Læknaneminn - 01.04.2022, Page 28
26 LÆKNANEMINN
output) með því að hraða á hjart slætti en
það viðheldur súrefnismagni til vefja.
Þess vegna er hraðsláttur algengt teikn
við blóðleysi. Þetta er hins vegar ekki
alltaf möguleiki og má þar til dæmis nefna
einstaklinga með hjartabilun eða á hraða
stillandi hjartalyfjum. Í öðru lagi er magn
blóð vökva aukið en það minnkar seigju
blóðs sem auðveldar rauðkornum ferð um
æða kerfið. Aukið magn blóðvökva eykur
einnig forþjöppun hjartans (preload) sem á
móti eykur útfall hjarta. Í þriðja lagi eykst
magn sameindarinnar 2,3dífosfóglýserats
í rauðkornum en það minnkar sækni
hemóglóbíns í súrefni sem losnar þá frekar
frá sameindinni og ferðast í vefi líkamans.1
Blóðprufur
Samkvæmt Handbók í lyflæknisfræði
frá árinu 20152 er miðað við að neðri
viðmiðunar mörk hemóglóbíns í blóðprufum
Þórbergur Atli Þórsson
Fjórða árs læknanemi 2021–2022
Brynjar Viðarsson
Sérfræðilæknir í blóðsjúkdómum
og lyflækningum
séu 118 g/L hjá konum og 130 g/L hjá körlum
en karlar hafa meira magn fyrir tilstilli
testósteróns. Falli hemóglóbín undir þessi
mörk í blóðprufu er talað um blóðleysi. Þessi
gildi eru þó aðeins viðmið. Sumir hópar
líkt og börn og óléttar konur eru oftar með
minna magn af hemóglóbíni 3,4 en fólk sem
býr hátt yfir sjávarmáli er að jafnaði með
meira magn.5
Blóðleysi er algengt vandamál og getur
fjölmargt legið að baki þess. Vanalega eru
undir liggjandi orsakir blóðleysis hópaðar
saman í undirflokka út frá niðurstöðum blóð
rannsókna. Hægt er að nálgast flokkunina á
tvo vegu, annars vegar út frá meðal rúmmáli
rauðkorna (mean corpuscular volume, MCV )
og hins vegar út frá undirliggjandi orsökum
eins og of lítilli fram leiðslu eða of miklu tapi
á rauð kornum. Í síðarnefndu flokkuninni
er gott að fá net frumu talningu fyrir frekari
upplýsingar varðandi orsök.1
Mikilvægt fyrsta skref í uppvinnslu blóð
leysis er að kanna hvort aðrar frumu línur
í blóði en rauðkorn séu afbrigði legar. Þá er
lagt mat á hvort vandamálið sé bundið við
rauðkornin eða hvort rót vandans liggi ef
til vill í beinmergnum sjálfum sem getur
sýnt sig í fleiri frumulínum. Ef fleiri línur
eru afbrigðilegar skal gera blóðstrok og
mögulega taka beinmergssýni með tilliti
til beinmergskvilla. Sé vandinn bundinn
Inngangur
Blóðleysi er ástand þar sem fækkun á fjölda
rauðkorna eða á sameindinni hemóglóbín
veldur skertum súrefnisflutningi til vefja
líkamans. Birtingarmynd heilkennisins er
fjöl breytt en endurspegla einkenni og teikn
jafnan þessa skertu súr efnis flutnings getu.
Einkenni á borð við þreytu og mæði eru
algeng en við líkamsskoðun sést oft slím
húðar fölvi og hrað sláttur (tachycardia) svo
eitt hvað sé nefnt. Klínísk birtingar mynd er
að miklu leyti háð því hversu hratt blóð leysið
þróast, vægt blóðleysi sem þróast hratt veldur
jafnan alvarlegri einkennum en svæsið
blóðleysi sem þróast yfir langan tíma.1
Eðlilegt er að líkaminn reyni að bregðast
við blóðleysi annars vegar með aukinni
fram leiðslu á blóðfrumum og hins vegar
með lífeðlisfræðilegum leiðum. Lífeðlis
fræði legu leiðirnar eru þrjár. Í fyrsta
lagi eykur líkaminn útfall hjarta (cardiac
Blóðleysi: Hagnýt
upp vinnsla byggð á
niður stöðum blóðprufa
Eru aðrar frumulínur en rauðkorn
óeðlilegar í blóðprufu?
Mögulegar ástæður:
• Hvítblæði
• Mergmisþroski (myelodysplasia)
• Íferð í merg
• Frumubrestur (pancytopenia)
• Lyf
o.s.frv.
Eru netfrumur hækkaðar? Skoða MCV
Nei
Já
Blæðing Mæla vísa fyrir rauðkornarof:
• Hátt LD
• Hátt Bílírúbín
• Lágt Haptóglóbín
NeiJá
Blóðstrok og mögulega
beinmergssýni
Mynd 1. Uppvinnsla á blóðleysi út frá blóðfrumulínum og netfrumum.