
þroska og þeirra sem fylgja eðlilegum
þroskaferli breikkar yfirleitt með árunum.
Í kjölfar heilaáverka, eins og til dæmis eftir
höfuðhögg, getur komið fram mikil afturför
í getu barns og verður síðan mismikill bati
eftir því hversu miklar heila skemmdir hafa
orðið. Stöðnun í þroska getur komið fram hjá
börnum með alvarleg frávik í taugaþroska
og eru framfarir þá tak markaðar. Einnig er
til þroskaferill þar sem fram kemur afturför
í þroska en þá glatar barn ákveðinni færni
sem það hafði áður náð tökum á.6 Sem dæmi
um alvarlega aftur för í þroska má nefna
Rett heilkenni þar sem þroskaáfangar eru
almennt nokkuð aldurs svarandi fyrstu
mánuðina en síðan tapast ýmis færni,
svo sem í tjáskiptum og hreyfifærni. Síðar
geta komið fram flog, einhverfa og ýmis
vandamál í öðrum líffærakerfum.9,10
Inngangur
Þegar barn fæðist hefur myndun taugakerfis
átt sér stað á fósturskeiði en taugaþroski er
aðeins skammt á veg kominn. Taugafrumur
halda áfram sérhæfingu sinni eftir fæðingu
og mynda tengsl við nærliggjandi frumur.
Á fyrstu vikum, mánuðum og árum ævinnar
verða miklar breytingar á færni og getu
barns og sérhæfing taugafrumna er í raun
aldrei eins flókin og viðamikil og á fyrstu
aldurs árunum.1 Þroski einstaklings er
flokkaður í gróf og fínhreyfiþroska, mál
þroska og félagsþroska, sem innifelur leik og
sam skiptafærni barnsins. Vitsmuna þroski er
saman settur úr öllum þessum mis munandi
þroska þáttum. Aðilar í nánasta um hverfi
barnsins gegna mikilvægu hlut verki í að
meta þroska framvindu þess.
Á Íslandi hefur Landlæknisembættið
og Þróunarmiðstöð íslenskrar heilsugæslu
gefið út ítarlegar leiðbeiningar um eftirlit
með vexti og þroska barna í ung og smá
barnavernd.2 Mikilvægt er að nánustu
aðstandendur barns fylgist með þróun
helstu þroskaáfanga. Eftir því sem barnið
verður eldra taka kennarar og leiðbeinendur
á leik skólum og síðar skólum virkan þátt í
mati á þroskastöðu barnsins. Í töflu I má
sjá helstu þroskaáfanga sem búast má við
að sjá á fyrstu aldursárum barns.3,4 Þegar
slík viðmið eru sett er horft til þess að 75%
barna á þeim aldri búi yfir tiltekinni færni
að lágmarki.5
Grunur um þroskafrávik
Þegar grunur vaknar um óeðlilegan tauga
þroska er hjálplegt að þekkja helstu frávik
í þroskaferli barna (tafla II).6,7 Sum frávik
í taugaþroska koma fram fljótlega eftir
fæðingu og geta til dæmis tengst ýmiss
konar heilkennum eða frávikum í erfðaefni
barnsins.6 Önnur frávik eru flóknari að
greina og líða jafnvel mörg ár þar til frávikin
koma í ljós. Sem dæmi má nefna að frávik
í vitsmunaþroska koma stundum skýrast
Taugaþroskafrávik
hjá börnum
Mynd 1. Þroskaferill barna.
Aldur í árum
Algengur
Seinkaður
Áfall
Stöðnun
Afturför
Þ
ro
sk
a
fe
ri
ll
1 2 3 4 5 6